Hlynur - 15.09.1960, Blaðsíða 10
Innbúsgetraun Samvinnutrygginga
f ágúst síðastliSnum efndi Bruna-
deild Samvinnutrygginga til getraun-
ar í þeim tilgangi aS vekja athygli á
hinum miklu verðhækkunum und-
anfarinna mánaða. Var ýmsum mun-
um úr almennu innbúi stillt út í
sýningarglugga Málarans í Banka-
stræti, og sá Ásgeir Júlíusson teikn-
ari um útstillinguna. Þeir, sem þátt
tóku í getrauninni, áttu að nefna
samanlagt verðmæti þeirra hluta, er
sýndir voru, en þeir voru frá ýmsum
húsgagnaverzlunum í Reykjavík.
Alls tóku 500 manns þátt í get-
rauninni. Sigurvegari varð ung hús-
móðir, Hulda Eiríksdóttir, Dalbraut 1,
Reykjavík, gift Kristni Björgvin Þor-
steinssyni bankamanni. Giskaði hún
á að sannvirði hlutanna væri kr.
64.846.00, en í rauninni nam það
64.660.18 kr. Munaði hér því aðeins
tæpum 186 krónum. Fékk Hulda því
verðlaunin, að upphæð kr. 5000.00. í
stuttu viðtali, sem Hlynur átti við
frúna í þessu tilefni, lét hún þess get-
ið, að þau hjón hefðu fengið sér get-
raunaseðil, er þau voru á gangi niðri
☆ ☆
I
10 HLYNUR