Hlynur - 15.07.1968, Page 2

Hlynur - 15.07.1968, Page 2
Samvinnufólkið slái skjaldborg um félögin — Frá aðalfundi SÍS. - Aðalfundur SÍS árið 1968 var haldinn að Bifröst í Borgarfirði dagana 20. og 21. júní sl. Á fund- inum kom m. a. fram, að SIS hefur átt við mikla rekstrarerf- iðleika að etja sl. ár, og sýndi rekstursreikningur ársins 1967 tæplega 40 milj. kr. rekstrar- halla. Þá urðu miklar umræður um landbúnaðarmál á fundin- um, og einnig var f jölgað í stjórn SÍS, úr 7 í 9. í upphafi fundar minntist stjórnarformaður, Jakob Frí- mannsson, látinna samvinnu- manna, og gat hann sérstaklega þeirra Sigurðar Þórðarsonar frá Nautabúi, Davíðs Þorsteinssonar á Arnbjargarlæk, Sigurðar Bene- diktssonar frkvstj., Jóns Eyþórs- sonar veðurfræðings og Jónasar Þorbergssonar fyrrv. útvarps- stjóra, sem allir létust á árinu. Risu fundarmenn úr sætum til heiðurs hinum látnu. Að lokinni rannsókn kjörbréfa voru kosnir starfsmenn fundar- ins, og voru fundarstjórar kosn- ir þeir Karl Kristjánsson fyrrv. alþm. og Steinþór Þorsteinsson kfstj. Síðan flutti Jakob Frí- mannsson skýrslu stjórnarinnar. Gerði hann grein fyrir helztu viðfangsefnum hennar á árinu og gat þess, að rekstrarfjárörð- ugleikar og almennur samdrátt- ur í rekstrinum hefðu verið meginviðfangsefni hennar á ár- inu. Af þeim sökum hefði orðið að leggja niður ýmsar deildir og fyrirtæki SÍS, og gerði stjórnar- formaðurinn grein fyrir þeim málum í einstökum atriðum. Þá gat hann um þá erfiðleika, sem SÍS varð fyrir vegna verðfalls á sjávarafurðum á bandarískum markaði og hann kvað hafa ver- ið eitt erfiðasta mál ársins, og greindi hann frá þeim ráðstöf- unum sem stjórnin hefði gert í því sambandi. Einnig kvað hann gengislækkunina á sl. vetri hafa orðið SÍS þunga í skauti, og hefði það orðið að þola stór- töp af hennar völdum. Margt fleira kom fram i skýrslu stjórn- arformannsins, og að lokum lýsti hann fullu trausti sínu og stjórnarinnar á forstjóra, fram- kvæmdastjóra og deildarstjóra SÍS. Þá flutti Erlendur Einarsson forstjóri SÍS skýrslu sína um rekstur ársins 1967. Var hún mjög ítarleg og yfirgripsmikil og í henni rætt mjög rækilega um einstaka þætti í rekstri SÍS og kaupfélaganna á starfsárinu. Fyrst ræddi hann nokkuð um rekstur sambandsfélaganna og gat þess, að félagsmönnum hefði fækkað um 1.1% á árinu, en til þess að fylgja eftir fólksfjölgun- inni hefði þeim þurft að fjölga um 2%, og væru nú um 15.3% landsmanna í kaupfélögunum. Staða félaganna gagnvart SÍS hefði versnað mjög á árinu, og stafaði það fyrst og fremst af því, að skuldir félagsmanna við félögin hefðu aukizt stórlega. Þá gat hann þess, að almennur tap- rekstur kaupfélaganna væri orð- inn alvarlegt vandamál, en sam- kvæmt þeim upplýsingum sem fyrir lægju, sýndi mismunurinn á tekjuafgangi og reksturshalla á rekstursreikningum allra fé- lagánna um 41 milj. kr. beint tap, og starfsfólki félaganna hefði fækkað úr 2.206 í 2.090 á árinu. Til að mæta þessari öfug- þróun væri nauðsynlegt að minnka eða stöðva fjárfestingar, auka hagræðingu í rekstrinum, vinna að skipulagsbreytingum og stefna að því að litlu félögin sameinuðust hinum stærri. Þá taldi hann og, að nauðsynlegt væri að finna leiðir til þess að auka tekjustofnana og efla neyzluvöruverzlunina í þéttbýl- inu. Síðan las og skýrði forstjór- inn reikninga SÍS fyrir árið 1967, en rekstursreikningurinn sýndi halla að upphæð kr. 39.8 milj. í því sambandi gat hann þess, að áður hefði verið fært til gjalda kr. 22.4 milj. í afskrift- ir, kr. 4.9 milj. vextir af stofn- sjóði, kr. 17.1 milj. opinber gjöld, og loks hefði gengistap af völd- um gengislækkunarinnar orðið Séð yfir fundarsalinn á aðalfundinum. 2 HLYNUH

x

Hlynur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hlynur
https://timarit.is/publication/1407

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.