Hlynur - 15.07.1968, Síða 3
Við háborðið frá vinstri: Jakob Frímannsson, Karl Kristjánsson, Erlendur
Einarsson og Eysteinn Jónsson í rœðustól-
Framkvœmdastjórar SIS frá vinstri: Hjörtur Iljartar, Hjalti Pálsson, Ilarry
Frederiksen, Helgi Bergs, Sigurður Markússon, Jón Þór Jóhannsson (aðst.frkvstj.
Innfld.) og Guðjón B. Olafsson, nýskipaður frkvstj. Sjávarafurðadeildar. A
myndina vantar Agnar Tryggvason.
Fráfarandi stjórn SIS frá vinstri: Eysteinn Jónsson, Finnur Kristjánsson, Skúli
Guðmundsson, Guðmundur Guðmundsson, Guðröður Jónsson og Þórður Pálma-
son. (Ljósm.: Gunnar V- Andrésson).
samtals kr. 41.4 milj. Af þeirri
upphæð hefði þó verið fært til
hækkunar á bókfærðu verði
skipa og fasteigna skv. heimild
ríkisskattstjóra kr. 26.2 milj., en
15.2 milj., sem stöfuðu af gengis-
tapi vegna erlendra vöruskulda
°g skipagjalda, hefðu verið
færðar til gjalda á reksturs-
reikning. Auk þess gat hann
Þess, að ýmsar aðrar orsakir
hefðu hér komið við sögu, svo
sem almennir erfiðleikar frysti-
húsanna, sjávarútvegsins og
landbúnaðarins, óhagstæð áhrif
verðstöðvunarlaganna, tvö verk-
föll farmanna og mikill sam-
úráttur í ýmsum starfsgreinum
SIS. Þá gerði forstjórinn grein
fyrir afkomu einstakra deilda
Sis og ræddi leiðir til þess að
snúa hinni óhagstæðu rekstrar-
þróun við. Nefndi hann sérstak-
lega verzlunarálagninguna, sem
augljóst væri, að væri nú lang-
flestum verzlunum ónóg til að
standa straum af eðlilegum út-
gjöldum sínum. Taldi hann, að
þér á landi gæti blasað við efna-
hagslegt hrun, ef ekki væru
gerðar ráðstafanir til að efla at-
vinnuvegi þjóðarinnar. Þá kom
°g fram í skýrslu forstjórans,
aú heildarumsetning SÍS hefði
iækkað úr 2.776.6 milj. kr. árið
!966 í 2.695.2 milj. kr. árið 1967
eöa um 81.4 milj. kr., og einnig
hefði fastráðnu starfsfólki fækk-
að á árinu úr 1325 í 1180 eða
urtl 145. Þá hefðu launagreiðslur
á rekstrarreikningi lækkað um
8-6 milj. kr. frá árinu á undan,
°g væri þetta í fyrsta skipti í
^harga áratugi, að launagreiðsl-
Ur hjá SÍS lækkuðu. Pjölda-
'hargt fleira kom fram í skýrslu
forstjórans, en að lokum sagði
hann: „Að lokum vil ég svo
hvetja ykkur fundarmenn, for-
ystumenn samvinnufélaganna í
landinu, til að beita ykkur fyrir
þyí» að samvinnufólkið slái
FORSÍÐAN. Að þessu sinm birtuin
Vl& þar svartlistarmynd. Ilöfundurinn
er reykvískur listmálari, Jens Krist-
leifsson, sem fyrir skömmu hélt sýn-
ingu á Mokka-kaffi í Reykjavík.
skjaldborg um félögin sín á þess-
um hættutímum. Það er unnt, ef
félagsfólkið í fyrsta lagi skilur
hætturnar sem eru á ferðum,
og í öðru lagi með því að standa
fast saman um félögin. Ég heiti
á alla samvinnumenn og konur
að standa vel á verði og nota
mátt samtakanna til varnar,
svo unnt verði sem fyrst að
hefja aftur nýja sókn, reynsl-
unni ríkari. Samvinnuhreyfing-
in er öflug og sterk, en því að-
eins verður hún máttugt tæki
fyrir sjálfsbjargarviðleitni fólks-
ins, að það standi fast saman
um félögin."
Að lokinni skýrslu forstjóra
urðu nokkrar umræður, en síð-
an var tekið fyrir annað aðal-
mál fundarins, sem var landbún-
aðarmál. Framsögu höfðu þeir
Gunnar Guðbjartsson formaður
Stéttarsambands bænda og Agn-
ar Tryggvason frkvstj. Búvöru-
deildar SÍS. Ræddu þeir ástand
HLYNUR 3