Hlynur - 15.07.1968, Qupperneq 4

Hlynur - 15.07.1968, Qupperneq 4
og horfur í landbúnaðinum og um markaðsmál hans. Voru er- indi þeirra hin fróðlegustu, og urðu allmiklar umræður að þeim loknum, þar sem margir tóku til máls. Þessu næst hafði Jakob Frí- mannsson framsögu fyrir hönd stjórnar SÍS fyrir tillögu til breytingar á samþykktum þess, sem gerði ráð fyrir, að í stað 7 manna verði 9 menn í stjórn SÍS, kosnir til þriggja ára og a. m. k. einn úr hverjum landsfjórðungi, og gangi 3 úr stjórninni árlega. Kvað stjórn- arformaðurinn þessa tillögu m. í sambandi við aðalfund SÍS að Bifröst var haldinn fundur til stofnunar sjóðs, er ber heitið Tryggingarsjóður innlánsdeild- anna. Er verkefni sjóðsins að tryggja innistæður í innláns- deildum kaupfélaganna um allt land. Til þessa fundar var boðað af stjórn SÍS, sem hafði áður falið nefnd þriggja manna, þeirra Ragnars Ólafssonar, Vilhjálms Jónssonar og Helga Bergs, að undirbúa málið, og mættu á honum 47 fulltrúar frá 38 kaup- félögum. Á fundinum kom fram, að sjóðnum er ætlað að vera til tryggingar því, að innistæðu- eigendur fái fé sitt greitt, ef kaupfélag verður gjaldþrota eða á annan hátt ófært um að standa við skuldbindingar sín- ar, en til þess er ætlazt, að aðild- arfélögin greiði gjöld til sjóðsins, sem svari til þess, að þegar frá líður sé innistandandi í honum upphæð sem samsvari 2% af heildarinnistæðum í innláns- deildunum. Skilyrði fyrir trygg- ingu hjá sjóðnum eru m. a. a. flutta til að skapa aukið svig- rúm til að auka áhrif neytenda á þéttbýlissvæðunum innan samvinnuhreyfingarinnar. Var þessi tillaga samþykkt sam- hljóða. Af öðrum málum, sem rædd voru á fundinum, má nefna skýrslu, sem Óskar Jónsson, Sel- fossi, flutti um störf nefndar þeirrar, sem kosin var á síðasta aðalfundi til að kanna og undir- búa stofnun „þjóðgarðs" sam- vinnumanna. Skýrði hann svo frá, að nefndin hefði unnið talsvert að þessu máli, og væru nefndarmenn sammála um að að viðkomandi kaupfélög hafi tryggan efnahag, eðlilegan og tryggan rekstur og uppfylli önn- ur skilyrði, sem sjóðsstjórnin kann að setja. Á fundinum kom einnig fram, að þessi sjóðsstofn- un er fyrst og fremst hugsuð til tryggingar í erfiðleikatilvikum, sem upp kunna að koma í fram- tíðinni, en sjóðurinn er ekki við það miðaður að hann geti tekið á sig að leysa vandamál, sem þegar eru fyrir hendi. Aðal- fundi sjóðsins á að halda árlega í sambandi við aðalfund SÍS, og í stjórn hans skulu sitja 7 menn, kosnir til tveggja ára. Á fundinum í Bifröst var samþykkt að stofna sjóðinn, og einnig var samþykkt frumvarp að reglugerð fyrir hann, sem undirbúningsnefndin lagði fram. í fyrstu stjórn sjóðsins voru kosnir þeir Helgi Bergs, Vil- hjálmur Jónsson, Ragnar Ólafs- son, Valur Arnþórsson, Sveinn Guðmundsson, Ólafur Sverris- son og Ásgrímur Halldórsson. - e. leggja áherzlu á að fá land- svæði fyrir þessa starfsemi að Hreðavatni. Var ákveðið að fela nefndinni að vinna áfram að þessu máli í samráði við stjórn SÍS. í tilefni af hálfrar aldar af- mæli Norræna samvinnusam- bandsins (NAF) samþykkti fundurinn og að senda forstjóra og starfsfólki þess skeyti með heillaóskum sínum og þakklæti fyrir gott starf á liðnum árum. Að lokum fóru svo fram kosn- ingar. í stjórn SÍS sátu áfram þeir Jakob Frímannsson, for- maður, Þórður Pálmason, Skúli Guðmundsson, Finnur Kristj- ánsson og Guðröður Jónsson, en kjörtími þeirra Eysteins Jóns- sonar, varaformanns, og Guð- mundar Guðmundssonar var út- runninn. Guðmundur Guð- mundsson gaf ekki kost á sér til endurkjörs, og var kosinn í hans stað Þórarinn Sigurjónsson á Laugardælum, og Eysteinn Jóns- son var endurkjörinn. Auk þeirra voru kosnir í stjórnina í samræmi við þá breytingu sem gerð var á samþykktum SÍS fyrr á fundinum þeir Ragnar Ólafs- son, Reykjavík, og Ólafur Þ. Kristjánsson, Hafnarfirði. Vara- menn voru kosnir þeir Ólafur Sverrisson, Borgarnesi, Ólafur E. Ólafsson, Króksfjarðarnesi, og Ingólfur Ólafsson, Reykjavík. Þá vár og kosinn endurskoðandi, Tómas Árnason, í stað Jóns Skaftasonar, sem ekki gaf kost á séf til endurkjörs, en fyrir var Björn Stefánsson. í stjórn Líf- eyrissjóðs SÍS var kosinn Skúli Guðmundsson, og til vara Þórð- ur Pálmason, og í stjórn Menn- ingarsjóðs SÍS þeir Karl Kristj- ánsson fyrrv. alþm. Húsavík, sr. Sigurður Haukur Guðjónsson, R'eykjavík, og Magnús Sigurðs- son, Gilsbakka. Einnig voru kosnir 11 aðalfulltrúar og 6 til vara í fulltrúaráð Samvinnu- trygginga og Líftryggingafélags- ins Andvöku. — e. Tryggingarsjóður innlánsdeildanna 4 HLYNUR

x

Hlynur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hlynur
https://timarit.is/publication/1407

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.