Hlynur - 15.07.1968, Qupperneq 5

Hlynur - 15.07.1968, Qupperneq 5
Skipulagsbreytingar á samvinnuhreyfingunni í Evrópu — Fyrri hluti — Árið 1953 voru kaupfélögin í Danmörku 1.962 að tölu, árið 1963 voru þau 1.895 og árið 1966 voru þau aðeins 1.250. í Svíþjóð voru 720 kaupfélög árið 1953, 400 árið 1963 og aðeins 297 árið 1966. í Sviss voru 927 kaupfélög árið 1953, 863 árið 1963 og árið 1966 hafði þeim fækkað niður í 456. I Noregi ráku samvinnumenn 2.103 verzlanir árið 1962, en árið 1966 hafði þeim fækkað í 2.027. í Vestur-Þýzkalandi voru verzl- anir samvinnumanna 9.045 árið 1962, en 7.130 árið 1966, og hlið- stæðar tölur frá Frakklandi er” 9.746 árið 1962 og 9.217 árið 1966. Þetta er aðeins lítið sýnishorn af þeirri þróun, sem átt hefur sér stað í málefnum kaupfélaga. i flestum löndum Evrópu síð- ustu árin. f fljótu bragði gætu þessar tölur þótt benda til bess. að samvinnumenn væru á stöð- ugu undanhaldi og þyrftu í stór- um stíl að loka verzlunum sín- um og gera upp félögin, en þessu er þó síður en svo þannig varið. Yfirleitt hafa kaupfélög Evrópu aukið bæði markaðshlutfall sitt og meðlimafjölda, og í málefnum þeirra er ekki um neina stöðnun eða afturför að ræða. Hins vegar hefur það gerzt, að nútímaaðstæður gera allt aðrar kröfur til félaganna en áður, ef þau eiga að standast samkeppn- ina við keppinauta sína. Vel- ferðarþjóðfélag nútímans kallar á stórar reksturseiningar, og nú á dögum vill fólk verzla í st^r- um verzlunum, sem geta boðið mikið vöruúrval og fjölbreytta þjónustu. Þess vegna hafa kaup- félögin brugðið á það ráð að sameinast í stærri félagseining- ar, sem hæfari eru til að stand- ast samkeppnina, og þau hafa lokað litlu búðunum, sem ekki uppfylla lengur kröfur tímans, en opnað í stað þeirra stórar kjörbúðir með fjölbreytt vöru- úrval. Alþj óðasamvinnusambandið (ICA) hefur fylgzt gaumgæfi- lega með þróun þessara mála undanfarin ár og reyndar haft um þau nokkra forgöngu, og fyrir skömmu birtist í tímariti þess, Review of International Cooperation, yfirlit yfir það, hvernig skipulagsmálin væru á vegi stödd i ýmsum af aðildar- löndunum. Þar sem þessi mál hafa nú um nokkurt skeið verið ofarlega á baugi hér á landi, er ekki ófróðlegt fyrir íslenzka samvinnumenn að kynnast ýms- um þeim viðhorfum sem fram koma í þessari skýrslu. Samvinnusambönd. Allvíða hefur verið unnið mik- ið starf að því að endurskinn- leggia uppbyggingu samvinnu- sambandanna með það fyrir augum að gera þau hæfari til að mæta harðnandi samkennni oe auðvelda stjórnendum beirra að taka mikilvægar ákvarðanir á skömmum tíma. f fiórum E^r- ópulöndum, Bretlandi. Frakk- landi. Þýzkalandi og Svíbiö*. hafa undanfarin ár verið starf- andi skipulagsnefndir innan samvinnusambandanna, sem gert hafa tillögur um breyting- ar á heildarskinulagi beirra. á- samt bví sem þær hafa fjallað um samband beirra við hin ein- stöku kaupfélög o. s. frv., og HLYNUR 5

x

Hlynur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hlynur
https://timarit.is/publication/1407

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.