Hlynur - 15.07.1968, Síða 10
Fylgizt með
nýjungum
Árið 1955 opnuðum við okk-
ar fyrstu kjörbúð. Verzlunar-
menn þurftu að aðlagast nýjum
starfsháttum, leggja niður
vinnubrögð, sem margir höfðu
tileinkað sér árum eða áratug-
um saman. Samfara þessari
breytingu komu lítt eða áður
óþekkt tæki, svo sem lokunar-
tæki fyrir plast og sellofan, og
verðmerkistimplar og -vélar í
stað penna. Sellofan og plast
ruddi sér meira og meira til
rúms við innpökkun, og ekki má
gleyma áður óþekktum kæli- og
frystiborðum og ýmsum gerðum
af sölugrindum og körfum.
Reynslan hefur kennt okkur,
að nauðsynlegt er að fylgjast
vel með og sjá hvað nýtt kemur
á markaðinn af tækjum, þó í
mörgum tilvikum geti orðið bið
á því að eignast hlutinn.
— Jœja, ég kemst þá víst elclci hjá því
lengur að reyna að útvega þér hnífa-
slcúffu.
Úr gamalli afgreiðsluverzlun.
Fyrstu störfin að morgni
1. Athugið, að vinnusloppar séu heilir og hreinir.
2. Athugið, hvort næg skiptimynt er í kassanum.
3. Athugið, hvort nægilega margar kvittanarúllur eru í kassa-
skúffunni. Skiptið um rúllu strax að morgni, ef lítið er
eftir af henni. Oft er erfitt um vik að sinna slíku í mikilli
ös.
4. Athugið, hvort kassaborðin eru ekki vel hrein.
5. Athugið, að verðlistar séu við hendina, og að þeir séu
réttir. Lærið þá utanbókar.
6. Athugið, hvort þið hafið ekki nægan pappír og allar stærð-
ir af pokum.
10 HLYNTJR