Hlynur - 15.07.1968, Side 13
/--------------------- N
Auglýsingatextar
v_______________________________y
Það er viðurkennt, að textar
og slagorð í auglýsingum, sem
vel eru samin, geta haft gífur-
lega mikið auglýsingagildi, en
hins vegar getur illa samin
auglýsing beinlínis spillt fyrir
sölunni á þeirri vöru, sem aug-
lýsa á.
Auglýsendur jafnt hér heima
á íslandi sem úti í hinum stóra
heimi leggja þvi mikla áherzlu
á það að semja auglýsingatexta
sína þannig, að þeir séu munn-
tamir og hljómi þannig að eftir
þeim sé tekið. Hins vegar hafa
flestir þeir, sem við samningu
á auglýsingum hafa fengizt,
ekki sízt fyrir innfluttum vör-
um, rekið sig á það, að allt ann-
að en auðvelt getur verið að ís-
lenzka slagorð, sem e. t. v.
hljóma prýðilega á einhverju
erlendu tungumáli, en verða
hjákátleg, þegar reynt er að
snúa þeim á íslenzku.
Þetta er reyndar ekkert sérís-
lenzkt vandamál, því að eftir því
sem millilandaviðskipti vaxa og
Það færist í aukana, að stór-
fyrirtæki reyni að leita mark-
aða fyrir framleiðslu sína í
hiörgum löndum, fer þörfin fyrir
góða auglýsingatexta á mörgum
tungumálum vaxandi. Við rák-
umst fyrir skömmu á grein um
þetta efni í þýzka fréttablaðinu
Der Spiegel, þar sem rætt er
um erfiðleika fyrirtækja í ensku-
hiælandi löndum, sem auglýsa
vilja vörur sínar í Þýzkalandi,
°g þótt við vitum að vísu ekki,
hve margir af lesendum okkar
hafa nægilega kunnugleika á
viðskiptasviðinu í þessum lönd-
uni til að hafa áhuga á slíku,
setlum við að reyna að endur-
segja hér nokkuð af efni grein-
urinnar.
Bandaríska flugfélagið TWA
(Trans World Airlines) reynir að
fá Þjóðiverja til að fljúga með
vélum sínum, og það hefur fund-
ið ágætt slagorð fyrir auglýs-
“Up up and away“
- was meinen wirdamit?
Auglýsing frá TWA með textanum
sem frá segir í greininni.
ingar sínar í Bandaríkjunum,
sem er „Up, up and away“. Það
hefur tekið upp þá stefnu að
reyna ekki að þýða það á þýzku,
heldur nota enska textann í
auglýsingum sínum í þýzkum
blöðum. Þetta hefur að vísu
vakið nokkur mótmæli, en um-
boðsmenn flugfélagsins þar í
landi hrósa sér þó af því, að
slagorð þeirra hafi þegar unn-
ið sér þegnrétt í málinu, svo
að nú orðið tengi velflestir Þjóð-
verjar þetta slagorð við flugfé-
lagið TWA.
Og í fótspor þessa flugfélags
hafa bandarísku stórfyrirtækin
fetað hvert af öðru, er þau hafa
leitað fyrir sér um sölu á þýzk-
um markaði. Meðal þeirra eru
Esso, Coca-Cola, Pan American,
Avis, Imperial Chemical Indu-
stries (ICI) og United Air Lines.
Öll þessi fyrirtæki hafa gefizt
upp við að þýða auglýsingaslag-
orð sín, sem gefið hafa góða
raun við að vinna hylli kaup-
enda í heimalandinu, og láta
þau koma óþýdd í erlendum
auglýsingum sínum. Þannig
syngur Coca-Cola kórinn nú í
flestum þýzkum kvikmyndahús-
um „Things go better with
Coke“, og í fatnaðarauglýsingum
sínum segir ICI í Þýzkalandi
„The Manline is Terylene".
Viskýauglýsingar fyrirtækisins
sem framleiðir VAT 69 hljóma
„Old Scotch for Youngsters“,
United Airlines segir „Fly the
friendly skies of United“, og
vefnaðarvörufyrirtækið Mc-
Gregor auglýsir „the young
ideas“.
Oft hafa fyrirtækin þó reynt
sitt bezta til að þýða slagorð
sín, en með misjöfnum árangri.
Pan American reyndi t. d. að
þýða slagorð sitt „Who was the
guy who said the sky is the
limit“, sem er orðaleikur með
bandarískan talshátt, og á þýzku
hljóðaði það „Der Himmel ist
die Grenze — wer hat denn das
gesagt“, og annað slagorð,
„Panam makes the going great“,
varð að „Panam macht den
grossen Flug“, en hvorug þessi
útgáfa féll að þýzkum smekk,
svo að þessar þýðingartilraunir
féllu um sjálfar sig. Nokkru
öðru máli gegndi um slagorð
bilaleigufyrirtækisins Avis, sem
varð „Wir geben uns mehr
Muhe“ á þýzku, en náði þó
tæplega fyrirmynd sinni „We
try harder“.
Oft vilja bandarísku fyrirtæk-
in beinlínis ekki láta þýða slag-
orð sín, því að þau eru hrædd
um að það skaði alþjóðlegt svip-
mót sitt. Þannig er því t. d.
varið um slagorð TWA, sem ekki
hefur verið gerð tilraun til að
þýða. Oft treysta fyrirtækin
heldur ekki erlendum auglýs-
ingamönnum, svo að þau láta
sína menn semja auglýsingarnar
og slagorðin á ensku og þýða
þau síðan. Yfirleitt þykja slík
HLYNUR 13