Hlynur - 15.07.1968, Síða 14
vinnubrögð þó ekki gefa góða
raun, en fyrir kemur þó, að þýð-
ingin tekst. Þannig þykir t. d.
slagorð Esso í Þýzkalandi, „Pack
den Tiger in den Tank“ ekki
standa hinni bandarísku fyrir-
mynd sinni að baki, sem er
„Put a tiger in your tank“. Sama
máli gegnir um Coca-Cola aug-
lýsinguna „Mach mal Pause“,
sem er þýðing á „The pause that
refreshes“. Og stoltir þýzkir
auglýsingamenn benda á banda-
ríska slagorðið „Get that good
Goodrich feeling“ í auglýsingum
samnefnds hjólbarðafyrirtækis,
en það er bein þýðing á þýzku
slagorðií, „das gute Goodricih
Gefuhl“. — e.
Áskrifendahapp-
drætti Samvinnimnar
Hinn 15. júlí s.l. var dregið um
Malloroaferð fyrir tvo, sem Sam-
vinnan bauð heppnum áskrifanda,
sem greiddi áskriftargjaldið 1938
fyrir 15. þ.m. Óskar Hlynur vinnings-
hafanum og gesti hans ánægjulegr-
ar dvalar á sólarströnd Mallorca, en
útdregið númer var 9192, og reynd-
ist eigandinn vera Gísli Friðbjarnar-
son, Skuld, Húsavík.
Aðaltilgangurinn með þessum
vinningi var að örva fólk til að
geraist áskrifendur að Samvinnunni,
en ekki verður sagt, að eftirtekjan
hafi reynzt í samræmi við vonirnar.
Sumstaðar náðist þó athyglisverð-
ur árangur, m. a. á Höfn í Horna-
firði, þar sem áhugasömum manni,
Vilhjálmi Guðmundssyni, tókst að
afla Samvinnunni 44 nýrra kaupenda
á stuttum tíma. Er án efa hægt að
ná slíkum árangri hvar sem er á
landinu, ef áhugi og framtak er
fyrir hendi.
•— Mér er sama hvað hver segir, eftir
teilcningunni á að vera hrekka hér!
Abalfundur Kaupfélags Eyfirðinga
Aðalfundur Kaupfélags Eyfirðinga
var haldinn í samkomuhúsi Akur-
eyrarbæjar dagana 5. og 6. júní sl.
Rétt til fundarsetu höfðu 201 fulltrúi
úr 24 deildum félagsins, en mættir
voru 191 fulltrúi úr 21 deild auk
stjórnar félagsins, kaupfélagsstjóra,
endurskoðenda, ýmissa gesta og all-
margra starfsmanna félagsins.
f fundarbyrjun minntist formaður
félagsins þeirra félagsmanna, er lát-
izt höfðu frá síðasta aðalfundi, og
þá sérstaklega Þórarins Björnssonar,
skólameistara, sem andaðist í janúar
sl., en Þórarinn var í stjórn Menn-
ingarsjóðs félagsins um langt árabil.
Fundarstjórar voru kjörnir Ingvar
Gíslason, alþingismaður, Akureyri,
og Sigurður Jósefsson, bóndi, Torfu-
felli, en fundarritarar Árni Jóhann-
esson, mjólkurfræðingur, Akureyri,
og Hjalti Kristjánsson, bóndi, Hjalta-
stöðum.
Formaður félagsins, Brynjólfur
Sveinsson, yfirkennari, flutti skýrslu
stjórnarinnar fyrir liðið ár. Verkleg-
ar framkvæmdir og aðrar fjárfest-
ingar höfðu orðið verulega minni en
á undangengnum árum.
Kaupfélagsst'órinn, Jakob Frí-
mannsson, las reikninga félagsins
fyrir árið 1967 og skýrði ítarlega
frá rekstri þess. Vegna minnkandi
kaupgetu almennings, einkum síðari
hluta ársins, varð söluaukning í
verzlunardeildum félagsins mun
minni en undanfarin ár, eða aðeins
1.4% . Heildarvörusala félagsins og
fyrirtækja þess á innlendum og er-
lendum vörum, þegar með eru taldar
útflutningsvörur, verksmiðjufram-
ileiðsla og sala þjónustufyrirtækja,
jókst hins vegiar um 3.6%, eða úr
925.4 milj. króna í 958.6 milj. kr. Af-
skriftir og aukning eigin sjóða námu
á árinu alls um 16 milj. kr., en rekstr-
arhalli varð rúmlega 4.3 milj. kr.,
þannig að eigin fjármunamyndun
félagsins varð rúmlega 11.6 milj. kr.
Meginorsök rekstrarhallans var mik-
ill taprekstur á frystihúsum félags-
ins, og þá fyrst og freimst á frysti-
húsinu í Hrísey, af völdum verðfalls
erlendis og verðbólgu innanlands, en
einnig varð félagið fyrir talsverðu
skakkafalli af völdum gengisfelling-
arinnar á sjl. hausti.
Aðalfundur ákvað að greiða í reikn-
inga félagsmanna 6% arð af við-
skiptum þeirra við lyfjabúð félags-
ins, Stjörnu Apótek, sem þeir sjálfir
höfðu greitt.
Úr Menningarsjóði félagsins hafði
á árinu verið úthlutað kr. 125.000 til
átta aðila, en tekjur sjóðsins voru
250 þús. kr. framlag, samþykkt á að-
alfundi í fyrra, auk vaxta. Á aðal-
fundinum nú var einnig samþykkt
250 þús. króna framlag til sjóðsins.
Á fundinum var samþykkt eftirfar-
andi ályktun: „Þar sem rekstrarlán
til landbúnaðarins hafa ekki hækkað
síðastliðinn áratug, en rekstrarfjár-
þörf bænda og sölufyrirtækja þeirra
hefur farið ört vaxandi með hverju
ári, skorar aðalfundur KEA 1968 á
ríkisstjórnina að hlutast til um að
rekstrarlánin verði hækkuð svo, að
þau verði hlutfallslega jafnhá og þau
voru 1958“.
í stjórn félagsins var endurkjörinn
til þriggja ára Kristinn Sigmundsson
oddviti, Arnarhóli. Endurskoðandi til
tveggja ára var endurkjörinn Guð-
mundur Eiðsson bóndi, Sörlatungu,
og varaendurskoðandi til tveggja ára
Ármann Dalmannsson, skógarvörður,
Akureyri. í stjórn Menningarsjóðs
til þriggja ára var endurkjörinn
Bernharð Stefánsson, fyrrv. alþingis-
maður, Akureyri, og í stjórn Menn-
ingarsjóðs var kjörinn til eins árs
Árni Kristjánsson, menntaskólakenn-
ari, Akureyri, í stað Þórarins heitins
Björnssonar skólameistara. Varamað-
ur í stjórn Menningarsjóðs var kjör-
inn Hólmfríður Jónsdóttir, mennta-
skólakennari, Akureyri, í stað Árna
Kristjánssonar.
Fastráðið starfsfólk félagsins 1 árs-
lok var 521 talsins.
14 HLYNUR