Hlynur - 15.07.1968, Side 15

Hlynur - 15.07.1968, Side 15
Ráðstefna um stjórnunarmál Félag kaupfélagsstjóra gekkst fyr- ir ráðstefnu um stjórnunarmál dag- ana 28.—30. maí sl. að Bifröst í Borgarfirði. Rúmlega 20 kaupfélags- stjórar sóttu ráðstefnuna, sem var haldin með aðstoð Stjórnunarfélags íslands. Á ráðstefnunni flutti Glúmur Björnsson skrifstofustjóri hjá Orku- stofnun ríkisins tvö erindi, um reiknigrundvöll stjórnunaraðgerða og um bókhaldstækni. Sveinn Björns- son frkvstj. Iðnaðarmálastofnunar Islands flutti einnig tvö erindi um starfsmat og um stjórnunarmál, og Magnús Björnsson starfsmannastjóri hjá Flugfélagi íslands flutti erindi um starfsmannamál. Þá höfðu þrír haupfélagsstjórar, þeir Ólafur Sverr- isson, Borgarnesi, Guðni Guðnason, Vestmannaeyjum, og Ólafur Ólafs- son, Hvolsvelli, framsögu um vanda- mál kaupfélagsstjórans, og að því loknu fóru fram hópumræður og síðan almennar umræður. Loks sögðu þeir Ingólfur Ólafsson og Gunnar Sveinsson frá ráðstefnu um smá- söludreifingu, sem þeir höfðu ný- lega sótt í Haag í Hollandi. Tókst ráðstefnan í heild hið bezta, og voru þátttakendur almennt mjög ánægðir nteð framkvæmd hennar. — í stjórn Bélags kaupfélagsstjóra eru þeir Ing- ólfur Ólafsson, KRON, formaður, Gunnar Sveinsson, Kf. Suðurnesja, og Ragnar Pétursson, Kf. Hafnfirðinga. Frá Bretlandl Skozka samvinnuheildsalan, Scott- ish Co-operative Wholesale Society, gerði nýlega samning við einka- fyrirtæki þar í landi, Associated British Food Ltd., um sameiginlegan rekstur á nýrri hveitimölunarstöð, sem á að verða ein hin stærsta í Evrópu. Stöð þessi, sem byrjað var a að frumkvæði samvinnuheildsöl- unnar, á að kosta rúmar tvær milj- ónir sterlingspunda, og við hana verður góð aðstaða til að geyma mik- ið magn bæði af korni og möluðu hveiti. Stöðin er nálægt höfninni í Leith, og er stefnt að því að taka hana í notkun síðar á þessu ári. — Það fylgir fréttinni, að báðir aðilar kanni nú leiðir til að auka samstarf sitt á fleiri sviðum, sem geti orðið báðum til hagsbóta. Samstarf um bókhald Sex kaupfélög í norðanverðum Noregi hafa nýlega tekið upp sam- starf sín á milli um að færa bók- hald sitt með tölvu. Það er fyrirtæki í Þrándheimi, sem sér um að undir- búa bókhaldsefnið til færslu, og síð- an er það fært mánaðarlega fyrir hvert kaupfélag um sig í tölvu, sem er í eigu Tækniháskólans í Þránd- heimi. Venjulegur vinnugangur er á þá leið, að á hverjum morgni eru vörureikningarnir gataðir inn á spjöld, sem síðan eru mánaðarlega send til Þrándheims ásamt öðrum bókhaldsgögnum. Þaðan kemur svo bókhaldið venjulega eftir örfáa daga, og gefur allar nauðsynlegar upplýs- ingar um hag og rekstursafkomu kaupfélaganna. Eru forráðamenn hinna sex kaupfélaga mjög ánægðir með þetta samstarf og benda á, hversu geysimikil framför þetta sé frá því sem áður var, þegar ársupp- gjöri var e. t v. ekki lokið fyrr en komið var nokkuð fram á næsta ár. Prófessor 1 samvinnufræðum ingfors er orðin allgömul, en árið 1957 var sett þar á stofn fyrir for- göngu samvinnusambandanna í land- inu sérstök samvinnumálastofnun, sem í fyrstu starfaði innan hagfræði- deildar skólans, en síðar innan fé- lags- og efnahagsmáladeildar hans. Hinn nýi aðstoðarprófessor hefur starfað við þá stofnun í nokkur ár, og er hann m. a. höfundur nokkurra bóka um samvinnuhreyfinguna í Finnlandi. Nýr skrifstofustjóri NAF í London Ráðstefna — Framh. af bls. 16. Hinn 1. júlí urðu skrifstofu- stjóraskipti á skrifstofu NAF i London. — Við starfinu tók Sví- inn Leif Wester- berg, og leysti hann af hólmi Norðmanninn Tor Teian. Westerberg Leif Wester- berg er 34 ára gamall og hefur hann áður unnið hjá sænska samvinnusambandinu, fyrst í söludeild Gislaved gúmíverk- smiðjanna, en frá 1961 á aðalskrif- stofu KF í Stokkhólmi, þar sem hann vann síðast við sölu á matarkexi og brauðgerðarvörum. Við háskólann í Helsingfors í Finn- landi hefur nýlega verið sett á stofn kennaraembætti í samvinnufræðum. Var skipaður í það dr. Vesa Laak- konen, og er hann aðstoðarprófessor í félags- og efnahagsmálum með sér- staka kennsluskyldu í samvinnufræð- um. Hugmyndin að kennslu í sam- vinnufræðum við háskólann í Hels- hún þjónar. Til þess hlýtur hún að kveðja ungt fólk í auknum mæli til forystu og framkvæmda- starfa. í trausti þess, að sam- vinnuhreyfingin ræki hlutverk sitt í framtíðinni, eins og hún hefur gert til þessa, og hafi sem fyrr almannaheill að leiðarljósi, heitir unga fólkið henni fullum stuðningi." HLYNUR 15

x

Hlynur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hlynur
https://timarit.is/publication/1407

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.