Hlynur - 15.07.1968, Page 16

Hlynur - 15.07.1968, Page 16
Ráðstefna um samvinnumál Dagana 8. og 9. júní sl. gekkst Samband ungra framsóknar- manna fyrir ráðstefnu á Akureyri um efnið „Samvinnuhreyfingin á síðari hluta tuttugustu aldar." Urðu þar miklar og merkar um- ræður, og þótt HLYNUR taki að öðru leyti ekki afstöðu til ein- stakra stjórnmálaflokka, þykir okkur rétt að segja hér stuttlega frá ráðstefnunni og birta ályktun hennar til fróðleiks fyrir sam- vinnumenn. Ráðstefnan hófst með stuttu ávarpi Baldurs Óskarssonar for- manns SUF, en síðan flutti Jakob Frímannsson kfstj. og stjórnar- formaður SÍS ávarp og setti ráð- stefnuna. Þá flutti Indriði Ketils- son bóndi að Ytra-Fjaili erindi, sem nefndist Úr sögu samvinnu- hreyfingarinnar. Síðan flutti Hjörtur H:artar frkvstj. erindið Viðhorf og vandi samvinnuhreyf- ingarinnar á líðandi stund, og Erlendur Einarsson forstjóri er- indi um Þróun samvinnuhreyf- ingarinnar meðal annarra þjóða. Að þessum erindum loknum svör- uðu þeir Hjörtur, Jakob og Er- lendur fyrirspurnum fundar- manna, sem urðu allmargar. Síð- ari dag ráðstefnunnar flutti Einar Olgeirsson fyrrv. alþm. erindi, sem hann nefndi Samvinnuhreyf- ing, þjóðfélagshugsjón og veru- leiki, og Indriði G. Þorsteinsson ritstjóri flutti erindi um Félags- og menningarhlutverk samvinnu- hreyfingarinnar. Að lokum flutti Halldór Halldórsson kfstj. á Vopnafirði stutt ávarp, þar sem hann ræddi um stöðu kaupfélag- anna í dag. Að erindunum loknum urðu allmiklar umræður, en að lokum samþykkti ráðstefnan eftirfarandi ályktun: „1. Félagsmálahreyfingar gegna mikilvægu hlutverki í lýðræðis- þjóðfélagi. Þær eru mótandi afl í baráttu þjóðarinnar fyrir bætt- um lífskjörum. Samtök eins og samvinnufélögin tryggja félags- legt jafnræði þegnanna og þátt- töku þeirra í sköpun eigin kjara og tryggja jafnframt áhrif þeirra á undirstööur efnahagslífsins, bæði í framleiðslu, verzlun og þjónustu. Bein áhrif fólksins á framkvæmd efnahagsaðgerða og menningarmála eru grundvöllur hins félagslega lýðræðis, sem er lífæð samvinnusamtakanna. Sam- vinnuhreyfingin hlýtur því aj gegna mikilvægu hlutverki í efnahags- og menningarmálum þjóðfélagsins. Til þess að sam- vinnuhreyfir.gunni takist að rækja þetta í framtíðinni, verður ríkisvaldið að viðurkenna hlut- verk hennar og tryggja rétt samvinnuhreyfingarinnar við skiptingu rekstrar- og fram- kvæmdaf j ármagns. 2. Samvinnuhreyfingin hefur reynzt brjóstvörn og sóknarafl hinna dreifðu byggða í framfara- baráttu þeirra. Nauðsynlegt er, að samvinnuhreyfingin njóti þeirra skilyrða, sem geri henni kleift að halda þessu forystu- hlutverki áfram, bæði innan vé- banda byggðaáætlana og við fjár- magnsfyrirgreiðslu til einstakra verkefna. 3. Ráðstefnan vekur athygli samvinnumanna á því, að ýmsar þýðingarmiklar starfsgreinar hafa ekki verið skipulagðar eftir leið- um samvinnuhreyfingarinnar, bæði í iðnaði og sjávarútvegi, og bendir á möguleika á stofnun samvinnufélaga innan þessara greina í skipulagstengslum við kaupfélögin og Samband ísl. sam- vinnufélaga. 4. Ráðstefnan fagnar því sam- starfi, sem tekizt hefur milli SÍS og ASÍ um bréfaskóla, og hvet- ur til aukins samstarfs samvinnuhreyfingarinnar og verkalýðshreyfingarinnar á sviði félags- og efnahagsmála til hags- bóta fyrir alþýðu til sjávar og sveita. í því skyni verði komið á samstarfsnefndum, sem taki til meðferðar frekari samvinnu sam- takanna. 5. Ráðstefnan leggur áherzlu á, að stóraukinn verði félagafjöldi í KRON, og að efld verði eftir mætti samvinnuverzlun á höfuð- borgarsvæðinu með nýjum liðs- mönnum. 6. Samvinnuhreyfingin er al- mannahreyfing, sem hvorki má staðna né slitna úr lífrænum tengslum við þann fjölda, sem Framhald á bls. 15. H L Y N U R Blað um samvinnumál 7. tbl. 16. árg. júlí 1968 Hlynur er gefinn út af Sambandi íslenzkra samvinnufélaga, Starfsmannafélagi SÍS og Félagl kaupfélagsstjóra. Ritstjórar eru Sigurour A. Magnússon (ábm.) og Eysteinn Slgurðsson. Auk þeirra eru í ritnefnd Ragnar Jóhannesson og Gunnar Sveinsson. Ritstjórn og afgrelðsla eru hjá Fræðsludeild SÍS, Sambandshúsinu, Reykjavík. Verð: kr. 100.00 árgangurlnn, kr. 10.00 heftlð. Kemur út mánaðarlega. — Prentun: Prentsmiðjan Edda hf. 16 HLYNUR

x

Hlynur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hlynur
https://timarit.is/publication/1407

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.