Fréttablaðið


Fréttablaðið - 03.01.2012, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 03.01.2012, Qupperneq 4
3. janúar 2012 ÞRIÐJUDAGUR4 Í yfirlitsgrein yfir leiklistarárið sem birtist í blaði gærdagsins láðist að geta höfundar, Elísabetar Brekkan. haldið til haga SAmfélAGSmál Vanski l hjá Félagsbústöðum stefna í að verða yfir 100 milljónir í ár eða 4 pró­ sent af veltunni. Húsaleigan hækk­ ar ársfjórðungslega í samræmi við vísitölu til verðtryggingar en húsa­ leigubæturnar hafa verið óbreytt­ ar frá miðju ári 2008, að sögn Sigurðar Kr. Friðrikssonar, fram­ kvæmdastjóra Félagsbústaða. Hann segir leigu á fjögurra her­ bergja íbúð hjá Félagsbústöðum hafa hækkað um 21,6 prósent frá því í október 2008. Greiðslubyrðin hafi hins vegar hækkað um 60 til 70 prósent vegna þess að bæturnar hafi ekki fylgt verðlagi. Árið 2008 tvöfölduðust vanskilin frá árinu 2007 og fóru úr 0,7 pró­ sentum af veltunni í 1,5 prósent. „Við þurftum að gjaldfæra 12 milljónir 2007. Þá var þetta komið í ótrúlega gott horf. Árið 2008 urðu vanskilin hins vegar tæpar 30 milljónir,“ segir Sigurður. Árið 2009 voru vanskilin komin í 52 milljónir sem voru 2,1 prósent af veltunni og árið 2010 fóru van­ skilin í 86 milljónir eða 3,6 prósent af veltunni. Sigurður kveðst gera sér vonir um að greiðslubyrði leigutaka hjá Félagsbústöðum lækki þegar nýju bótakerfi verði komið á. „Það stendur fyrir dyrum að endurskoða bótakerfið. Hug­ myndin er að færa á milli vaxta­ bóta og húsaleigubóta til þess að efla leigumarkaðinn þannig að fólk standi jafnt að vígi hvort sem það kaupir húsnæði eða leigi það. Ég vona að þetta verði komið til framkvæmda árið 2013 að loknum undirbúningi á næsta ári.“ Það er mat Sigurðar að skilin ættu að verða betri þegar bótunum hefur verið jafnað saman. „Fólk reynir auðvitað alltaf að borga leiguna. Það skipt­ ir alla máli að hafa þak yfir höf­ uðið. Leigutakarnir hjá okkur eru með lágar tekjur og auðvitað höfðu þeir lítið á milli handanna árið 2007 þegar skilin voru betri. En minnkandi stuðningur vegur töluvert og kemur fram í vanskil­ um. Þegar fólk er svo orðið tvo til þrjá mánuði eftir á með leiguna er mjög erfitt að ná til baka.“ Sigurður segir þrautalend­ inguna vera að bera fólk út. „Allt er samt reynt í samvinnu við vel­ ferðarsvið borgarinnar til að ekki komi til þess. Oft er valið á milli matar og húsaleigu hjá leigjendum. Ef það sýnir sig hins vegar að fólk eigi að geta borgað leiguna getur það lent í því að fá ekki þann stuðning sem það biður um.“ Í ár hafa sjö verið bornir út með aðstoð sýslumanns vegna van­ goldinnar leigu, að sögn Sigurðar. Hann segir það jafnframt koma fyrir að fólk fari sjálft þegar það er komið í mikil vanskil. „Við fáum bara lyklana,“ segir hann. Útburðum vegna húsreglna­ brota hefur farið fækkandi og voru þeir fimm á þessu ári. Eng­ inn þeirra var fyrir tilstuðlan sýslumanns. Félagsbústaðir eiga nú og reka um 2.150 íbúðir. Á biðlista eftir íbúð eru 714. ibs@frettabladid.is Vanskil hjá Félagsbústöðum stefna í rúmar 100 milljónir Vanskilin hjá Félagsbústöðum stefna í að verða yfir 100 milljónir króna í ár. Húsaleigan hefur hækkað mikið en húsaleigubætur verið óbreyttar frá miðju ári 2008. Vanskilin 0,7% af veltu 2007 en 4% í ár. í vanskilum Oft er valið á milli matar og húsaleigu hjá leigutökum, að sögn Sigurðar Kr. Friðrikssonar, framkvæmdastjóra Félagsbústaða. FréttaBlaðið/gva VEÐURSPá alicante Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen gautaborg Kaupmannahöfn las Palmas london Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur heimurinn Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 17° 7° 8° 6° 9° 5° 6° 6° 21° 11° 18° -1° 8° 2° 12° 15° 4°á morgun Stíf Na-átt Sa- og v-til, annars mun hægari. fimmtudagur vaxandi Sa-átt S- og v- til um kvöldið. 0 0 1 -5 -3 -8 -2 -2 -2 -4 -3 5 10 7 5 3 6 5 6 9 5 8 -3 -3 -4 -3 -5 -2 -2 -4 -4 -3 norðanáttir verða ríkjandi á landinu fram á fimmtudagskvöld en þá gengur í stífa suðaustanátt með úrkomu um allt land á föstudag og hlánar sunnan og vestanlands. Fram að því verður yfir- leitt fínt veður. elísabet margeirsdóttir veður- fréttamaður AfGAnIStAn, AP Fimmtán ára afgönsk stúlka, Sahar Gul, verður send til Indlands þar sem hún fær aðhlynningu og læknismeðferð. Hún hafði mánuðum saman sætt pyntingum af hálfu tengdafólks síns, bæði tengdamóður og mág­ konu, sem reyndu að þvinga hana út í vændi. Málið hefur vakið mikla athygli í Afganistan og gengið fram af fólki, enda þótt ofbeldi gegn konum sé algengt þar í landi. Hamid Karzai forseti segir að þeim sem þarna stóðu að verki verði refsað. „Þetta er ofbeldi sem ekki er hægt að sætta sig við á 21. öld­ inni,“ segir Sediq Sediqi, tals­ maður afganska innanríkisráðu­ neytisins. „Við erum þakklát frænda hennar.“ Það var frændi stúlkunnar sem hringdi í lögreglu í síðustu viku og lét vita af því, sem var í gangi. Lögreglan fór á vettvang og frelsaði stúlkuna úr kjallara á heimili eiginmanns hennar. Sediqi sagði ekki hvers konar meðferð hún muni fá á Indlandi, en algengt er að Afganar fari heldur á sjúkrahús í Pakistan eða Indlandi frekar en í heimalandi sínu, þar sem læknisþjónusta er af skornum skammti. - gb Ofbeldi gegn fimmtán ára stúlku vekur óhug í Afganistan: Fer á sjúkrahús á Indlandi sahar gul Sætti mánuðum saman pyntingum af hálfu tengdafólks síns, sem reyndi að þvinga hana út í vændi. NOrdicPhOtOS/aFP DAnmöRk Þrír af hverjum fjórum forstjórum og framkvæmdastjór­ um danskra fyrirtækja spá því að efnahagskreppan í Danmörku endist til ársins 2014. Tæplega fimmtungur telur þó að henni ljúki á næsta ári. Þetta eru niðurstöður skoðana­ könnunar, sem gerð var fyrir danska viðskiptablaðið Børsen „Það leikur enginn vafi á því að dimmskýjað verður áfram yfir Danmörku,“ hafði Børsen eftir Jørgen Bardenfleth, fram­ kvæmdastjóra Microsoft. - gb Danskir forstjórar: Spá kreppunni áfram í tvö ár BílAR Steinolía kláraðist á sumum bensínstöðvum á gamlársdag þegar fjöldi fólk keypti hana í miklu magni. Eftir áramótin hækkaði steinolía um 39 prósent þegar á hana lagðist sama olíu- gjald og lagt er á bensín og dísil- olíu, auk hækkunar á vöru- og kolefnagjöldum ríkisins. Sala á steinolíu hefur aukist síðustu ár eftir því sem fleiri nota hana til að knýja ökutæki sín, ýmist eintóma eða blandaða í dísilolíu. Mátti á gamlársdag sjá menn fylla á stóra jeppa sína og nokkrir mættu á bensínstöðvar með olíutunnur til að fylla á. Steinolíu til húshitunar er hægt að kaupa á sama verði og litaða dísilolíu. - óká Gjald lagt á steinolíu: Olía hömstruð á gamlársdag olíuhamstur víða mátti sjá steinolíu hamstraða á gamlársdag áður en á hana lagðist olíugjald. MYNd/hugi hrEiðarSSON Bílveltur í hálku Ökumaður velti bifreið sinni á Bisk- upstungnabraut í Árnessýslu í gær. að sögn lögreglunnar á Selfossi slasaðist enginn alvarlega. Önnur bílvelta varð skammt frá vík í Mýrdal. Fjórir voru í bílnum en enginn slasaðist alvarlega. lögreglufréttir gengið 02.01.2012 gjaldMiðlar KauP Sala hEiMild: Seðlabanki Íslands 217,376 GenGisvísitAlA krónunnAr 122,38 122,96 189,69 190,61 158,3 159,18 21,294 21,418 20,421 20,541 17,741 17,845 1,5901 1,5995 187,96 189,08 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra dönsk króna Norsk króna Sænsk króna japanskt jen Sdr auglÝsingadeildir fréttaBlaðsins – auglÝsingastJÓri: jón laufdal jonl@frettabladid.is almennar sími 512-5401: Einar davíðsson einar.davidsson@365.is, guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, hlynur Steingrímsson hlynurs@365.is, laila awad laila@365.is, Örn geirsson orn.geirsson@365.is allt sími 512-5402: jóna hafsteinsdóttir jmh@365.is, Brynja gunnarsdóttir brynjag@365.is, Snorri Snorrason snorris@365.is sérBlöð sími 512-5016: Benedikt jónsson benediktj@365.is, Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Ívar hansen ivarorn@365.is raðauglÝsingar /fasteignir sími 512- 5403: hrannar helgason hrannar@365.is, viðar Pétursson vip@365.is ÞJÓnustuauglÝsingar sími 512-5407: Sigurlaug aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, arna Kristinsdóttir arnarut@365.is, guðný gunnlaugsdóttir gunny@365.is, Sigrún guðmundsdóttir sigrunh@365.is kYnningarstJÓri: Einar Skúlason einar.skulason@365.is Ný námskeið hefjast 9. janúar Faxafeni 14 • www.heilsuborg.is Ekki hlaupa í spik hlauptu í Heilsuborg! Skráning hafin í síma 560 1010 eða á mottaka @heilsuborg.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.