Fréttablaðið - 03.01.2012, Síða 12

Fréttablaðið - 03.01.2012, Síða 12
3. janúar 2012 ÞRIÐJUDAGUR12 UtAnRíkIsmál Viðræður við Evrópu­ sambandið (ESB) um aukningu á tollfrjálsum útflutningskvóta Íslands á lambakjöti frestast fram á nýja árið. Snemmsumars var frá því greint að þreifingar væru hafn­ ar um aukningu kvótans og svo bárust af því fregnir í septem­ ber að könnunarviðræður ættu að hefjast í þeim mánuði. Samkvæmt upplýsingum frá utanríkisráðuneytinu er enn beðið umboðs til viðræðna frá fram­ kvæmdastjórn ESB. Búist hafi verið við því fyrir áramót, en nú sé talið að það verði í janúar. Skortur á lambakjöti í heimin­ um olli á árinu verðhækkunum og vöruskorti sem gerði að verkum að útflutningur héðan varð hag­ kvæmari en verið hafði. Gildandi samningur um sölu landbúnaðar­ afurða milli ESB og Íslands frá árinu 2007 kveður á um að héðan megi flytja tollfrjálst til landa sambandsins 1.850 tonn af lamba­ kjöti, 380 tonn af skyri og 350 tonn af smjöri. Á móti mega ríki ESB selja hing­ að án tolla um 100 tonn af nauta­ kjöti og 200 tonn af svína­ og ali­ fuglakjöti, auk osta og unninna kjötvara. Lagt var upp í viðræðurnar við framkvæmdastjórn sambandsins á þessu ári með það fyrir augum að rúmlega tvöfalda útflutning lambakjöts héðan, færa tollkvótann í 4.000 tonn. Í viðræðum á nýju ári kemur svo væntanlega í ljós hversu mikið þyrfti á móti að heimila aukningu á innflutningi á landbún­ aðarvörum frá ríkjum ESB. Í sumar sagði Sindri Sigurgeirs­ son, formaður Landssamtaka sauð­ fjárbænda, að bændur treystu sér til að auka framleiðslu sína um 10 til 20 prósent á næstu fimm árum. Slík framleiðsluaukning hafi verið til umræðu hjá bænd­ um vegna horfa á auknum útflutn­ ingi. Kæmi til aukningar yrði hins vegar lögð áhersla á að auka sjálf­ bærni í framleiðslunni, ekki ætti að ganga á landið. Í sama streng tók Ágúst Andrés­ son, forstöðumaður hjá Kaupfélagi Skagfirðinga, sem taldi framfarir í beitarstýringu og á öðrum sviðum þýða að bændur gætu aukið fram­ leiðslu sína umtalsvert. Aukningin yrði þó aldrei nema dropi í hafið í samanburði við heildarinnflutning ESB, sem flytti inn um 300 þúsund tonn af kjöti á ári hverju. olikr@frettabladid.is tonn af kjöti má flytja toll- frjálst inn frá löndum ESB. 300 VIÐskIptI Notkun V.D. Hönnunar­ húss á heitunum Volcano Design og Volcano Icelandic Design brýtur ekki lög um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetn­ ingu, segir Neytendastofa. Volcano Iceland ehf. leitaði til Neytendastofu og taldi að notkun heitanna gæti valdið ruglingi. „Orðið volcano þýðir eldfjall eða eldstöð og ljóst að það heiti er mjög einkennandi fyrir Ísland,“ segir í umfjöllun Neytendastofu og talið útilokað að heitið feng­ ist skráð sem orðmerki enda hafi bæði fyrirtækin fengið heitið skráð sem myndmerki hjá Einka­ leyfastofu. „Heitið getur því ekki notið einkaréttar.“ - óká Úrskurðað í „volcano“ deilu: Eldfjöll lýsandi fyrir landið GrímsvatnaGos Í úrskurði Neytend- stofu segir að eldfjöll og eldstöðvar séu einkennandi fyrir landið. Fréttablaðið/Vilhelm neytenDUR Neytendasamtökin eru ósátt við að vera skrifuð fyrir greinargerð um fyrirhugaða rækt­ un á erfðabreyttum lífverum á Reykjum í Ölfusi. Á plagginu eru gerðar fjölmargar athugasemdir við að heimila skuli ræktunina, líkt og samtökin greina frá á heimasíðu sinni. Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna, segist aldrei hafa samþykkt greinargerð­ ina, þó svo að hún hafi verið til umfjöllunar af hálfu samtakanna. „Þetta eru vinnubrögð sem ekki á að ástunda. Þegar margir aðil­ ar eru að samræma sín sjónarmið verður að ræða við alla og það var ekki gert,“ segir Jóhannes. „Þetta er plagg sem er okkur algjörlega óviðkomandi.“ Neytendasamtökin fengu sent upphaflegt skjal á sínum tíma og er enn með það til umfjöllunar. Jóhannes segir enga afstöðu hafa verið tekna í málinu og því hafi það komið honum á óvart þegar hann sá að samtökin voru skrifuð fyrir því. „Við getum tekið undir hluta athugasemdanna, meðal ann­ ars varðandi kynningu málsins í heild,“ segir Jóhannes. „Og ég er ekki að halda því fram að þetta sé alvont plagg. En málið var aldrei nægjanlega vel borið undir okkur þar sem við áttum að vera einn aðilinn að þessu.“ - sv Greinargerð um ræktun erfðabreyttra lífvera: Ekki borin undir Neytendasamtökin ErfðabrEytt ræktun Neytendasamtökin eru ósátt við að vera skráð sem umsagnaraðilar á greinargerð um ræktun erfðabreyttra lífvera. sVeItARstJóRnIR „Það er ekki þess virði að berjast fyrir fyrirkomu­ lagi sem kostar forseta fjárhags­ legar fórnir og hugnast ekki nema helmingi bæjarstjórnar,“ segir Sigurborg Kr. Hannesdóttir, for­ seti bæjarstjórnar Grundarfjarð­ ar, í bókun á síðasta fundi bæjar­ stjórnar þar sem hún baðst undan auknum starfsskyldum. Sjálfstæðismenn í bæjarstjór­ ninni sögðust ekki vita í hverju þau auknu verkefni væru fólgin sem urðu til þess fyrir um ári að laun forseta bæjarstjórnar voru tvöfölduð. „Eins og ber­ lega hefur komið í ljós þá fór þessi launahækkun verulega fyrir brjóstið á okkur, sérstaklega í ljósi þess að við höfum stað­ ið vel við bakið á ykkur í þeim niðurskurði sem bæjarfélagið óhjákvæmilega hefur þurft að ganga í gegnum,“ bókuðu fulltrúar Sjálfstæðisflokks. Sigurborg, sem er fulltrúi meiri­ hluta L­lista Samstöðu, sagði að með viðbótarverkefnum hafi vinna forseta farið upp í 40 til 50 prósenta starf á vetrarmánuðum. Laun bæjarstjórans hafi verið lækkuð sem nam viðbótargreiðslu til hennar. „D­listi hefur ítrekað lýst óánægju sinni með þetta fyrir­ komulag og bendir flest til þess að hann muni halda því áfram út kjör­ tímabilið,“ bókaði forsetinn sem baðst undan hinum auknu verkefn­ um. Hún kvaðst gera ráð fyrir að bæjarráð taki upp starfslýsingu og kjör bæjarstjóra. - gar Forseti bæjarstjórnar í Grundarfirði lætur undan þrýstingi frá minnihlutanum: Biðst undan auknum verkefnum siGurborG kr. HannEsdóttir heIlsA Þeir sem neyta fæðu sem sem er rík af vítamínum eða omega-3 fitusýrum eru ólíklegri til að verða fyrir heilarýrnun af því tagi sem tengd er við Alz- heimer-sjúkdóminn en þeir sem neyta minna af slíkum næringar- efnum. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn sem framkvæmd var af Heilsu- og vísindaháskólanum í Portland í Bandaríkjunum. Omega 3 fitusýrur og C- vítamín má aðallega finna í fiski. Ávextir og grænmeti eru rík af B-, C- og E-vítamínum. Fitusýrur og vítamín: Fyrirbyggja heilarýrnun í sláturHúsinu Viðræður við evrópusambandið um að auka tollfrjálsan kvóta á lambakjöti sem íslenskir bændur flytja út úr 1.850 tonnum í 4.000 tonn komust ekki af stað á árinu sem er að líða. Fréttablaðið/GVa Ráð gert fyrir fundi um kjötkvóta í mánuðinum Viðræður við ESB um aukningu á tollkvótum lambakjöts sem boðaðar voru í haust hafa tafist. Stefnt er að því að tvöfalda kvótann, úr 1.850 tonnum í 4.000 tonn. Heimila gæti þurft aukinn innflutning á móti. Birt án ábyrgðar Jólahappdrætti Sjálfsbjargar Dregið var 24. desember 2011 Vinningar og vinningsnúmer. 1. Kia Picanto EX 1,2 að verðmæti kr. 2.597.777,- 13344 2. - 11. iPhone 4S - 16 GB, hver að verðmæti kr. 169.990,- 113 6103 7112 10157 16785 1117 6265 7121 12998 19601 12. - 21. Sony 40” HD sjónvarp, hvert að verðmæti kr. 159.990,- 1691 9794 10728 15492 22228 2903 10233 13107 16193 23055 22. - 31. Bensínúttektir, hver að verðmæti kr. 100.000,- 7576 13160 13212 18151 19185 11959 13163 17586 18224 23315 32. - 55. Vöruúttektir að eigin vali, hver að verðmæti kr. 60.000,- 513 6932 11039 13182 16185 20041 3845 8164 12599 13617 16407 22998 4628 8175 12744 15325 19267 23143 6816 10601 12867 15995 19836 24185 Þau leiðu mistök urðu við útgáfu happdrættismiða í Jólahappdrætti Sjálfsbjargar að sendir voru út nokkrir miðar með hærra númeri en 25.000 en einungis var dregið úr þeim fjölda miða. Þeir sem hafa greitt slíkan miða eru hvattir til að hafa samband við skrifstofu Sjálfsbjargar í síma 899 0065 til að fá miðann endurgreiddan. Handhafar vinningsmiða eru vinsamlega beðnir um að framvísa þeim á skrifstofu Sjálfsbjargar landssambands fatlaðra að Hátúni 12, Reykjavík, sími 5500360. Byrjað verður að greiða út vinninga þann 11. janúar nk. Vinningaskrá er einnig birt á heimasíðu samtakanna, sjalfsbjorg.is og textavarpi RÚV. Sjálfsbjörg landssamband fatlaðra þakkar landsmönnum veittan stuðning. Sjálfsbjörg landssamband fatlaðra þakkar landsmönnum veittan stuðning. strandvörður í baði Þessi strandvörður hvíldi sig í heitu baði á strönd í helmfurth í Þýskalandi eftir að hafa synt í köldu vatninu. Um 60 sundmenn tóku þátt í vetrarbaðinu, sem er árlegur viðburður fyrsta dag ársins. Nordicphotos/aFp

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.