Breiðholtsblaðið - apr. 2017, Side 4

Breiðholtsblaðið - apr. 2017, Side 4
Þorvaldur Daníelsson stjórnmálafræðingur og MBA hefur unnið að eftir tektar verðu verkefni undanfarin ár. Nefnist það Hjólakraftur og byggist á því að tengja ungmenni við hjólreiðar og nota hjólreiðar- nar til þess að koma fólki af stað. Hann er kominn í samstarf við borgarhluta, sveitarfélög víða um land og einnig fyrirtæki sem sýnt hafa þessu framtaki hans verð- ugan áhuga og stuðning í verki. Keppendur á vegum Hjólarafts hafa meðal annars tekið þátt WOW Cyclothon og nú er hann að vinna að því að fara af stað með eitt af verkefnum Hjólakrafts í Breiðholti. Þorvaldur á sjálfur rætur í Breiðholti því hann fluttist með foreldrum sínum úr Fossvogi- num í Seljahverfið 10 ára gamall. „Mótunarárin mín voru öll þar og ég átti marga vini og kunningja í Breiðholtinu, ekki síður í Fellunum en í Seljunum. Þetta var á þeim árum þegar Breiðholtið var að mótast. Mikið var af krökkum á svæðinu á þessum tíma og nýjungar í félagsstarfinu voru að koma fram. Ég var mikið í Fellahelli þar sem margar nýjungar í félagsstarfi ungmenna voru reyndar og starfsliðið þar á þessum tíma náði afskaplega vel til okkar. Þar voru strákar á borð við Þór Eldon, Sjón og Halldór Þorgeirsson faðir Dóra DNA að störfum. Sverrir faðir Sveppa var þar einnig um tíma og fleiri. Í Breiðholtinu kynntist ég hjólreiðum vegna þess að maður hjólaði út um allt. Hjólreiðatímabil mitt hið fyrra var þarna efra frá því ég var 10 ára og fram til þess að ég fékk bílpróf. Þá tók bíllinn við og hjólið fékk hvíld. Síðar fór ég að huga að því aftur. Til hvers að eyða öllu í bíl, bensín og tryggingar þegar maður gat farið margra ferða á hjóli. Það gæti líka verið skynsamlegt að eiga aðeins meira af peningum, segir Þorvaldur.“ Hjólið nokkuð lengi í fríi En hjólið var nokkuð lengi í frí hjá þér. „Já ég var ekkert sérstak- lega að sinna því fyrr en í byrjun þessa áratugar – eftir hrun getum við sagt þótt það tengist ekki efnahagslegum sveiflum sérstak- lega. Það bar þannig til að ég var að vinna hjá Krafti sem er eins og margir þekkja stuðningsfélag við ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein. Hluti af því starfi er í formi hreyfingar og útvistar fyrir ungt fólk á aldrinum 18 til 40 ára sem greinst hefur með krabbamein. Auk þess setti ég á laggirnar forvar- narverkefni þar sem verið var að fást við vanda ungmenna sem voru að tapa baráttunni við lífstílssjúk- dóma af ýmsu tagi. Ég heillaðist af þessu verkefni og þegar ég hætti störfum hjá Krafti og fór aftur í nám tók ég þetta verkefni með mér, í fullu samráði við stjórn Krafts. Hjólreiðar og félagsskapur fara saman Hjólakraftur felst í því að fá krakka til þess að stunda hjól- reiðar í skipulögðu formi. Þetta er unnið þannig að hjólreiðarnar og félagsskapur fara saman.“ Nú hafi þið farið í langar ferðir jafnvel um allt land. „Já – við erum búin að taka þátt í WOW Cyclothon sem er hjólreiðakeppni hringinn um landið á reiðhjólum á vegum flugfélags Skúla Mogesen í nokkur skipti. Í fyrsta skiptið fór ég með tíu manna lið, sex krakka og fjóra fullorðna, svo fór ég með fjögur 10 manna lið og í fyrra með 13 slík lið. Þótt ég segi sjálfur frá þá hefur þetta gengið vel og nú hefur það undið verulega upp á sig þannig að fleiri og fleiri taka þátt í þessu. Þessi ferð okkar vakti áhuga fjölmiðla og við fengum viðtöl og aðra kynningu á starfinu. Þetta spurðist út og fleiri og fleiri fengu áhuga og þá ekki bara á WOW Cyclothon hringferð- inni heldur aðallega hinu almenna félagsstarfi sem Hjólakraftur hefur byggt upp í kringum reiðhjólið. Ég áttaði mig á að ekki var um marga kosti að ræða.“ Samningar við sveitarfélög Þorvaldur segir að þegar maður hafi lofað einhverju verði að standa við það. „Mér fannst ég hafa lofað krökkunum þessu og því ætti ég því ekkert val. Ég yrði að halda áfram. Þetta hefur líka gengið framar fremstu vonum og í dag er svo komið að fyrirspurnum rignir inn. Ég fæ stöðugt spurningar frá fólki út um allt land hvort Hjólakraftur sé ekki á leiðinni í byggðina þeirra. Þetta er eins og hvert annað félag opið fyrir alla. Ég gerði samning við Grindavíkurbæ og Sveitar- félagið Árborg og er með hópa á báðum þessum stöðum. Ég er einnig í samstarfi við Sandgerði, Sveitarfélagið Garð, Ungmenna- félagið Þristinn á Fljótsdalshéraði, Höfrung á Þingeyri og Samherja sem er ungmennafélag í Eyjafirði innan Akureyrar. Þá get ég nefnt borgarhluta í Reykjavík, samstarf við Hagaskóla, við erum í Gufu- nesbæ í Grafarvogi, Norðlingaskóla og nú erum við að hefja starfsemi í mínum gamla heimabæ Breið- holtinu. Það er líka á döfinni að efna til hjóladags í Vesturbænum innan tíðar.“ Hjólakraftur kominn til að vera Hjólakraftur er orðið áhrifa- ríkur félagsskapur sem farinn er að teygja anga sín út um allt land og umsvifin orðin mikil. En hvernig gengur að fjármagna svo viðamikla starfsemi. „Það er auðvitað höfuðverkur. Ég hef verið svo heppinn að hafa fengið marga til þess styðja við það. Að öðrum kosti væri þetta ekki hægt. Þegar við höfum tekið þátt í WOW Cyclothon hafa fyrirtæki lánað okkur rútur sem fylgja þátt- takendum og fylgdarliði þar sem fólkið getur hvílst og sofið. Einnig flutningabíla sem flytja kostinn því við höfum alltaf haft allt nesti og viðurgjörning með okkur en ekki keypt neitt á sölustöðum um landið. Ég legg mikið upp úr góðu og heilbrigðu fæði í þessum ferðum. Það er hluti af prógramminu.“ Er Hjólakraftur kominn til þess að vera. „Miðað við þær undirtektir sem þetta starf hefur fengið bæði hjá þátttakend- um og stuðningsaðilum þá fæ ég ekki séð annað. Fyrir mörgum sem taka þátt í þessu er mikilvægt að sigrast á sjálfum sér. Eins og ég gat um miðaðist þetta að nokkru leyti við að ná til ungmenna sem átt hafa í erfiðleikum með sjálf sig. Lokast inn í einhverju – til dæmis tölvu- leikjum eða öðru sem tekið hafa hug þess yfir þótt margir fleiri hafi síðan komið til þátttöku.“ Ég sé mikinn mun En sér Þor valdur mun á ungmennum sem hafa átt í erfið- leikum með sjálf sig eftir að þau fóru að taka þétt í Hjólakrafti. „Já sé mun og oft mikinn. Krakkar hafa til dæmis tekið miklum framförum í námi. Krakkar sem voru næstum hætt að sinna því eru komin á fullt á ný og til þess var leikurinn upphaflega gerður. Útivera og áreynslan og ekki síst félagsskapur- inn hefur þessi góðu áhrif. Því er ekkert að leyna. Þetta auðveldar krökkum að stýra hugsun sinni. Svo tel ég það vera góðan bónus að hjóla úti í náttúrunni og upplifa hana á nýjan hátt. En aðal mark- miðið er að fólk sigrist á sjálfu sér. Að brekkan sem getur verið mörgum svo erfið verði auðveld.“ 4 Breiðholtsblaðið APRÍL 2017 V i ð t a l i ð Markmiðið er að fólk sigrist á sjálfu sér Þorvaldur Daníelsson og að sjálfsögðu með reiðhjólahjálminn. - segir Þorvaldur Daníelsson sem byggt hefur starf Hjólakrafts upp Það er hjólað vetur sem sumar oftast tvisvar í viku og kapparnir láta smá snjó ekki stöðva sig. Hluti af hjólalífinu er að njóta útiveru og náttúrunnar. Opið alla daga frá kl. 11 til 23. Lóuhólar 4,nálægt Dominospizza Sími: 557 1414 Annast viðhald og viðgerðir fasteigna fyrir húsfélög, einstaklinga og fyrirtæki. Gluggar – Gler – Glerlistar – Opnanleg fög Þakjárn – Þakkantur – Þakrennur – Niðurföll Sólpallar – Skjólveggir – Girðingar Skápar – Innréttingar – Parkett – Flísar Sími: 897 4425 Helgi smiður

x

Breiðholtsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Breiðholtsblaðið
https://timarit.is/publication/1113

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.