Breiðholtsblaðið - apr. 2017, Side 18

Breiðholtsblaðið - apr. 2017, Side 18
18 Breiðholtsblaðið APRÍL 2017 Meistaraflokkur Leiknis á Spáni Meistaraflokkur Leiknis fór í æfingaferð til Spánar fyrir páska. Var ferðin liður í undirbúningi fyrir tímabilið í Inkasso- deildinni sem hefst von bráðar. Liðið æfði við glæsilegar aðstæður í Oliva Nova sem er skammt frá Valencia. Fyrsti leikur Leiknis í Inkasso-deildinni er gegn Keflavík á Leiknisvelli 5. maí nk. Við hvetjum alla til að koma og styðja drengina okkar sem án efa verða sólbrúnir og í top- pformi. Áfram Leiknir – Stolt Breiðholts! Í tengslum við verkefnið Heilsueflandi Breiðholt vinnur þjónustumiðstöð Breiðholts að því að bæta tannheilsu barna í Breiðholti í samstarfi við Heil- sugæslu höfuðborgarsvæðis og Embætti landlæknis. Tan- nverndarverkefnið felur í sér að koma á góðum venjum varðandi mataræði og munnhirðu heima og í leikskólanum og stuðla þannig að betri tannheilsu barna og þar með að betri tannheilsu síðar á ævinni. Kynning á verkefninu hefur átt sér stað í öllum leikskólum í Breiðholtinu og taka leikskólar þátt í öllu eða hluta af verkefninu. Verkefnið felur í sér að börn eru tannburstuð í leikskólunum eftir hádegismatinn. Einnig kemur tannlæknir í heim- sókn til að meta tannheilsu barnanna og veitir foreldrum barnanna aðstoð við skráningu barna sinna hjá heimilistannlækni. Fræðsla fyrir foreldra um mikilvægi þess að hugsa vel um tennur barna sinna er hluti af verkefninu. Regluleg kynning á verkefninu til leikskólastjóra á sér stað með það markmið að allir leikskólar taki þátt í tannburstun barna fyrir árslok 2017. Í vetur fengu öll leikskólabörn í Breiðholti tannbursta að gjöf til að taka með sér heim ásamt upplýsingum til foreldra um mikilvægi tannburstunar. Foreldrar gegna lykilhlutverki Foreldrar gegna lykilhlutverki í tannhirðu barna sinna og mikilvægt er að þeir bursti tennur barna sinna tvisvar á dag með flúortannkremi, eftir morgunmat og mjög vel áður en farið er að sofa. Tannþráð á að nota reglulega frá 3ja ára aldri. Leikskólar sem taka þátt í verkefninu Starfsfólk á þeim leikskólum sem taka þátt í að bursta tennur barna eftir hádegismat vinna ómetanlegt starf í að stuðla að betri tannheilsu barna. Leikskólarnir fá tannbursta og tannkrem í gegn um verkefnið sem hefur hlotið styrk úr lýðheilsusjóði. Þeir leikskólar sem taka að fullu þátt í verkefninu með skimun tannlæknis og daglegri tannburstun barnanna eftir hádegismat eru Hólaborg, Holt, Ösp, Vinaminni, Seljaborg og Suðurborg. Aðrir leikskólar í hverfinu taka þátt með skimun tannlæknis á tannheilsu barnanna og fræðslu til foreldra. En af hverju áhersla á tannvernd í Breiðholti ? Hærra hlutfall leikskólabarna í Breiðholti eru með skemmdar tennur en annars staðar á landinu. Börn af erlendum uppruna eru með þrisvar sinnum fleiri tennur skemmdar en íslensk börn. Í Breiðholti er hátt hlutfall íbúa af erlendu bergi brotnu og því forvarnastarfið í tannheilsu á leikskólum afar mikilvægt. Eftirfylgni á stöðu tannheilsu hjá börnunum sem eru tannburstuð í leikskólunum sýnir jákvæðar niðurstöður þar sem dregur úr tannskemmdum barnanna. Tannlæknir starfar með leikskólunum Tannheilsa er hluti af verkefninu Heilsueflandi Breiðholt og því framsækið framtak að geta boðið upp á að tannlæknir starfi með leikskólum í hverfinu. En auk þess að meta tannheilsu barnanna og veita aðstoð við skráningu barna hjá heimilistannlækni, þá undirbýr hann og kynnir hvernig standa á að tannburstun eftir hádegismat í leikskólum. Heilsueflandi Breiðholt hefur látið gera kynningarmyndband um hvernig tannburstun fer fram í leikskólunum. Uppbyggilegur árangur með tannverndarverkefninu í leikskólum Kannanir hafa leitt í ljós þá staðreynd að hægt er að fækka tannskemmd- um, minnka kostnað við tannviðgerðir og gera fyrstu heimsókn til tannlækn- is að ánægjulegri upplifun með því að kenna og koma á góðum venjum varðandi mataræði og munnhirðu heima og í leikskólanum. Samvinna heimila og leikskóla stuðlar þannig að enn betri tannheilsu barna sem leiðir til betri tannheilsu síðar á ævinni. Með því að koma í veg fyrir tannskemmdir með einfaldri aðgerð á leikskólum er hægt að spara mikla fjármuni sem annars færu í tannviðgerðir með þeim óþægindum sem þeim fylgja fyrir barnið. Þátttaka í tannheilsuverkefninu nái hámarki í lok árs Í markmiðum verkefnisins Heilsueflandi Breiðholt er stefnt að því að allri leikskólar í Breiðholti taki þátt í verkefninu og hefji tannburstun fyrir lok árs 2017. Betri tannheilsa barna í Breiðholti Þórdís Gísladóttir. 7. flokkur drengja skellti sér á dögunum til Hveragerðis þar sem flokkurinn lék á árlegu Páskamóti Hamars í Loft- bóluhúsinu svokallaða. Færðin á leiðinni til Hveragerðis lék ekki við leikmenn og foreldra þeirra en allir komust þó á leiðarenda að lokum, tilbúnir í slaginn. Alls voru 26 strákar sem skráðu sig til leiks þannig að Leiknir tefldi fram fimm liðum í mótinu. Miklar framfarir mátti sjá hjá strákunum sem spiluðu flottan bolta og tókst öllum liðum að setja knöttinn í mark andstæðin- ganna og vinna leik á mótinu. Við látum eina mynd fylgja hér með en fleiri liðsmyndir má sjá á heimasíðu Leiknis. 7. flokkur í Hveragerði Kátir strákar úr 7. flokki Leiknis með Edda aðstoðarþjálfara. Nokkrir Leiknismenn Meistaraflokkur kátir eftir æfingu. Nýr formaður Leiknis tekur við Guðmundur Ólafur Birgisson er nýr formaður Leiknis en hann var kosinn á aðalfundi félagsins sem fór fram í Leiknishúsinu 31. mars sl. Guðmundur tekur við af Feldísi Lilju Óskarsdóttir sem hefur verið formaður félagsins frá árinu 2014 en Feldís gaf ekki kost á sér til áframhaldandi formannsstarfa. Guðmundur hefur verið viðriðinn félagið í um tvo áratugi og hefur verið mjög ötull í starfi félagsins. Hann hefur áður setið í aðalstjórn Leiknis og sinnti þá meðal annars starfi gjaldkera. Guðmundur var hluti af þeim hópi sem kom Leikni á góðan kjöl eftir erfiðan tíma í kringum aldamótin 2000 og á stóran þátt í því hvernig Leiknir hefur vaxið og dafnað. Hann hætti í aðalstjórn árið 2016 en hefur nú snúið aftur eftir eins árs hlé. Feldís Lilja ákvað að draga sig til hlés sem formaður en mun þessi í stað gegna í nýju hlutverki innan félagsins sem varamaður í aðalstjórn. Leiknir þakkar Feldísi fyrir vel unnin formannsstörf og óskar Guðmundi velfarnaðar sem nýr formaður Leiknis. Aðalstjórn Leiknis er þá þannig skipuð: Guðmundur Ólafur Birgisson, formaður. Guðný Sævinsdóttir, gjaldkeri. Davíð Jónsson. Guðni Már Egilsson. Kjartan Örn Þórðarson. Feldís Lilja Óskarsdóttir, varamaður. Feldís Lilja lætur af embætti formanns aðalstjórnar Leiknis og Guðmundur Ólafur tekur við. 5. flokkur kvenna efstur Stúlkurnar í 5. flokki kvenna eru efstar í C-riðli Reykjavíkurmótsins. Til þessa hafa þær unnið þrjá leiki, jafnað tvo og engum tapað. Þær eiga síðasta leik í mótinu 22. apríl gegn Fylki og verður sá leikur spilaður á Leiknisvelli. Stelpurnar í 5. flokki hafa spilað af krafti í þessu móti og sýnt frábæra takta. Íslandsmótið byrjar svo upp úr miðjum maí og verður gaman að fylgjast með þeim í sumar. Áfram Leiknir - Stolt Breiðholts! Stelpurnar í 5. flokki á Leiknisvellinum.

x

Breiðholtsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Breiðholtsblaðið
https://timarit.is/publication/1113

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.