Breiðholtsblaðið - Apr 2017, Page 10
10 Breiðholtsblaðið APRÍL 2017
Skipti fatamarkaður með
barnaföt hefur farið af stað í
Breiðholti. Það er Rauði kross-
inn í Reykjavík sem stendur að
baki markaðnum í samstarfi
við Fjölskyldumiðstöðina í
Breiðholti. Fyrsti markaðs-
dagurinn var í Gerðubergi föstu-
daginn 31. mars sl. Ætlunin var
að hann yrði á jarðhæð Gerðu-
bergs en vegna þess hversu vel
viðraði þennan dag var ákveðið
að hann væri haldinn á flötinni
við suðurinngang hússins. Fjöldi
fólks leit við í Gerðuberginu
af þessu tilefni og skiptu ýmis
klæði um eigendur.
Þorsteinn Valdimarsson verk-
efnastjóri hjá Rauða krossinum
segir að hugmyndin að skipti-
markaðnum hafi orðið til hjá
Rauða krossinum í Reykjavík.
Félagið hafi markað sér þá stefnu
að breiða starfsemi þess með
markvissari hætti út til hverfa
borgarinnar og í framhaldinu
verið ákveðið að hefja leikinn í
Breiðholti í ljósi þess að sérstaða
hverfisins er nokkur. Hann segir
að mikið hafi verið rætt um að
vandamál séu þar til staðar en
minna um hvar lausnir megi
finna. „Við teljum að finna megi
styrk í fjölmenningu og fjölbreytni
í hverfinu og ætlum okkur meðal
annars að reyna að draga hann
fram í verkefnum okkar.“
Gott dæmi um
samfélagsverkefni
Þorsteinn segir að enn sé
verið að finna út úr því hversu
reglulegur markaðurinn verður.
Hugmyndin sé að hann verði
í framtíðinni á laugardegi og
verði haldinn einu sinni í mánuði
líklega síðasta laugardag hvers
mánaðar. Fram til vors verður
hann hins vegar haldin annan
hvern föstudag. „Skiptifata-
markaðurinn er fyrsta skrefið og
gott dæmi um samfélagsverkefni
sem gagnast almenningi í hverf-
inu. Flest barnafólk kannast við
það hvernig börn vaxa upp úr
fötum sem er nýbúið að kaupa.
Skiptifatamarkaðurinn er einnig
umhverfisvænn og eykur nýtingu
hlutanna okkar, ásamt því að
gagnast ekki síst efnaminni fjöl-
skyldum sem þurfa þá ekki að
kaupa nýtt. Við vinnum verkefnið
í góðu samstarfi við fjölskyldu-
miðstöð Breiðholts í Gerðubergi,
sem einmitt þjónustar mikið af
þeim hópi og gat beint til okkar,“
segir Þorsteinn.
Vel á annað hundrað
gestir
En hvernig tókst til á þessum
fyrsta markaðsdegi. „Þetta tókst
ótrúlega vel. Við höfðum veður-
guðina með okkur í liði og gátum
verið utandyra, höfðum auglýst
vel í leikskólum hverfisins, hengt
upp plaköt í verslanir, og notað
facebook. Vissulega má alltaf gera
betur, og okkar von er að þetta
spyrjist út með þeim gestum sem
mættu síðast en þeir voru að
okkar mati vel á annað hundrað
manns.“ Þorsteinn vill hvetja fólk
til að koma með hreinar og heilar
flíkur sem nýtast fjölskyldunni
ekki lengur og skipta fyrir föt í
réttum stærðum. Í Gerðubergi
verður lager af barnafötum sem
fólk getur fengið í skiptum. Þarna
er einnig kjörið tækifæri fyrir fólk
í hverfinu að hittast með börn
sín, t.d. á leiðinni heim úr leik-
skóla. Ávextir, vatn og leikaðstaða
verða á staðnum. Rauði krossinn
vill hvetja áhugasama til að leggja
verkefninu lið í sjálfboðastarfi,
en sjálfboðaliðar munu að mestu
annast uppsetningu og afgreiðslu
á markaðnum.“
Skiptifatamarkaður í Gerðubergi
Fjöldi fólks leit við á flötinni fyrir framan Gerðuberg, fékk sér
góðgerðir og athugaði hvað var á boðstólum. Sumir komu með föt.
Aðrir fengu föt eða fólk skiptist á fötum.
Nýjung í Breiðholti
Í Gerðubergi verður lager af barnafötum sem fólk getur fengið í
skiptum fyrir önnur föt.
ÓÐINSGÖTU 1, REYKJAVÍK
Ný heimasíða: www.systrasamlagid.is
www.facebook.com/Systrasamlagid
Sími: 511 6367
Í traustum
höndum á
Óðinsgötu 1
AFGREIÐSLUTÍMI:
Mán. - fös.: 9 - 18.
Laugardagar: 10 - 16.
Opið á skírdag og laug 15/4 frá 11-16.
MANDUKA
skara fram úr!
PRO, PROlite
eKO, eKOlite,
eKO fisléttar
og fylgihlutir.
MÖNTRU
ARMBÖND!
Silfruð, gyllt
& rósagull.
NÝ SENDING KOMIN
TIL LANDSINS.
DRAUMA-
SAMFESTINGURINN!
2 litir, 2 snið – allar stærðir
Lífræn, sterk
“Fair Trade” bómull.
Förum dýpra inni í slökun og hugleiðslu.
Flothettan nú fáanlegum í fjórum litum/
munstrum:
Blá
Svört
Blá munstruð eftir Sigga Eggerts
Blá munstruð eftir Sigga Odds
Verð: 16.400 kr.
Líka í netsölu á www.systrasamlagid.is
HUGLEIÐSLA ÁRSINS
ER FLOT!