Nesfréttir - Mar 2016, Page 8
8 Nes frétt ir
Elsa Nielsen er bæjar-listamaður Seltjarnar-ness í ár og er tuttugasti Seltirningurinn til að
hljóta þessa nafnbót. Elsa er þó
ekki Seltirningur í húð og hár.
Hún er að hluta alin upp austur í
bæ og um tíma í Danmörku. Elsa
hefur frá blautu barnsbeini fengist
við að teikna og mála og segir það
hafa legið beint við þegar kom að
því að velja námsbraut að fara í
Myndlistar - og handíðaskólann.
En Elsa er ekki eingöngu mynd-
listarmaður og hönnuður. Hún
hefur einnig spilað badminton
frá unga aldri og var um tíma
ein af fremstu badmintonkonum
landsins og hampaði Íslands-
meistaratitli nokkrum sinnum
og keppti fyrir Íslands hönd á
Ólympíuleikunum í tvígang. Hún
segir að dvölin í Danmörku hafi
ýtt undir badmintonáhugann.
Badminton er hátt skrifað á meðal
Dana og aðstaða til iðkunar þess
mjög góð.
Í ýtarlegri umsögn menningar-
málanefndar Seltjarnarness segir
meðal annars að Elsa hafi sýnt og
sannað með verkum sínum að hún
er meðal okkar fremstu hönnuða.
Viðfangsefni hennar séu fjölbreytt
og hafi hlotið verðskuldaða athygli
hvort sem er á sviði grafískrar
hönnunar, merkjahönnunar, auglýs-
ingaherferða, málaralistar, staf-
rænnar myndvinnslu, teikninga,
myndskreytinga, frímerkjahönnun-
ar eða bókaútgáfu. Litabók hennar
Íslensk litadýrð var í einu af efstu
sætum á bóksölulista undir lok
síðasta árs. Mörg hundruð manns
fylgdust einnig af áhuga með dag-
bókarfærslum hennar á Instagram
og Facebook undir yfirskriftinni
„einádag“, þar sem hún skrásetti líf
sitt með því að teikna eina mynd á
dag allt árið um kring. Elsa útskri-
faðist sem grafískur hönnuður frá
Listaháskóla Íslands árið 1999. Frá
útskrift starfaði hún lengst af sem
hönnunarstjóri á auglýsingastofu
ENNEMM en frá september 2013
hefur hún rekið sitt eigið hönnun-
arfyrirtæki, Nielsen hönnunarstofu.
Var alltaf með blýantinn
á lofti
„Það lá beint fyrir að ég færi út á
þessa braut. Sem barn var ég alltaf
með blýantinn á lofti – að skyssa
og teikna. Glósubæknurar mínar
voru jafnan litríkar. Hver spássía
var notuð til að huga að þessu
áhugamáli. Teikniáhugi minn varð
til þess að foreldrar mínir sendu
mig í Myndlistarskóla Reykjavíkur
þar sem ég var frá sex til níu ára
aldurs eða þar til að við fluttum til
Danmerkur og bjuggum þar í fimm
ár. Pabbi fékk starf ytra og mamma
nýtti tækifærið, fór í nám og
útskrifaðist sem leikskólakennari.
Við systkinin kunnum eiginlega
enga dönsku þegar við fórum út
en vorum fljót að ná henni og áður
en langt leið vorum við systkinin
farin að tala saman á dönsku heima,
foreldrum okkar til lítillar ánægju.
Ég man að þegar við komum heim
og ég fór í níunda bekk í íslenskum
skóla kunni ég ekki einu sinni að
fallbeygja þó svo að foreldrar mínir
hafi lagt áherslu á íslenska tungu
heimavið. En ég var nú fljót að ná
íslenskunni aftur.“
Ánetjaðist badmintoninu
í Danmörku
„Já - það er rétt ég fékk
badmintonáhugann í Danmörku
enda er badmintonið ein af
þjóðaríþróttum Dana. Ég ánetjaðist
badmintoninu Danmerkurárum
og æfingar og ástundun tóku sinn
tíma. Við bjuggum í Albertslund
og þar var mjög góð aðstaða
til þess að stunda þessa íþrótt.
Ég fór fljótlega að keppa og tók
þátt í deildarkeppnum fyrir
hönd Albertslund.“
Heimilið skólinn og TBR
Elsa er innt eftir því hvort henni
hafi fundist viðbrigði að koma
heim. Hún hugsar sig um. „Nei
– það voru engin viðbrigði. Ég
man þó að við fórum heim með
Norrænu og mér fannst ömurlegt
að verða viðskila við alla vini
mína. En ég hef alltaf verið fljót að
aðlagast því sem mér er næst og
það gekk ágætlega þegar heim var
komið. Við fluttum í Sundahverfið
og ég byrjaði í Langholtsskóla
haustið eftir. Það var skammt í
TBR húsið við Álfheimana og því
auðvelt fyrir mig að halda áfram
að stunda badmintonið. Þetta
var svona þríhyrningur sem lífið
snerist um. Heimilið, skólinn og
TBR og ég gat labbað þarna á milli
rétt eins og ég var vön að gera í
Danmörku. Eftir Langholtsskólann
fór ég í MS. Það lá beinast við
því þá þurfti ég ekki að stækka
þríhyrninginn mikið. Auðvitað fór
mikill tími í badmintonið. Æfingar
og keppnisferðir og ég held að ég
hafi aðeins náð tveimur árshátíðum
á menntaskólaárunum. Ég hef
svo sannarlega þurft að velja og
hafna – en sé ekki eftir neinum
ákvörðunum.“
Fjölgun í fjölskyldunni
En hvenær lá leið Elsu á
Seltjarnarnes. „Það var ekki alveg
strax. Ég kom ekki vestur eftir fyrr
en að ég stofnaði fjölskyldu og fór
að búa sjálf. Þá hafði ég viðdvöl
í Vesturbænum – við bjuggum á
Ásvallagötunni um tíma. En þegar
þriðja barnið kom í heimin sprakk
allt og við urðum að finna okkur
rúmbetra húsnæði og leitin að
því endaði út á Nesi. Við erum á
Skólabrautinni og erum ekki að fara
þaðan. Ég segi stundum í gamni að
við eigum trúlega eftir að rölta yfir
götuna í Íbúðir aldraðra þegar við
hjónin erum komin á besta aldur.“
Ég hef mikla þörf fyrir
að skapa
En sá Elsa aldrei neitt fyrir
sér annað en myndlistina fyrir
utan badmintonið. „Jú ég horfði
aðeins í aðra átt en það var ekki
lengi. Ég fékk þá flugu í höfuðið í
miðjum stúdentsprófum að læra
iðjuþjálfun. Ég og vinkona mín
vorum búnar að senda öll gögn
til Danmerkur og á leiðinni að
sækja um styrk þegar mamma
kom að máli við mig og stakk
upp á að ég myndi einnig sækja
um í Listaháskólanum. Ég komst
í inntökupróf og síðan fékk ég
inngöngu. Stundum getur verið
gott að hlusta á mömmu sína.
Vinkona mín fór hins vegar til
Danmerkur í iðjuþjálfun og hún
býr enn í Danmörku. Það er
eins víst að ég hefði sest þar
að hefði ég farið með henni en
ég snéri mér að hönnuninni og
myndlistinni í staðinn. Fór í grafíska
hönnun í Listaháskóla Íslands.
Auðvitað heillaði sá heimur mig
meira. Ég lærði einnig fatasaum
í menntaskóla og notfærði mér
þá kunnáttu og saumaði t.d.
brúðarkjólinn minn sjálf. Kannski er
það hluti af sköpunarþörfinni. Mér
finnst ég alltaf þurfa að vera að búa
eitthvað til.“
Kennileiti sett í
ævintýralegan búning
Í umsögn Seltjarnarnesbæjar
vegna tilnefningar Elsu til
bæjarlistamanns segir m.a. að
á námsárunum hafi hún farið
að sýna verk sín og eigi nú að
baki fjölda sam- og einkasýninga
á sviði málaralistar. Á tveimur
einkasýningum sínum í Gallerí
Gróttu og Mokka-Kaffi sýndi hún
ljósmyndir unnar með stafrænni
tækni. „Þar vann ég með mörg
helstu kennileiti Seltjarnarness og
Reykjavíkurborgar og setti í nýjan
og ævintýralegan búning sem vakið
hafa athygli. Ég hef einnig unnið við
að mála uppstækkaðan grafískan
Viðtal við Elsu Nielsen
Sköpunarþörfin er mikil
Elsa Nielsen hönnuður og myndlistamaður.