Nesfréttir - mar. 2016, Blaðsíða 14
14 Nes frétt ir
G r ó t t u s í Ð a n www.grottasport.is
Báðir meistaraflokkar Gróttu
höfðu í seinasta mánuði tryggt
sér sæti í undanúrslitum bikar-
keppni HSÍ árið 2016 helgina
25. - 27. febrúar.
Stelpurnar riðu á vaðið á fimmtu-
dagskvöldinu þar sem þær mættu
sterku liði Hauka í undanúrslitum,
leikurinn var gífurlega spennandi allt
frá fyrstu mínútu og þurfti tvær fram-
lengingar til þess að okkar stelpur
næðu að knýja fram sigur 30-29 eftir
frábæra frammistöðu Írisar Bjarkar
í framlengingunum, og því voru
stelpurnar komnar í bikarúrslit á
laugardeginum þar sem þær mættu
Stjörnunni.
Leikurinn gegn Stjörnunni gekk
ekki alveg jafn vel og leikurinn gegn
Haukum og endaði leikurinn með
fjögurra marka sigri Stjörnunnar.
Strákarnir kepptu á föstudags-
kvöldið á móti Stjörnunni í hörkuleik
sem endaði með glæsilegum þriggja
marka sigri, 25-28. Stóðu strákarnir
sig allir frábærlega í leiknum.
Úrslitaleikurinn hjá strákunum
var svo á móti Val þar sem Gróttu-
strákarnir byrjuðu vel og leiddu
leikinn framanaf fyrri hálfleik en Vals-
menn leiddu með tveimur mörkum
í hálfleik.
Valsmenn náðu svo að auka í
forskot sitt í byrjun seinni hálfleiks en
með sterkri baráttu náðu strákarnir
að minnka muninn í endann en það
var ekki nóg og unnu Valur 23-25.
Þrátt fyrir þessi úrslit þá er þetta
frábær árangur hjá Gróttu, eina
liðið sem komst með bæði karla
og kvennaliðið í úrslitaleikina, með
stóran meirihluta leikmanna upp-
aldna hjá félaginu, og er það eitthvað
sem við megum vera stolt af !
Áfram Grótta
Báðir
meistaraflokkar
Gróttu í Final4
Seinni hluti Þrepamóts FSÍ var haldið helgina 12. til 14. febrúar í
íþróttamiðstöðinni Versölum, í umsjón Gerplu. Keppt var í 1., 2., og 3.
þrepi íslenska fimleikastigans í fjölþraut og á einstökum áhöldum og átti
Grótta 5 keppendur á mótinu.
Sóley Guðmundsdóttir varð í 3 sæti á stökki og slá í 1. þrepi 13 ára og
yngri. Fjóla Guðrún Viðarsdóttir varð í 2. sæti í fjölþraut, 3. sæti á stökki
og í 1. sæti á tvíslá í 2. þrepi 13 ára og eldri. Katrín Aradóttir varð í 1. sæti í
fjölþraut, á tvíslá og slá og í 2. sæti á gólfi í 2. þrepi 12 ára og yngri. Teresa
Nukun varð í 4. sæti í fjölþraut og Ásta Hlíf Harðardóttir varð í 9. sæti í 3.
þrepi 13 ára og eldri.
Þjálfarar stúlknanna eru þau Svetlana Nazarova og Sergey Bialkov.
Fjóla, Katrín og Sóley
GETRAUNANÚMER
GRÓTTU ER
170
Glæsilegur árangur
á Þrepamóti FSÍ
Sími: 588 9705
www.skautaholl.is
Opnunartímar:
Mánud., Þriðjud. og Miðvikud.
12:00 til 15:00.
Fimmtudaga
12:00 til 15:00 og 17:00 til 19:30.
Föstudaga
13:00 til 19:00.
Laugardaga og Sunnudaga
13:00 til 18:00.
Skólar og sérhópar: Mánudag til föstudags
10:00 til 15:00.
www.grottasport.is