Vesturbæjarblaðið - Feb 2015, Page 6
6 Vesturbæjarblaðið FEBRÚAR 2015
www.borgarblod.is
Bílakjallari,
þjónustukjarni og
íbúðir á Hörpureit
Ásýnd hafnarsvæðisins mun breytast mikið með framkvæmdum
sem nú eru fyrirhugaðar á reitum eitt og tvo fyrir austan
Tollstöðvarhúsið við Tryggvagötu. Gert er ráð fyrir að byggja fyrst
bílakjallara með allt að 120 stæðum. Í framhaldi af því er áformað
að reisa byggingar sem munu hýsa verslunar- og þjónustukjarna
ásamt 80 íbúðum.
Reitir eitt og tvö eru í eigu Regins hf. sem gengu frá kaupum
á þeim á síðasta ári en fasteignafélagið Stólpar muni annast
framkvæmdir í samvinnu við Reginn. Eru þetta fyrstu framkvæmdir
sem fyrirhugðar eru á byggingareitnum frá því byggingu
tónlistarhússins Hörpu lauk og er gert ráð fyrir að framkvæmndir
við bílakjallarann geti hafist á næstu vikum. Gert er ráð fyrir að
framkvæmdir við hinar fyrirhuguðu byggingar taki um þrjú ár.
Ætlunin er að byggja allt
að 450 búseturéttaríbúðir í
Reykjavík á næstunni auk þess
að auka framboð smærri íbúða
í borginni. Þessar íbúðir munu
rísa við Árskóga í Breiðholti,
Keilugranda í Vesturbæ við
Skógar veg í Fossvogi og
víðar. Lögð verður áhersla á
fjölbreytni í íbúðum þar sem
gert er ráð fyrir að byggja allt frá
stúdíóíbúðum til sex herbergja
fjölskylduíbúða.
Nýlega skrifuðu Dagur B.
Eggertsson borgarstjóri og
G ís l i Örn B jarnhéðinsson
framkvæmdastjóri Búseta undir
viljayfirlýsingu þess efnis að
Búseti fái byggingarrétt fyrir
226 íbúðir á nokkrum stöðum
í borginni. Er þetta til viðbótar
þeim 225 íbúðum sem Búseti er
með í undirbúningi eða smíðum.
Alls er því gert ráð fyrir að um
450 búseturéttaríbúðir verði
byggðar í Reykjavík af Búseta
á næstu þremur til fimm árum.
Undirskriftin fór fram við Árskóga
í Suður-Mjódd, en þar er gert ráð
fyrir að Búseti byggi 50 íbúðir.
Auk þeirra er í viljayfirlýsingunni
með fyrirvörum um endanlegt
deiliskipulag gert ráð fyrir 60
íbúðum að Keilugranda 1, 20
íbúðum við Skógarveg 16 og
síðan allt að 100 íbúðum á
smærri þéttingarreitum. Dagur
B. Eggertsson borgarstjóri segir
að gert sé ráð fyrir að húsnæði
verði hannað í samræmi við
markmið húsnæðisstefnu um
fjölbreyttar húsagerðir, blöndun
íbúðagerða innan hverfa og aukið
framboð smærri íbúða fyrir alla
félagshópa. Með úthlutun lóðanna
verði stuðlað að fjölbreyttara
h ú s n æ ð i s f r a m b o ð i b re i ð s
hóps í samfélaginu og reynt að
skapa húsnæðisgrundvöll fyrir
fjölda einstaklinga sem annars
gætu þurft á aðstoð að halda.
Með því er verið að byggja brú
milli leigu- og eignaríbúða.
Reykjavíkurborg stuðli þannig
að b löndun e ignaforma í
samvinnu við félag sem rekið
er án hagnaðarsjónarmiða.
Vilji sé til að stuðla að öryggi í
húsnæðismálum og mæta þörfum
í samfélaginu fyrir fjölbreytt
húsnæðisform.
Allt að 450 búseturéttaríbúðir
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Gísli Örn Bjarnhéðinsson undir-
rita samninginn undir berum himni og leggja með því áherslu á að
allir þurfa þak yfir höfuðuð.
Hugmyndavinna við Keilugranda 1 er að hefjast.
Skúli Ólafsson skipaður
prestur í Neskirkju
Skúli Ólafsson hefur verið skipaður
í embætti prests í Nesprestakalli í
Reykjavíkurprófastsdæmi vestra.
Frestur til að sækja um embættið rann út
7. janúar síðastliðinn. Ellefu umsækjendur
voru um embættið. Skúli hefur starfað sem
sóknarprestur í Keflavíkurprestakalli en
starfað áður sem settur sóknarprestur í
Ísafjarðarprestakalli og einnig sem prestur
Íslendinga í Svíþjóð.
APOTEK RESTAURANT
Austurstræti 16 Sími 551 0011
apotek.is
EFTIRRÉTTUR OG KAFFI
1.390 kr.
frá kl. 11.30–18.00
SÆTUR FEBRÚAR
Café Lingua í Stúdentakjallaranum
Deild erlendra tungumála, Íslenska sem annað mál,
Íslenskuþorpið og Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur
við Háskóla Íslands efna í samstarfi við Café Lingua
Borgar -bókasafnsins til stefnumóts tungumála og
tungumálanemenda í Stúdentakjallaranum.
C a f é L i n g u a – l i f a n d i t u n g u m á l “ e r
tungumálavettvangur á vegum Borgarbókasafnsins í
samstarfi við ýmsa aðila í samfélaginu. Eitt af markmiðum
Café Lingua er að virkja þau tungumál sem hafa ratað
til Íslands, með fólki hvaðanæva að, og auðgað mannlíf
og menningu ásamt því að vekja forvitni borgarbúa á
heiminum í kringum okkur. Café Lingua er gátt inn í mismunandi tungumála - og menningarheima og
tilvalinn vettvangur fyrir þá sem vilja efla tungumálakunnáttu sína og hafa áhuga á að spreyta sig á
hinum ýmsu tungumálum. Café Lingua fer fram víða um borgina; m.a. í Borgarbókasafninu í Grófinni og í
Gerðubergi, Norræna húsinu og í Stúdentakjallaranum. Samstarfsaðilar Café Lingua á þessu misseri eru:
Deild erlendra tungumála, bókmennta og málvísinda og námsleiðin Íslenska sem annað mál við Háskóla
Íslands, Íslenskuþorpið, Norræna húsið og Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum.
Ungt og áhugasamt fólk á Café Lingua.