Vesturbæjarblaðið - febr 2015, Qupperneq 13
Radisson Blu hótelin á Íslandi
fengu hina virtu umhverfis-
viðurkenningu Græna lykilinn
afhenta við hátíðlega athöfn á
Radisson Blu 1919 hóteli þann
28. janúar. Guðmundur Ingi
Guðbrandsson, framkvæm-
dastjóri Landverndar, og Salome
Hallfreðsdóttir, verkefnis-
stjóri Græna lykilsins, afhentu
viðurkenninguna.
Þetta þýðir að hótelin uppfylla
ströng umhverfisskilyrði og með
því að kjósa að dvelja þar stuðla
gestir að verndun umhverfisins.
Græni lykillinn, eða Green Key,
er útbreiddasta alþjóðlega umh-
verfisviðurkenningin sem snýr að
hótelum og gististöðum og hefur
verið starfræktur í 20 ár. Á síðasta
ári fengu rúmlega 2300 staðir
viðurkenninguna í 46 löndum
um heim allan. Græni lykillinn
er veittur til hótela og gististaða,
ráðstefnusala, veitingastaða,
safna, tjaldstæða og skemmti-
garða. Til þess að hljóta viðurken-
ninguna þurfa rekstraraðilar að
uppfylla umhverfisskilyrði er lúta
að tólf umhverfisþáttum, þar á
meðal vistvænum innkaupum,
úrgangsstjórnun og orkuspar-
naði. Græni lykillinn leggur áher-
slu á að minnka umhverfisáhrif
hótelsins, draga úr rekstrar-
kostnaði og stuðla að sjálfbærni
innan ferðaþjónustunnar. Frá og
með janúar 2015 mun Landvernd
taka við umsjón Græna lykilsins
á Íslandi og því er þetta stór
stund, bæði fyrir hótelin tvö og
Landvernd.
13VesturbæjarblaðiðFEBRÚAR 2015
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Auðbrekku 1, Kópavogi
Sverrir
Einarsson
Kristín
Ingólfsdóttir
Útfararþjónusta síðan 1996
ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST
Áratuga reynsla
Vaktsími:
581 3300 & 896 8242
www.utforin.is
Allan sólarhringinn
Radisson Blu fengu
Græna lykilinn
Starfsfólk Radisson Blu ánægt með Græna lykilinn.
Framundan eru árlegar
hverfakosningar í Reykjavík,
Betri hverfi 2015, en þær
hefjast í næstu viku, þriðju-
daginn 17. febrúar og standa
yfir til 24. febrúar. Kosið er
á milli verkefna í hverfum
bor gar innar á s lóð inni
https://kjosa.betrireykjavik.is
Á undanförnum árum hafa
fjölmargar góðar hugmyndir
íbúa orðið að veruleika í
Vesturbænum en framkvæmt
hefur verið fyrir 112 milljónir
króna í hverfinu, samkvæmt
niðurstöðum kosninga frá
2012-2014. Öl l verkefnin
gagnast íbúum hverfisins vel
enda snúast þau um það að
bæta umhverfið - leiksvæði,
útivistaraðstöðu, gönguleiðir,
umferðaröryggi, gróðursetningu
og fleira sem gerir hverfið miklu
betra og meira aðlaðandi til
búsetu.
Ég hvet íbúa í Vesturbæ til að
kynna þér hugmyndirnar sem
kosið verður um í hverfinu og
dreifa þeim sem víðast. Hægt
er að sjá hugmyndirnar fyrir
Vesturbæ hér: http://reykjavik.
is/betri-hverfi-vesturbaer
Það er miki lvægt fyr ir
íbúalýðræðið í borginni að sem
flestir taki þátt í kosningunum
sem nú eru haldnar rafrænt í
fjórða sinn. Notast er við
Íslykil eða rafræn skilríki til
auðkenningar í kosningunum.
Ég vil einnig vekja athygli
þína á því að aldurstakmark
í kosningunum er 16 ár.
Kosningarnar eru góð æfing
fyrir ungt fólk að læra að nýta
kosningarétt sinn.
Munum að kjósa
Bjarni Brynjólfsson
Upplýsingastjóri
Reykjavíkurborgar
Munum að kjósa í
hverfiskosningum
Bjarni Brynjólfsson.
Okkur finnst vel við hæfi að tileinka þáttinn „Matur & vín“ hinum frábæra fiski
sem við Íslendingar eigum og bestur er hann á vetrarvertíðinni.
Hafið fiskverslun er sérverslun með hágæða fiskafurðir og meðlæti fyrir kröfuharða neytendur.
Fiskborðin eru þéttsetin af landsins mesta úrvali af tilbúnum fiskréttum til að ofnbaka, steikja eða grilla
sem gerir viðskiptavinum kleift að elda dýrindis máltíð á nokkrum mínutum án nokkurar fyrirhafnar.
Réttur mánaðarins er frá Fiskbúðinni Hafinu,
sem er staðsett á tveimur stöðum
Hlíðasmára 8, Kópavogi og Spönginni 13, Rvk.
Montalto Pinot Grigio -
Sikiley - 1.699 kr.
Föllímónugrænt. Létt meðalfylling,
ósætt, fersk sýra.
Pera, sítrus, hunangsmelóna, blóm.
Montalto Organic
(lífrænt-ræktað) Cataratto –
Sikiley - 1.799 kr.
Ljóssítrónugult. Létt fylling,
ósætt, fersk sýra.
Ljós ávöxtur, sítrusbörkur, læm,
Við mælum með eftirfarandi víni
við þennan rétt:
Matur og vín:
Langa í austurlensku karrí með mini mais, bambus,
ananas, mangó og spínati.
Réttur þessi fæst tilbúinn hjá Fiskbúðinni Hafinu,
hann má fara í ofn á 180 gráðum í um 20 – 25 mín.
www.borgarblod.is
AUGLÝSINGASÍMI: 511 1188