Brautin - 15.12.1959, Blaðsíða 4
4
JÓLABLÁtí BRAUTARINNAR
Árni Árnason frá Grund:
Bræðurnir frá Efstu-Grund verða úti 1912
Laust eftir síðustu aldamót
bjuggu að Efstu-Grund undir
Eyjafjöllum hjónin Kristjana
Jónsdóttir og Björn Guðmunds-
son, þá ung að árum. Þau höfðu
byrjað búskap að Indriðakoti
þar í sveit um aldamót, því þar
höfðu foreldrar Björns buið í
mörg ár, en er faðir hans lézt,
laust fyrir aldamót, fluttist
Björn með fjölskylduna að
Efstu-Grund. Með honum
fylgdi móðir hans, Halldóra
Björnsdóttir, prests að Holti,
Þorvaldssonar sálmaskálds. Var
Halldóra systir Þorvaldar póli-
tís í Reykjavík og Kristínar
konu Jóns Einarssonar að Ysta-
Skála er voru foreldrar Sveins
Jónssonar að Landamótum í
Eyjum og Halldóru konu
Bjarna Einarssonar í Hlaðbæ
þar. Tveir bræður Björns
fylgdu honum frá Indriðakoti
að Efstu-Grund, er hétu Svein-
björn og Gísli Brynjólfur og
auk þess systir þeirra er Elín
hét. Allt var þetta hið mesta
myndar og dugnaðarfólk af góð-
um stofni komið. Bræðurnir
voru allir hin mestu hraust-
menni til burða, en þó var
Sveinbjörn talinn þeirra liraust
astur. Hann var rösklega meðal-
maður á hæð en herðabreiður
og samanrekinn og allur hinn
kröftuglegasti að vallarsýn.
Jafnskjótt og þeir bræður
höfðu aldur til, fóru þeir til
„útvers“ sem kallað var, þ. e.
til sjóróðra. Fóru þeir þá tii
Vestmannaeyja á vélbáta eða til
Eaxaflóahafna á skútur. Oft
voru slíkar verferðir, sem oftast
voru farnar í nær svartasta
skammdeginu (og er allra veðra
var helzt von). mönnum erfiðar
og hættulegar í válegum veðr-
um og hlutust ekki ósjaldan
slys af þeim. Þá voru ekki bíl-
arnir til þess að flytja fólkið
úr sveitunum til verstöðvanna,
svo að allir lögðu land undir
fót og gengu vegalengdina að
miklu leyti. Þó voru stundum
hafðir hestar í ferðunum ýmsa
kafla leiðarinnar, sem léttu mik
ið undir og flýttu ferðum, en
stundum voru líka auknir erfið-
leikar þeirra vegna. Fyrir kom,
að haldið var af stað í tvísýnu
veðurútliti, vegna kapps um að
komast sem fyrst til vers, þar
sem báturinn máske beið ferð-
búinn til fiskveiða, en aðeins
beðið ráðinna skipverja. Vildi
þess vegna brenna við, að á
vogarskálunum varð kappið
þyngra en fyrirhyggjan, svo að
af hlutust miklir eríiðleikar eða
jafnvel sorglegar afleiðingar.
Útbúnaður margra, hvað allan
farkost snerti, var oft gerður
af litlum efnum heimilanna.
Þess vegna réð stundum hreysti
og dugnaður ferðalanganna á-
samt mannkærleika og gestrisni
bændabýlanna á leiðinni, úr-
slitum um velfarnað að leiðar-
lokum.
Veturinn 1912 ætluðu að
vanda margir Eyfellingar til
vers, sumir til Faxaflóaver-
stöðva en aðrir til Vestmanna-
eyja. Á meðal Eyjavermanna
voru þennan vetur margir, sem
síðar urðu innflytjendur til Eyj
anna og búa þar enn, harðfrísk-
ir dugnaðarmenn.
Til vers ætluðu einnig þenn-
an vetur bræðurnir á Efstu-
Grund, þeir Sveinbjörn og
Gísli Brynjólfur. Útbjuggu þeir
sig af mesta kappi til þess að
verða sem fyrst tilbúnir og
ekki seinni en aðrir. Þó dróst
það frarn að mánaðamótunum
janúar og febrúar að þeir færu.
Var þá öllum undirbúningi
lokið, og biðu þeir eftir það
góðs ferðaveðurs ásamt t’leiri
Eyfellingum. Einnig hafði ver-
ið ákveðið að bíða nokkurra
Mýrdælinga, sem voru á vestur-
leið til útvers og verða þeim
samferða suður.
Um mánaðamótin voru í
vermannahópnum eftirtaldir
menn, sem höfðu mælzt til sam-
fylgda hver við annan, og skal
nú gerð nokkur grein fyrir
þeim:
Þórður - Stefánsson, Rauða-
felli, 16 ára gamall. Síðar for-
maður í Eyjum og er þar enn,
harðfrískur maður til sjós og
lands.
Rútur Þorsteinsson Hrúta-
felli. Hann lézt af slysförum
árið 1913. Varð undir vegg, er
hrundi.
Björn Guðmundsson
Efstu-Grund.
Þórður Stefánsson
Ruuðafellij Eyjafjöllurn.
Guðjón Vigíússon, Rauða-
felli, bóndi þar. Hann var hesta
og reiðslumaður í ferðinni, en
ætiaði ekki til vers.
Torfi Einarsson, Varmahlíð,
síðar formaður í Eyjum í mörg
ár, frískur maður og dugmikill.
Hann fluttist til Reykjavíkur
frá Eyjum fyrir fáum árum
síðan og býr þar nú.
Jón Stefánsson, Gerðakoti,
síðar formaður í Eyjum, sjó-
sóknari mikill og fiskimaður,
Hann druknaði af bátnum
„Haffara”, Ve. 116, 9. apríl
1916.
Björn Guðmundsson, Efstu
Grund, bóndi þar, hesta- og
reiðslumaður, en ætlaði ekki
til vers.
Sveinbjörn Guðmundsson,
Efstu-Grund, bróðir Björns,
ætlaði á skútu.
Gísli Brynjólfsson, bróðir
Sveinbjörns og Björns, ætlaði
Gisli Br. Guðmundsson
Efstu-Grund
Torfi Einarsson
frá Varrnahlíð
til Vestmannaeyja.
Einar Ingvarsson, vinnumað-
ur á Efstu-Grund, ráðinn á
skútu, en síðar útgerðarmaður
í Eyjum og býr þar enn, frískur
maður í hvívetna.
Sigurjón Ólafsson, Núpi, þá
17 ára, síðar útgerðarmaður í
Eyjum og býr þar enn, atorku-
og frískleikamaður.
Ólafur Ólafsson, Núpi, nú
búsettur í Reykjavík og múr-
smiður þar.
Páll Einarsson, Fornusönd-
um, ætlaði til Eyja, og þar
drukknaði hann síðar.
Kort Elísson, Fit, lézt í Sand-
gerði árið 1944.
Magnús Knútur Sigurðsson,
Seljalandi, mikill hreystimaðui
og harðduglegur. Hann ætlaði
ekki til vers, en var reiðslu-
maður fyrir stærsta hópinn og
aðalferðastjóri þessara ferða-
langa.