Brautin - 15.12.1959, Side 4

Brautin - 15.12.1959, Side 4
4 JÓLABLÁtí BRAUTARINNAR Árni Árnason frá Grund: Bræðurnir frá Efstu-Grund verða úti 1912 Laust eftir síðustu aldamót bjuggu að Efstu-Grund undir Eyjafjöllum hjónin Kristjana Jónsdóttir og Björn Guðmunds- son, þá ung að árum. Þau höfðu byrjað búskap að Indriðakoti þar í sveit um aldamót, því þar höfðu foreldrar Björns buið í mörg ár, en er faðir hans lézt, laust fyrir aldamót, fluttist Björn með fjölskylduna að Efstu-Grund. Með honum fylgdi móðir hans, Halldóra Björnsdóttir, prests að Holti, Þorvaldssonar sálmaskálds. Var Halldóra systir Þorvaldar póli- tís í Reykjavík og Kristínar konu Jóns Einarssonar að Ysta- Skála er voru foreldrar Sveins Jónssonar að Landamótum í Eyjum og Halldóru konu Bjarna Einarssonar í Hlaðbæ þar. Tveir bræður Björns fylgdu honum frá Indriðakoti að Efstu-Grund, er hétu Svein- björn og Gísli Brynjólfur og auk þess systir þeirra er Elín hét. Allt var þetta hið mesta myndar og dugnaðarfólk af góð- um stofni komið. Bræðurnir voru allir hin mestu hraust- menni til burða, en þó var Sveinbjörn talinn þeirra liraust astur. Hann var rösklega meðal- maður á hæð en herðabreiður og samanrekinn og allur hinn kröftuglegasti að vallarsýn. Jafnskjótt og þeir bræður höfðu aldur til, fóru þeir til „útvers“ sem kallað var, þ. e. til sjóróðra. Fóru þeir þá tii Vestmannaeyja á vélbáta eða til Eaxaflóahafna á skútur. Oft voru slíkar verferðir, sem oftast voru farnar í nær svartasta skammdeginu (og er allra veðra var helzt von). mönnum erfiðar og hættulegar í válegum veðr- um og hlutust ekki ósjaldan slys af þeim. Þá voru ekki bíl- arnir til þess að flytja fólkið úr sveitunum til verstöðvanna, svo að allir lögðu land undir fót og gengu vegalengdina að miklu leyti. Þó voru stundum hafðir hestar í ferðunum ýmsa kafla leiðarinnar, sem léttu mik ið undir og flýttu ferðum, en stundum voru líka auknir erfið- leikar þeirra vegna. Fyrir kom, að haldið var af stað í tvísýnu veðurútliti, vegna kapps um að komast sem fyrst til vers, þar sem báturinn máske beið ferð- búinn til fiskveiða, en aðeins beðið ráðinna skipverja. Vildi þess vegna brenna við, að á vogarskálunum varð kappið þyngra en fyrirhyggjan, svo að af hlutust miklir eríiðleikar eða jafnvel sorglegar afleiðingar. Útbúnaður margra, hvað allan farkost snerti, var oft gerður af litlum efnum heimilanna. Þess vegna réð stundum hreysti og dugnaður ferðalanganna á- samt mannkærleika og gestrisni bændabýlanna á leiðinni, úr- slitum um velfarnað að leiðar- lokum. Veturinn 1912 ætluðu að vanda margir Eyfellingar til vers, sumir til Faxaflóaver- stöðva en aðrir til Vestmanna- eyja. Á meðal Eyjavermanna voru þennan vetur margir, sem síðar urðu innflytjendur til Eyj anna og búa þar enn, harðfrísk- ir dugnaðarmenn. Til vers ætluðu einnig þenn- an vetur bræðurnir á Efstu- Grund, þeir Sveinbjörn og Gísli Brynjólfur. Útbjuggu þeir sig af mesta kappi til þess að verða sem fyrst tilbúnir og ekki seinni en aðrir. Þó dróst það frarn að mánaðamótunum janúar og febrúar að þeir færu. Var þá öllum undirbúningi lokið, og biðu þeir eftir það góðs ferðaveðurs ásamt t’leiri Eyfellingum. Einnig hafði ver- ið ákveðið að bíða nokkurra Mýrdælinga, sem voru á vestur- leið til útvers og verða þeim samferða suður. Um mánaðamótin voru í vermannahópnum eftirtaldir menn, sem höfðu mælzt til sam- fylgda hver við annan, og skal nú gerð nokkur grein fyrir þeim: Þórður - Stefánsson, Rauða- felli, 16 ára gamall. Síðar for- maður í Eyjum og er þar enn, harðfrískur maður til sjós og lands. Rútur Þorsteinsson Hrúta- felli. Hann lézt af slysförum árið 1913. Varð undir vegg, er hrundi. Björn Guðmundsson Efstu-Grund. Þórður Stefánsson Ruuðafellij Eyjafjöllurn. Guðjón Vigíússon, Rauða- felli, bóndi þar. Hann var hesta og reiðslumaður í ferðinni, en ætiaði ekki til vers. Torfi Einarsson, Varmahlíð, síðar formaður í Eyjum í mörg ár, frískur maður og dugmikill. Hann fluttist til Reykjavíkur frá Eyjum fyrir fáum árum síðan og býr þar nú. Jón Stefánsson, Gerðakoti, síðar formaður í Eyjum, sjó- sóknari mikill og fiskimaður, Hann druknaði af bátnum „Haffara”, Ve. 116, 9. apríl 1916. Björn Guðmundsson, Efstu Grund, bóndi þar, hesta- og reiðslumaður, en ætlaði ekki til vers. Sveinbjörn Guðmundsson, Efstu-Grund, bróðir Björns, ætlaði á skútu. Gísli Brynjólfsson, bróðir Sveinbjörns og Björns, ætlaði Gisli Br. Guðmundsson Efstu-Grund Torfi Einarsson frá Varrnahlíð til Vestmannaeyja. Einar Ingvarsson, vinnumað- ur á Efstu-Grund, ráðinn á skútu, en síðar útgerðarmaður í Eyjum og býr þar enn, frískur maður í hvívetna. Sigurjón Ólafsson, Núpi, þá 17 ára, síðar útgerðarmaður í Eyjum og býr þar enn, atorku- og frískleikamaður. Ólafur Ólafsson, Núpi, nú búsettur í Reykjavík og múr- smiður þar. Páll Einarsson, Fornusönd- um, ætlaði til Eyja, og þar drukknaði hann síðar. Kort Elísson, Fit, lézt í Sand- gerði árið 1944. Magnús Knútur Sigurðsson, Seljalandi, mikill hreystimaðui og harðduglegur. Hann ætlaði ekki til vers, en var reiðslu- maður fyrir stærsta hópinn og aðalferðastjóri þessara ferða- langa.

x

Brautin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Brautin
https://timarit.is/publication/1411

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.