Brautin


Brautin - 19.05.1965, Blaðsíða 4

Brautin - 19.05.1965, Blaðsíða 4
SAGAN AF HR. X. Slysa sumar BRAUTIN Útgefandi: Alþýð'uflokksfélögin i Vestmannaeyjum. — Ábyrgðar- maður: Jón Stefánsson. Prentsmiðjan Eyrún h. f. í Þ R Ó I .fl. Týs og Þórs hafa tvívegis keppt síðan síðasta blað kom út. 9. maí sigraði Týr með 6 mörkum gegn engu. Sá leikur var nokkuð skemmtilegur og um tíma jafn. Týr sýndi um tíma afbragðs samleik, sem gaf af sér öll þessi mörk. Á sunnudaginn var mættu svo liðin aftur á mölina og varð nú hnífjöfn barátta og mátti ekki á milli sjá, hvor sigraði. Þegar aðeins 6 mínútur mínútur voru til leiks- loka skoraði Týr eina mark leiksins. Bæði liðin áttu þó mörg gullin tæki færi, sem misfórust. T. d. bjargaði Sigursteinn bakvörður Týs 4 sinn- um á línu. Leikurinn varð nokkuð harður og var einum úr liði Týs vikið af velli. Nokkurs ósamræmis fannst mér gæta í dómum dómar- ans. í yngri flokkunum hafa farið fram eftirtaldir leikir: 8. maí 5. fl. — Týr 1, Þór 0. 9. maí 4. fl. — Týr 11, Þór 0. 15. maí 2. fl. — Týr 3, Þór 1. Helgina 8. og 9. maí komu hing- að piltar úr 3. fl. frá Haukum í Hafnarfirði og léku hér tvo leiki við jafnaldra sína úr ÍBV. Fyrri leiknum lauk með sigri ÍBV, 4—0, og þeim síðari einnig með sigri T T I R ÍBV, 3—1. Fyrir skömmu varpaði Hallgrím- ur Jónsson (Týr) kringlunni 50,40 metra á innanfélagsmóti hér í Eyj- um. Hallgríraur hefur æft mjög vel í vetur. íslandsmetið, sem Hall- grímur setti í fyrra er 56,05 metrar. í sfuttu máli. Formaður kvenfélags ávarpar fé- lagskonur: :— Skýrsla þeirrar nefnd hr okkar, sem fjalla á um „Lausn alheimsvandamálanna“ mun því miður tefjast eitthvað, vegna þess að þrír nefndarmanna gátu ekki fengið barnapíur í kvöld. Húsbóndinn við vélritunarstúlk- una, sem er að skreppa fram rétt einu sinni: — Ungfrú R., þegar litla bjallan á ritvélinni yðar hringir, þá þýðir það ekki, að það sé verið að hringja í kaffi. Senn mun líða að því, að bærinn, síminn, rafveitan og kannski fleiri aðilar fari að rífa og tæta gangstétt ir bæjarins. Það má merkilegt vera, ef ekki verða stórslys hér í sumar. Tökum sem dæmi hann hr. X. sem býr við .... (ja, bara við einhverja götu). í júní kemur rafveitan og grefur heljarmikinn skurð beint fyrir framan hliðið hjá honum hr. X. Svo óheppilega vill til, að eitt kvöldið gleyma rafveitumennirnir að setja brú yfir skurðinn og þá er auðvitað ekki að spyrja um það, hr. X. steypist á hausinn þegar hann kemur dauðþreyttur heim úr vinn- unni, og fer úr liði, aumingja mað- urinn. í júlí, þegar hr. X. er búinn að jafna sig eftir slysið og búinn að kríja út úr tryggingunum, koma símamenn askvaðandi með öll sín tól og byrja að grafa skurð alveg á sama stað og rafveitan var nýbúin að róta ofaní sinn skurð. Og ekki er að spyrja að óheppninni í hr. X, símamenn létu svo grautfúna göngu brú yfir skurðinn hjá hr. X, að einn morguninn , þegar hr. X. var að staulast grútsyfjaður í vinnuna, steig hann niður úr hleranum, og var fluttur fótbrotinn á spítalann til hans Einars læknis. Og ekki var hr. X. búinn að líða nóg fyrir sínar syndir. í ágúst koma bæjarkarlarnir askvaðandi og segj- ast ætla að fara að helluleggja gangstéttina fyrir framan húsið hans hr. X. En það þarf að grafa nokkuð djúpt niður og fylla síðan með sandi. Nú, þegar hr. X. kemur rallfullur heim af þjóðhátíðinni, endaslengist aumingja maðurinn á hausinn ofan í gryfju bæjarkallanna sem ekki máttu vera að því að keyra í hana sandinum áður en þeir fóru í Dalinn. Enn fær lækn- irinn hr. X. til meðferðar og nú var hann handleggsbrotinn. Nú var hr. X. alveg búinn að fá nóg af þessum sífelldu slysum og arkaði með hendina í gypsi til Lauga bæjarstjóra og heimtaði, að framvegis verði allt þetta bölvað drasl hulsað í einum og sama skurðinum. En Laugi svaraði ró- lega, að ef svo ætti að verða, yrði skurðurinn að vera svo stór, að ef- einhver álpaðist ofan í hann þyrfti Einar læltnir varla að hafa áhyggj- ur af honum, heldur grafarinn. Aumingja hr. X. Hann hugsar nú með hryllingi til þess dags er Vatns veitan kemur að leggja inn til hans. Frú X. BIIKFAXI vientaeilegnr hingað í kvöld Aflahóngur Aflakóngur á síðastliðinni vetrar vertíð varð Óskar Matthíasson á Leó VE 400. Afli hans varð 1050 tonn. Óskar er Vestmannaeyingur, fædd ur 22. marz 1921. Hann byrjaði að stunda sjóinn 17 ára gamall. Óskar byrjaði formennsku 1945 á Glað og hefur alltaf síðan verið einn af mestu aflamönnum Eyjaflotans. Á myndinni sést BLIKFAXI, hin nýja flugvél Flugfélagsins á flugvellinuin á Akureyri, en áætlað er að hún lendi á flugvellinum hér um klukkan hálf sjö í kvöld. Þórarar. Pilfar - Stúlkur! Munið frjálsíþróttaæfingar bandalagsins á sunnu- dagsmorgnana. íbúð óskast. 2—3 herbergja íbúð óskast til leigu, með eða án húsgagna. ÞósSur ðfs sísni. Iþróttafélagið ÞÓR, VESTMANNAEYJUM.

x

Brautin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Brautin
https://timarit.is/publication/1411

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.