Morgunblaðið - 05.09.2019, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER 2019 5
www.skagafjordur.is
Skipulags- og byggingarfulltrúi
Laust er til umsóknar starf skipulags- og byggingarfulltrúa hjá
Sveitarfélaginu Skagafirði. Skipulags- og byggingarfulltrúi ber ábyrgð
á skipulagsgerð í sveitarfélaginu í samræmi við lög nr. 123/2010 og
reglugerðir og á framkvæmd opinbers byggingareftirlits í samræmi
við gildandi lög nr. 160/2010 og reglugerðir. Leitað er að öflugum og
metnaðarfullum einstaklingi í starfið. Æskilegt er að viðkomandi getið
hafið störf sem fyrst.
Umsóknarfrestur er til og með 16. september 2019.
Umsóknum ásamt starfsferilskrá og kynningarbréfi skal skila í gegnum
íbúagátt sem finna má á heimasíðu sveitarfélagsins.
Nánari upplýsingar um starfið sem og frekari menntunar- og hæfniskröfur má
finna á heimasíðu sveitarfélagsins www.skagafjordur.is (laus störf).
Ítarlegri upplýsingar um starfið veita Sigfús Ingi Sigfússon, sveitarstjóri í síma
455-6000, netfang sigfus@skagafjordur.is og Jón Örn Berndsen, skipulags- og
byggingarfulltrúi í síma 455-6000, netfang jobygg@skagafjordur.is.
Í Skagafirði búa um 4200 manns í fjölskylduvænu og lifandi samfélagi. Þjónusta við íbúa
er öflug og í sveitarfélaginu eru góðir skólar á öllum skólastigum, allt frá leikskólum upp í
háskóla. Íþrótta- og félagsstarf er blómlegt og allar aðstæður til hvers konar íþróttaiðkunar og
útiveru. Atvinnulífið í Skagafirði er kröftugt og fjölbreytt þar sem matvælavinnsla af ýmsu tagi
skipar stóran sess í tengslum við fjölbreyttan landbúnað og öfluga fiskvinnslu, auk iðnaðar,
ferðaþjónustu og annarar þjónustu á vegum fyrirtækja, stofnana og einstaklinga.
Menningarlíf er blómlegt í héraðinu og sagan við hvert fótmál.
Helstu viðfangsefni og ábyrgð:
• Yfirumsjón með skipulagsgerð á
vegum sveitarfélagsins.
• Eftirlit með að framkvæmdir
séu í samræmi við skipulag
og útgefin leyfi.
• Samskipti við hönnuði,
verktaka og íbúa í tengslum
við skipulags- og bygginga
leyfisskyldar framkvæmdir í
sveitarfélaginu.
• Ábyrgð og umsjón með
útgáfu byggingaleyfa, vottorða
og skráningu mannvirkja.
• Afgreiðsla umsókna.
• Yfirferð og samþykkt
aðaluppdrátta, verkfræði- og
séruppdrátta.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólapróf sem nýtist í starfi,
t.d. byggingarfræðingur,
verkfræðingur, tæknifræðingur,
skipulagsfræðingur eða arkitekt.
• Æskilegt er að umsækjandi upp-
fylli skilyrði 8. og 25. gr.
mannvirkjalaga og 7. gr.
skipulagslaga.
• Góð þekking á lögum og
reglugerðum tengdum bygginga-
og skipulagsmálum er æskileg.
• Þekking/reynsla af opinberri
stjórnsýslu er æskileg.
• Reynsla af áætlanagerð s.s. verk-,
kostnaðar- og fjárhagsáætlanagerð.
• Leiðtogahæfni og framúrskarandi
hæfni í mannlegum samskiptum.
• Þekking og reynsla af stjórnun
og rekstri er æskileg.
• Sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði
og skipulagshæfni.
Kerfisstjóri
Verzlunarskóli Íslands óskar að ráða
kerfisstjóra í 100% starf. Meginhlutverk
kerfisstjóra er að reka og bera ábyrgð á
tölvukerfi skólans og veita starfsmönnum
og nemendum tölvuþjónustu.
Hæfnikröfur:
• Háskólamenntun eða sérfræðimenntun sem nýtist í
starfi.
• Góð þekking á rekstri tölvukerfa í Microsoft umhverfi,
MS-SQL, Hyper-V sýndarumhverfi, Cisco Meraki netkerfis,
Office 365 stjórnun, MS Exchange o.fl.
• Þekking á Moodle kennslukerfi æskileg.
• Þekking á Innu nemendabókhaldi og kennslukerfi æski-
leg.
• Þekking á asp, java og PowerShell er kostur.
• Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.
• Hæfni í mannlegum samskiptum.
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Rekstur tölvukerfis í Microsoft umhverfi, Active Directory,
Hyper-V, Veeam afritataka o.fl.
• Rekstur á Office365.
• Uppsetningar, viðhald, eftirlit og öryggisviðhald á netþ-
jónum, útstöðvum og öðrum tækjabúnaði.
• Rekstur netkerfis.
• Yfirumsjón og þróun upplýsingatæknimála.
• Áætlanagerð og innkaup.
• Öryggis- og gæðamál.
• Þjónusta við notendur.
Við bjóðum:
• Góða vinnuaðstöðu.
• Góðan starfsanda á framsæknum vinnustað.
Nánari upplýsingar gefur Guðrún Inga Sívertsen
starfsmanna – og þróunarstjóri gunninga@verslo.is
Umsóknarfrestur er til 15. september og skal senda
umsóknir ásamt ferilskrá á netfangið gunninga@
verslo.is
Verzlunarskóli Íslands er framhaldsskóli með um 940 nemendur.
Skólinn er bekkjarskóli. Nemendur geta valið á milli fjögurra
mismunandi brauta og útskrifast með stúdentspróf af öllum
brautum. Samkvæmt lögum um framhaldsskóla nr. 92 frá 2008
er ekki heimilt að ráða einstakling til starfa sem hlotið hefur dóm
fyrir brot á XXII. kafla almennra hegningarlaga og því er beðið
um sakavottorð áður en ráðið er í starfið.
Penninn | Skeifan 10 | sími 540 2000 | www.penninn.is | penninn@penninn.is
Viðskiptastjóri á húsgagnasviði
Starfssvið: Hæfniskröfur:
Húsgögn
Umsóknarfrestur er til og með 8. september nk.
Umsækjendur eru vinsamlega
beðnir um að sækja um starfið
á heimasíðu Pennans,
https://www.penninn.is/is/laus-storf Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
• Háskólamenntun eða önnur menntun
sem nýtist í starfi.
• Reynsla af sölu og viðskiptum,
reynsla af sambærilegu starfi æskileg.
• Rík þjónustulund, sjálfstæði og sveigjanleiki.
• Góð almenn enskukunnátta.
• Góð almenn tölvukunnátta,
kunnátta á Navision er æskileg.
• Áhugi á fallegri hönnun og áhugi á að
selja gæðavörur.
• Ábyrgð, utanumhald og umsjón ákveðins hóps
stærri viðskiptavina.
• Sala og tilboðsgerð.
• Frumkvæði við öflun nýrra viðskiptavina.
• Annast kynningu á húsgagnalausnum og vörum
fyrir viðskiptavini.
• Önnur tilfallandi verkefni.
capacent.is
Ráðgjafar okkar búa