Morgunblaðið - 05.09.2019, Page 8
8 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER 2019
Ertu að leita að rétta
starfsfólkinu?
75 til 90 þúsund manns, 18 ára og
eldri, lesa blöð Morgunblaðsins með
atvinnuauglýsingum í hverri viku*
Þrjár birtingar á verði einnar
Birt í atvinnublaði Morgunblaðsins í
aldreifingu á fimmtudögum
Birt í atvinnublaði Morgunblaðsins á laugardegi.
Sölufulltrúi Richard Richardsson,
atvinna@mbl.is, 569 1391
* samkvæmt Gallup jan.-mars 2019
Endurhugsa þarf núverandi
fyrirkomulag dýralækninga í
landinu þar sem algjör að-
skilnaður er milli opinbers
eftirlits og þjónustu. Samn-
ingar Matvælastofnunar um
þjónustu við dýraeigendur á
dreifbýlli svæðum falla úr
gildi 1. nóvember næstkom-
andi og þá verða níu dreifbýl
svæði án þjónustu dýralækn-
is. Á þessu er vakin athygli í
pistli frá Dýralæknafélagi Ís-
lands, sem hélt sumarfund
sinn nú nýverið. Þar segir að
breyta verði starfsskilyrðum
dýralækna svo þeir geti kom-
ist í frí, sótt sér endur-
menntun, farið í orlof og svo
framvegis.
Bent er á að þekking og
reynsla margra þeirra dýra-
lækna sem veitt hafa þjón-
ustu með höndum samkvæmt
samningunum sé vannýtt
auðlind og mætti njóta þeirra
krafta við mörg önnur verk-
efni. Samningar þessir snúast
um þjónustu við neytendur.
Nauðsynlegt sé að fleiri en nú
er komi að því að tryggja gott
kerfi um dýraheilbrigði og
-velferð á landinu öllu.
Of naumur tími
Dýralæknafélagið á full-
trúa í starfshópi landbún-
aðarráðherra um breytingar
á kerfi sem á að tryggja dýra-
velferð og viðbrögð við dóm-
um alls staðar á landinu og
allan sólarhringinn. Hópurinn
á að skila tillögum að breyttu
kerfi í október, en þá verður
umsóknarfrestur um samn-
inga um dýralæknaþjónustu í
dreifðum byggðum runninn
út. Því sé of naumur tími til
stefnu til þess að hægt verði
að gera breytingar. Á sum-
arfundinum var mál manna að
ekki ætti að skrifa undir
samning til fimm ára á meðan
við lýði er núverandi kerfi,
sem Matvælastofnun er hvött
til að breyta. sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Réttir Festa í dýralæknaþjónustu er bændum mikilvæg og
skorað er á stjórnvöld að tryggja þar nauðsynlegt jafnvægi.
Níu dreifbýl svæði
verða án dýralæknis
Matvælastofnun breyti skilyrðum
Í dag, fimmtudaginn 5. sept-
ember, verður haldin málstofa
um tækifæri dreifðra byggða í
fjórðu iðnbyltingunni. Manna-
mót þetta er með sömu dag-
skrá á sex stöðum á landinu og
dagskráin send út á netinu.
Staðirnir eru Borgarnes, Ísa-
fjörður, Sauðárkrókur, Ak-
ureyri, Reyðarfjörður og Sel-
foss. Málstofan er skipulögð af
Nýsköpunarmiðstöð Íslands
og landshlutasamtökum sveit-
arfélaga í samvinnu við
Byggðastofnun. Dagskráin
hefst kl. 9 og stendur fram til
13.30.
„Að hugsa til framtíðar gef-
ur tækifæri á að takast á við
breytingar, dagurinn í dag er
nýtt upphaf. Þéttbýlisstaðir og
borgir víðs vegar um heiminn
eru upptekin af því að þróa
það sem nefnt er snjallar
lausnir, oftast í tengslum við
stafræna þróun. Oft er um að
ræða aukna sjálfvirkni og að
innleiða nýjungar sem eru
skilvirkari í tengslum við at-
vinnuþróun, menntun, heil-
brigðismál eða annað. Tæki-
færin eru ekki síður við þróun
dreifðra byggða,“ segir í frétt
frá aðstandendum samkom-
unnar.
Njóta lífsgæða
Með fjórðu iðnbyltingunni
skapast tækifæri fyrir dreifð-
ar byggðir fyrir aukna þjón-
ustu og ný störf en um leið að
njóta allra þeirra lífsgæða sem
búseta í dreifðum byggðum
hefur í för með sér, segir í til-
kynningu. Þórdís Kolbrún
Reykfjörð Gylfadóttir nýsköp-
unarráherra setur málstofuna
en á eftir fylgja erindi sér-
fræðinga og fólks sem þekkir
til þessara mála. sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Landsbyggðin Sauðárkrókur verður í loftinu á málstofu dagsins.
Bylting í byggðunum
Nýir möguleikar Sex staðir
á landinu á málstefnu í dag