Morgunblaðið - 06.09.2019, Side 6

Morgunblaðið - 06.09.2019, Side 6
Bílastæði ætti að vera val Edda segist vera mjög ánægð með íbúðina í heild sinni, enda er hún sérlega björt. „Sólin er hér til klukkan tvö þrjú á daginn en seinnipart- inn speglast hún hingað yfir af húsunum á móti. Það er bara eitt sem mér finnst furðulegt hérna og finnst að mætti endurskoða þegar verið er að byggja nýbyggingar. Með þessarri íbúð fylgir bílastæði í bílakjallara. Ég á hins vegar ekki bíl heldur fer allra minna ferða fótgang- andi, á hlaupahjóli eða á hjóli. Mér finnst algjör tímaskekkja að bílastæði fylgi með nýjum íbúð- um, það ætti að vera val að eiga bílastæði því svona byggingar kosta heilmikið. Bílastæða- kjallarar eru sérstaklega dýrir og leggur það mikinn aukakostnað á hverja íbúð. Eins finnst mér að það mætti almennt samnýta bílastæða- kjallara meira. Við þetta hús stendur t.d. bíla- stæðakjallarinn meira og minna tómur á dag- inn þegar íbúar eru í vinnu. Fyrirtæki hér í kring gætu mögulega nýtt sér stæðin yfir dag- inn. Þannig væri kjallarinn í notkun allan sólar- hringinn,“ stingur Edda upp á og bætir við að þetta eigi örugglega við víðar. „Ég leigi mitt stæði reyndar út því ég hef hina gullnu þrenn- ingu; vinnu, skóla og matvörubúð, í göngufæri við mig svo ég þarf ekki bíl og er mjög ánægð með það.“ Aðspurð hvað sé annars fram undan í vetur þá segir hún verkefnin næg í vinnunni hjá Reykjavíkurborg. „Það er margt að gerast. Við erum að endurhanna Laugaveginn og vinna við Hlemmsvæðið er í fullum gangi. Síðan falla ýmis smærri verkefni til sem miða öll að því að gera borgina meira lifandi og skemmtilega.“ Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Ömmu Eddu fannst þessi glerkertastjaki mjög ljótur en Edda fékk að eiga hann og þykir mjög vænt um hann. Bleiki neonlampinn var keyptur í Svíþjóð en Edda bjó þar í fjögur ár. Með íbúðinni fylgir stæði í bílakjallara. Ég á hins vegar ekki bíl en fer allra minna ferða fótgangandi, á hlaupahjóli eða á hjóli. 6 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2019

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.