Morgunblaðið - 06.09.2019, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 06.09.2019, Qupperneq 18
G gamli bærinn í Reykjavík er gott dæmi um þá síbreytilegu strauma sem eru í samfélaginu. Fyrir um þrjátíu til fjörtíu ár- um bjuggu þar einna helst ljóð- skáld og kaffiþambandi listamenn í bland við ungmenni sem leigðu íbúðir og herbergi og stunduðu nám Háskólanum. Fjölskyldufólkið sótti hins vegar í nýju úthverfin þar sem rýmra var um alla og jafnvel hægt að leggja tveimur bílum í innkeyrsluna eða við blokk- ina. Halla Unnur Helgadóttir, fasteignasali og eigandi fasteignasölunnar Gimli, hefur til fjölda ára fylgst með þróun fasteignamála en hún segir að síðustu misserin hafi borið tölu- vert á því að fólk leiti út fyrir höfuðborgar- svæðið til að kaupa fyrstu eign sína eða til að stækka við sig. Þar sé fasteignaverðið lægra en þjónustan ekki endilega síðri en það sem býðst í borginni. „Margir kjósa nú að búa í nágrannasveit- arfélögunum en halda áfram að vinna á höfuðborgarsvæðinu. Og þegar fram líða stundir munu þessi nágrannasveitarfélög væntanlega eflast í takt við íbúafjöldann og við það bætist innviðauppbygging sem þetta sama fólk á þátt í að skapa. Þar með eflast svo atvinnutækifærin í bæjunum, sem hafa svo enn meiri jákvæð keðjuverkandi áhrif,“ segir Halla. Bættar samgöngur og betri nettengingar hafa meðal annars haft áhrif á þessa þróun. Reykjanes, Selfoss, Hveragerði og Akranes hafa skyndilega dottið inn á kortið sem val- kostur hjá fólki sem fyrir fáeinum árum hefði kannski síður valið þessa bæi til að finna framtíðarheimili sitt. „Markaðurinn á Akranesi tók líka rækilega við sér þegar gjaldið í göngin var fellt niður“ Halla segir að verðþróun fasteigna í ná- grannasveitarfélögunum hafi yfirleitt verið í takt við verðþróun á höfuðborgarsvæðinu en öfugt við framboðið á höfuðborgarsvæðinu sé verð á nýbyggingum í nágrannasveitarfélög- unum töluvert lægra. „Þorlákshöfn, Stokkseyri og Eyrarbakki hafa líka komið sterk inn upp á síðkastið en verðstuðull annarra sveitafélaga í grennd við höfuðborgina hefur í gegnum tíðina verið um 0,7 sem má útskýra sem svo að þriggja her- bergja íbúð á til dæmis Selfossi kostar 70% af verði þriggja herbergja íbúðar á höfuð- borgarsvæðinu,“ útskýrir Halla og bætir við að hvað fjölbýli varðar sé fermetraverð á Selfossi hæst af þessum stöðum. Um leið leggur hún áherslu á að tölurnar séu meðal- tal og til viðmiðunar en ekki hárnákvæmar. Hún tekur einnig fram að fermetraverð á sérbýli í Reykjanesbæ, Akranesi og á Sel- fossi sé mjög svipað en Hveragerði hafi hins vegar tekið stórt stökk síðustu misserin. „Markaðurinn á Akranesi tók líka rækilega við sér þegar gjaldið í göngin var fellt niður.“ Heilsárshús sem heimili Á síðustu árum hafa sérlega falleg og stæðileg heilsárshús risið víða í grennd við höfuðborgarsvæðið. Mörg þeirra eru svo vistleg að eigendurnir kjósa heldur að dvelja þar flestum stundum fremur en að hafast við í skarkala borgarinnar. Umferðartafirnar á háannatíma í borginni eru orðnar slíkar að það tekur manneskju sem vinnur á Höfðan- um og býr í Kjósinni jafnvel styttri tíma að komast til og frá vinnu en ef hún byggi á Seltjarnarnesi eða í Vesturbænum. Þá er álíka langt frá Mosfellsbæ upp á Akranes og frá Mosfellsbæ í gamla miðbæinn. Halla segir að það hafi alltaf verið eitthvað sig löngu fyrr, enda erfitt fyrir flesta að við- halda stórum húsum þegar komið er á átt- ræðisaldur. Svo finnst þeim stundum að þau séu nýbúin að taka allt í gegn þegar það eru kannski tuttugu ár síðan skipt var um inn- réttingar.“ Fyrstu áhrif koma bara einu sinni Að lokum er lag að leita ráða hjá þessum reynda fasteignasala hvað varðar sölumálin. Halla segir að það sé alltaf ráðlegt að taka vel til og þrífa áður en íbúðin er sýnd. Hún segir að það sé líka gott að byrja fyrr en síð- ar að pakka niður þar sem flutningar séu á döfinni. „Því minna af persónulegum hlutum, þeim mun betra. Það verður þó að gæta að jafn- vægi því við viljum að það sjáist að fólk búi í eigninni. Svo er gott að lagfæra smáatriði og jafnvel mála einhverja veggi. Fyrstu áhrif koma nefnilega bara einu sinni. Við skoðum allar eignir og komum með ítarlegri ráðlegg- ingar fyrir hverja og eina sé þess óskað. Fyrir myndatökuna aðstoðum við við að fjar- lægja persónulega muni, yfirhafnir, skó og því um líkt, smáhluti á baðherbergjum og í eldhúsi svo eitthvað sé nefnt og í samráði við ljósmyndarann færum við svo stundum til húsgögn.“ Að lokum bendir hún á að það borgi sig ekki að fara út í of miklar aðgerðir áður en eign fer á sölu. „Til dæmis er óþarfi að skipta um gólfefni nema það sé í hróplegu ósamræmi við annað í eigninni. Við lítum á það sem tækifæri fyrir nýjan eiganda að setja mark sitt á nýja heimilið en ef það er búið að endurnýja allt í íbúðinni getur þó horft öðruvísi við,“ segir Halla Unnur Helgadóttir að lokum. irlaun og minnka um leið við sig. Það er oft sagt að römm sé sú taug sem rekka dregur föðurtúna til en öfugt við flest póstnúmer á höfuðborgarsvæðinu sýnist mér þetta mál- tæki ekki eiga við Breiðholtinu. Margir þeirra sem stæra sig beint og óbeint af því að hafa alist þar upp búa allt annars staðar í bænum, sem er í raun merkilegt því Breið- holtið er stórt og fjölbreytt svæði með ótal- marga kosti,“ segir Halla og bætir við að hún undrist stundum það að yfirleitt sé horft á Breiðholtið sem heilt hverfi þegar í raun skiptist það í þrjú ólík hverfi, hvert með sinn kúltúr. Þetta kemur vel heim og saman við nýleg- ar fréttir af skólamálum í Breiðholtinu. Þar kom fram að yfirgnæfandi meirihluti nem- enda í Fellaskóla væri af erlendum uppruna, en aðeins fimm þeirra sem hófu nám í skól- anum síðasta haust hafa íslensku að móður- máli. Milli sjötíu og áttatíu prósent nemenda Fellaskóla koma frá heimilum með annað móðurmál en íslensku, en það hlutfall hefur hækkað jafnt og þétt síðustu ár og telst tölu- vert áhyggjuefni. Erfiðara að sinna viðhaldi á áttræðisaldri Spurð að því hvort eitthvað hafi breyst í húsnæðismálum eftirlaunaþega segist Halla hafa tekið aðeins eftir því að þessi hópur búi lengur í stærri eignum og flytji þannig síðar í húsnæði sem sérstaklega er hugsað fyrir þennan hóp. „Ef við skoðum sem dæmi fólkið sem er að kaupa í Árskógum virtist mér meirihlut- inn vera kominn vel yfir sjötugt þegar ég fór yfir yfirlitin. Meðalaldurinn gæti jafnvel ver- ið um áttrætt. Margt eldra fólk hefur talað um það við mig að það hefði mátt minnka við um það að fólk sæki frekar í sveitakyrrðina í grennd við borgina en þar sem hömlur séu á því að lögheimili sé skráð á sumarbústað eða heilsárshús sé erfitt að fylgjast með þessari þróun. „Mögulega er þetta byrjað að spyrjast út og gæti færst í aukana þó að við á fasteigna- sölunni höfum ekki orðið sérlega vör við það ennþá. Það hefur auðvitað alltaf verið eitt- hvað um það að fólk eigi litla íbúð í borginni og hafi lögheimili sitt þar en dvelji meira í heilsárshúsum. Svo er þetta jú þannig að um leið og fræga fólkið fer að hampa bæjum og búsetu verður skriða,“ segir Halla en svo dæmi blaðamanns séu tekin má nefna að hin ástsæla leikkona Ágústa Eva Erlendsdóttir, sem býr í Hveragerði, er sjálfskipaður sendi- herra blómabæjarins og Bubbi Morthens hefur búið í Kjósinni til fjölda ára og birt þaðan fallegar myndir á samfélagsmiðlum. Í Seljahverfinu frá vöggu til grafar Breytingarnar eiga sér ekki bara stað ut- an borgarinnar heldur líka innan hennar. Íbúar endurnýjast þegar þeir eldri flytja í minna húsnæði og barnafólkið tekur við. Halla segist taka sérstaklega eftir því að þetta sé að gerast í Bústaðahverfinu og í vesturbæ Kópavogs. „Hverfi eldast og yngjast til skiptis eins og gengur en sum hverfi hafa þó verið hönn- uð með það í huga að þar sé hægt að búa frá vöggu til grafar,“ segir hún og tekur Selja- hverfið í Breiðholti sem dæmi. „Þar eru allar gerðir af húsum. Seljahverfið var hannað síðast af hverfunum í Breiðholti og þar var hugsunin sú að búa til svona heildstætt hverfi. Allt frá íbúðum sem henta fyrstu kaupum til eldri borgaranna sem fara á eft- Áberandi sölukippur í nágranna- sveitarfélögum höfuðborgarsvæðisins Líkt og með allt annað sem tengist samfélaginu eru straumar í fasteignamálum síbreytilegir. Kúltúrinn breytist þegar bæjarfélög braggast og það sem áður þótti óspennandi verður allt í einu mjög eftirsótt. Margrét Hugrún Gústavsdóttir | margrethugrun@gmail.com Halla Unnur Helgadóttir fasteignasali og eigandi fasteignasölunnar Gimili. Morgunblaðið/Eggert 18 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2019

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.