Morgunblaðið - 06.09.2019, Page 31

Morgunblaðið - 06.09.2019, Page 31
og taka tveggja tíma fund með nokkrum fasteignasölum til að átta sig á stöðunni. Við gætum komið okkar hugmyndum inn sem myndi koma þeim til góða sem hér ætla að búa.“ Jafnvægi komið á markaðinn Mikil spenna hefur einkennt fasteignamarkaðinn á Akureyri á undanförnum árum en nú virðist hann vera kominn í eðlilegra ástand. „Sem betur fer er komið jafnvægi á markaðinn þá bæði hvað varðar kaupendur og verð. Fyrir einu og hálfu ári var mark- aðurinn rosalega seljandavænn og barist var um hverja eign. Núna er komið meira jafnvægi og er markaðurinn aðeins að slá meira yfir í það að verða kaupendavænn. Verð er að setjast og eðlilegt verð- bil að myndast á milli nýbygginga og eldra húsnæðis,“ segir Tryggvi. Friðrik tekur undir þetta og segir að salan sé góð þó að ekki séu nein læti og hlutirnir gangi ekki eins hratt og áður. Hann bætir við að ánægjulegt sé að sjá unga fólk- ið aftur vera komið út á markað- inn. „Þegar síðustu kjarasamning- ar voru gerðir voru fyrstu kaupendum gefin ákveðin loforð og það hægði svolítið á markaðinum. Nú er unga fólkið komið aftur af stað. Á árunum 2016-17 var tölu- vert um það að Reykvíkingar væru að kaupa orlofseignir á Akureyri og það ýtti fyrstu kaupendum út af borðinu. Núna er mun minna um það og unga fólkið á meiri möguleika á litlu íbúðunum.“ Ungt fólk vill búa á Akureyri Nokkur umræða hefur verið um það að fólksfjölgun á Akureyri sé ekki nægjanleg en Tryggvi bendir á að ekki megi aðeins horfa á strípaðar tölur í þeirri umræðu. „Við skulum líka gleðjast yfir því þegar ungt fólk í foreldrahúsum kýs að búa hér áfram og vill fjár- festa í húsnæði hér frekar en að fara á leigumarkaðinn í Reykjavík fyrir 250 þúsund á mánuði.“ Þeir segja að í Hagahverfi sé hægt að fá vel skipulagðar glænýjar þriggja herbergja íbúðir kosti í kringum 30 milljónir. „Það er ekki eðlilegt að fólk sem er að kaupa sína fyrstu íbúð á Reykjavík- ursvæðinu þurfi að borga 50-60 milljónir fyrir sambærilegar eign- ir,“ segir Tryggvi og Friðrik bætir við. „Við sjáum líka að foreldrar úti á landi eru mikið að hjálpa til. Þegar kannski tvö börn eru komin til Akureyrar, eitt í háskóla og eitt í framhaldsskóla þá er miklu gáfu- legra að kaupa íbúð fyrir börnin heldur en að leigja. Annars finnst mér ungt fólk vera mjög ábyrgt í fasteignakaupum. Það er mjög upplýst og skiptir um húsnæði í minni stökkum en áður. Eins falla mun færri á greiðslumati í dag en fyrir nokkrum árum. Fólk veit betur hvað það getur og er ekkert að bjóða í eitthvað sem það ræður ekki við.“ Núllpunkturinn 20 milljónir Talið berst að fasteignaverði á Akureyri og segja fasteignasal- arnir að meðal fermetraverð á nýj- um tveggja herbergja íbúðum sé 400 þúsund en 300-350 þúsund á eldri byggingum og er þá sýnu hæst í Giljahverfi. Eins segja þeir að varla komi lengur eign á sölu undir tuttugu milljónum, það sé því nýi núllpunkturinn á Akureyri. Hagahverfi er nýjasta hverfi Ak- ureyrar og liggur það syðst í bæn- um. Það er að mörgu leyti allt öðruvísi heldur en önnur hverfi bæjarins, því byggðin þar er þétt og blanda af blokkum, einbýlum og raðhúsum. „Ég persónulega er ekki hrifinn af þessu skipulagi og finnst skrýtið að þeir sem eru að kaupa sér einbýli séu með blokk í bakgarðinum. Mér finnst eðlilegra að hafa skýrari skiptingu á milli mismunandi bygginga,“ segir Frið- rik en Tryggvi er öllu jákvæðari. „Ég held að Hagahverfið, þegar það er fullbyggt, verði rosalega umhverfisvænt hverfi. Strætóinn kemur t.d. ekki inn í hverfið held- ur verða íbúar að ganga út á að- albrautirnar. Ég held að það verði mjög barnvænt hverfi þegar fram í sækir.“ Tryggvi vísar í elsta hluta Naustahverfisins sem mörgum fannst skrýtið þegar það var að byggjast upp. „Nú þegar hverfið er orðið rótgróið er fólk mjög ánægt með að búa þar og finnst skipulagið gott. Ég spái því að það sama muni gerast með Haga- hverfið.“ Báðir eru þeir sammála því að í framtíðinni þurfi menn að leggja meiri metnað í skipulagsmál og að bæjaryfirvöld verði að horfa enn betur á heildarmynd hverfa því þannig má koma í veg fyrir skipulagsslys. „Fyrst og fremst þarf þó að hugsa um að byggja eignir sem íbúarnir vilja búa í en auðvitað helst fleira í hendur eins og atvinnutækifæri og þjónusta svo bærinn verði ákjósanlegur að búa í,“ segir Tryggvi og slær þar með botninn í umræðurnar. Ljósmynd/Snæfríður Ingadóttir Tryggvi og Friðrik fasteignasalar á Akureyri segja að það vanti lítil einbýlishús með bílskúr og fleiri nýjar 2-3 herbergja íbúðir á fasteignamarkaðinn á Akureyri. FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2019 MORGUNBLAÐIÐ 31 LEITAR ÞÚ AÐ DRAUMA- EIGNINNI SPÁNI? Við erum fasteignasala með áratugareynslu af sölu fasteigna Sumar eignir eru betri en aðrar eignir. Sumareignir.is • www.eignalind.is Hafðu samband í síma 616 8880 eða á tölvupósti sos@eignalind.is Sigurður Ellert gústa Heiða Einar Akureyri Embla Erlendur SUMAREIGNIR.IS • Eignalind fasteignasala og www.Sumareignir.is Löggiltir fasteignasalar með áratuga reynslu af sölu fasteigna. • Við veljum aðeins bestu fasteignirnar fyrir okkar viðskiptavini. Hjá okkur finnur þú aðeins fasteignir sem mæta hæstu kröfum hvað varðar verð, gæði, staðsetningu og hönnun. • Við erum á staðnum og tökum sjálf á móti þér á flugvellinum eða náum í þig á hótelið. • Þegar þú hefur fundið draumaeignina þína munum við aðstoða þig við kaupferlið frá upphafi til enda. Kíktu inná síðuna okkar www.Sumareignir.is. Við erum með skrifstofu í Kópavogi, Akureyri og í Playa Flamenca á Costa Blanca. Ekki hika við að hafa samband í síma 616 8880 eða á tölvupósti sos@eignalind.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.