Morgunblaðið - 31.10.2019, Síða 4

Morgunblaðið - 31.10.2019, Síða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 2019 Faxaflóahafnir sf. óska eftir að ráða yfirvélstjóra dráttarbáta Faxaflóahafna sf. til starfa. Starfið felst m.a. í vélstjórn á dráttarbátum sem og yfirumsjón með viðhaldi og umgengni um borð í dráttarbátum Faxaflóahafna sf. Unnið er í dagvinnu alla virka daga frá 07:00 til 17:00. Viðkomandi er verkstjóri annarra vélstjóra í þeim viðhalds og umgengnisverkefnum dráttarbáta sem sinna þarf hverju sinni auk annarra tilfallandi verkefna tengt hafnarþjónustu. Hæfniskröfur eru vélstjórnarréttindi VF.1, reynsla af yfirvélstjórn skipa, öryggisnám Slysavarnaskóla sjómanna, góð íslensku-, ensku- og tölvukunnátta. Þar sem í gildi eru ákvæði laga um hafnavernd þá er óskað eftir að umsækjandi geti lagt fram sakavottorð. Umsókn ásamt ferilskrá sendist til Faxaflóahafna sf., á netfangið olafur@faxafloahafnir.is eigi síðar en fimmtudaginn 31. október n.k. Nánari upplýsingar um starfið gefur Gísli J. Hallsson yfirhafnsögumaður gisli@faxafloahafnir.is Yfirvélstjóri Faxaflóahafna sf. Umhyggja er félag sem vinnur að bættum hag langveikra barna og fjölskyldna þeirra, en undir hatti Umhyggju starfa 18 foreldrafélög langveikra barna á Íslandi. Markmið Umhyggju er að standa vörð um réttindi langveikra barna og styðja við fjölskyldur þeirra á margvíslegan hátt. Sálfræðiþjónusta fyrir foreldra langveikra barna er meðal þeirrar þjónustu sem Umhyggja býður upp á. Umhyggja – félag langveikra barna óskar eftir sálfræðingi í 50-100% starfshlutfall Helstu verkefni og ábyrgð • Stuðnings- og ráðgjafarviðtöl við foreldra langveikra barna • Þátttaka í fræðslustarfi, fyrirlestrum eða námskeiðum um sálfræðileg málefni fyrir fjölskyldur langveikra barna • Önnur verkefni sem framkvæmdastjóri/stjórn felur starfs- manni Menntun og hæfniskröfur • Réttindi til að starfa sem sálfræðingur á Íslandi • Þekking og reynsla á málefnum langveikra barna æskileg • Þekking og reynsla af vinnu með áföll æskileg • Sérlega góð færni í mannlegum samskiptum • Frumkvæði, sjálfstæði, jákvæðni og sveigjanleiki Umhyggja býður sanngjörn kjör og sveigjanleika í starfi. Umsóknum ásamt ferilskrá og kynningarbréfi skal skilað til Umhyggju -félags langveikra barna, Háaleitisbraut 13, 108 Reykjavík, eða í tölvupósti á netfangið arny@umhyggja.is eigi síðar en 1. nóvember. Miðað er við að starf hefjist sem fyrst eftir áramótin, eða í samráði við starfsmann. Nánari upplýsingar veitir Árný Ingvarsdóttir, sálfræðingur og verkefnastjóri í síma 6617166 eða arny@umhyggja.is Þú ert ráðin/n! FAST Ráðningar Uppáhaldssetningin okkar hjá FAST ráðningum www.fastradningar.is „Fýllinn hefur um manns- aldra mótað matarmenningu á þessu svæði,“ segir Sig- urður Elías Guðmundsson, veitingamaður í Víkurskála í Mýrdal. Þar var síðast- liðna helgi efnt til fýla- veislu, hvar á borðum var saltaður og reyktur fýll. Það er um mán- aðamót ágúst og september ár hvert sem feitir fýlsungarnir vilja komast á flug og sveima þá úr klettasyllum fram til sjávar. Margir komast þó aldrei alla leið enda ekki orðnir fleygir. Lenda því á jafnsléttu og eru þá auðveld bráð veiðimanna, sem koma að þeim og rota með priki. Dauður fuglinn er eftir það reyttur og sviðinn og síðan lagður í salt. Krökkt af fugli Núna, tveimur mánuðum síðar, er fuglinn orðinn herramannsmatur og þá þykir Mýrdælingum tíma- bært að efna til fýlaveislu eins og gert var í Vík- urskála á laugardags- kvöldið. „Mér finnst fýllinn góður matur og sú er yfirleitt raunin með fólk sem þessu hefur vanist,“ segir Elías sem fer jafnan á fýl á haustdögum. „Mér hefur reynst best að fara þá í gil- in sem eru hér inn við Mýr- dalsjökul, þar er yfirleitt mikið af fugli sem er auð- velt að ná. Annars er í sum- arlok allt krökkt hér á svæðinu af fugli, sem hefur þá verið að reyna að fljúga eða láta sig berast á ám og lækjum fram til sjávar.“ Hvunndagsmatur en nú fágæti Að veiða fýl til matar er hefð sem nánast einskorðast við Mýrdal og Eyjafjöll. Fólk sem á rætur sínar á þessum slóðum er vant þessu fuglakjöti – en forð- um tíð var algengt að fýll væri þar á borðum vikulega. Hvunndagsmaturinn er hins vegar fyrir löngu orðinn að fágæti, því nú hirða mun færri um þessi hlunnindi en áður var. Um 170 manns mættu í fýlaveisluna í Víkurskála á laugardagskvöldið og svo allir fengju skammtinn sinn þurfti að setja 200 fugla í pott. Góðgætið var svo bor- ið fram með kartöflum, róf- um og miklu af smjöri. Margir skáluðu síðan í ís- lenskri mjólk. „Þetta er skemmtun í þorrablóts- stílnum þar sem skemmti- legar hefðir eru í heiðri hafðar,“ segir Sigurður Elí- as. sbs@mbl.is Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Lyst Mýrdælingar tóku hraustlega til matar síns, enda hafa nytjar af fýlnum alltaf skipt verulegu máli í Mýrdal. Veislan í Víkinni  Fýll er fínasti matur  Rotað með priki  Reyttur og sviðinn Morgunblaðið/Sigurður Bogi Ófleygur Fýlsungi á vegi undir Eyjafjöllum í haust.Sigurður Elías Guðmundsson Krafist er róttækra breyt- inga í húsnæðismálum svo tryggt sé að hagsmunir verkafólks verði teknir fram yfir hagsmuni fjármagnseig- enda. Þetta segir í ályktun 7. þings Starfsgreina- sambandsins sem haldið var í síðustu viku. Sambandið tel- ur að verka- og láglaunafólki hafi ekki verið tryggt að- gengi að góðu húsnæði á mannsæmandi kjörum. Verkamannabústaðakerf- ið hafi verið eyðilagt með pólitísku skemmdarverki og með því hafi stór hópur fólks misst húsnæðisöryggi sitt. Eftir hrun hafi þúsundir landsmanna misst heimili sín. Í stað þess að stjórnvöld tækju að sér að gæta hags- muna alþýðufólks hafi fjár- magnseigendum verið gefið færi á að sölsa undir sig leigumarkaðinn með skelfi- legum afleiðingum. „Hvergi sést sú ömurlega stéttaskipt- ing, sem hefur fengið að vaxa óhindrað á Íslandi, með skýrari hætti en þegar hús- næðismál eru skoðuð. Á með- an auðmenn nota húsnæð- ismarkaðinn til að græða hundruð milljóna þarf lág- launafólk að greiða allt að 80% ráðstöfunartekna sinna í leigu,“ segir í ályktun. Á þinginu var forysta Starfsgreinasambandsins kjörin til næstu tveggja ára. Björn Snæbjörnsson var endurkjörinn formaður SGSog Sólveig Anna Jóns- dóttir var kjörin varafor- maður. Hjördís Þóra Sig- urþórsdóttir, varaformaður, gaf ekki kost á sér áfram. Húsnæðisöryggi sé tryggt

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.