Morgunblaðið - 31.10.2019, Side 17
FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 2019 MORGUNBLAÐIÐ 17
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
T
ogskip Gjögurs hf. á Grenivík, Áskell
EA 749 og Vörður EA 748, voru tek-
in upp í Slippinn í Reykjavík í sum-
ar. Unnið var að því næstu vikurnar
að pússa og mála skipin áður en þau
voru afhent nýjum eigendum, FISK á Sauð-
árkróki og útgerð Soffaníasar Cecilssonar á
Grundarfirði.
Áskell er stálskip, smíðað í Taívan árið
2007-’09, 362 brúttótonn að stærð. Skipið hét
áður Helga RE. Áskell var flokkaður sem ís-
fisktogari. Aðalvélin er skráð 600 hestöfl.
Vörður var smíðaður í Gdynia í Póllandi
2006-07. Hann er sömuleiðis stálskip og
skráður sem ísfisktogari. Hann er 486 brúttó-
tonn og aðalvélin 700 hestöfl.
Fisk Seafood á Sauðárkróki gekk frá kaup-
um á skipunum tveimur í lok árs 2018. Skipin
voru seld án kvóta en í sérstökum viðskiptum
með aflaheimildir keypti Fisk Seafood af
Gjögri tæplega 350 tonna kvóta í ufsa og 245
tonn í djúpkarfa auk heimilda í fleiri teg-
undum. Verðmæti viðskiptanna miðað við þá-
verandi gengisskráningu var tæplega 1,7
milljarðar króna.
Eftir að búið var að snurfusa og laga
bátana fóru þeir niður úr Slippnum í litum
nýju eigendanna: bláir. Þá tók við vinna við
nýjar vinnslulínur á millidekki og ný tæki
voru sett um borð.
Það var svo laugardaginn 28. september
sem bátarnir sigldu fánum prýddir inn í
Grundarfjarðarhöfn að viðstöddu miklu fjöl-
menni. Nú skörtuðu þeir nýjum nöfnum: Far-
sæll SH 30 og Sigurborg SH 12. Eldri skip
með sömu nöfnum voru sett á söluskrá.
Það er ætíð stór stund í sjávarplássum
landsins þegar ný skip koma til hafnar í fyrsta
skipti. Enda var tíðindamaður Morgunblaðs-
ins, Sigurður Bogi Sævarsson, mættur til að
skrásetja atburðinn.
„Núna erum við að fá smáa en knáa troll-
báta sem vonandi munu gera okkur kleift að
sækja á fleiri mið en fyrr, fjölga aflategundum
og auka um leið rekstraröryggið,“ sagði Frið-
björn Ásbjörnsson útgerðarstjóri um skipin
nýju, sem verða gerð út frá Grundarfirði, þar
sem útgerð kennd við athafnamanninn Soff-
anías Cecilsson á sér fastan sess.
Það dró ekki úr gleðinni að vikuna á eftir
kom þriðja nýja skipið til Grundarfjarðar. Það
var nýr Runólfur SH 135 í eigu fyrirtækisins
Guðmundar Runólfssonar hf. Skipið, sem er
486 brúttótonn, hét áður Bergey VE 544 og
var í eigu Bergs-Hugins/Síldarvinnslunnar.
Gjögur hf. á Grenivík lét smíða tvö ný tog-
skip í stað hinna fyrri sem seld voru til
Grundarfjarðar. Skipin eru bæði komin til
landsins. Þau fengu nöfn forvera sinna; Áskell
og Vörður. Þau verða gerð út frá Grindavík.
Skipin voru smíðuð hjá VARD í Noregi ásamt
fimm systurskipum fyrir aðrar íslenskar út-
gerðir.
Morgunblaðið/sisi
Fóru upp gráir en niður aftur bláir
Gaman var að fylgjast með því síðasta sumar þegar tveir bátar
„skiptu um ham“ á nokkrum vikum í Slippnum í Reykjavík.
Suðurhraun 4 • 210 Garðabæ • Furuvöllum 3 • 600 Akureyri • Sími: 575 8000 • Fax: 575 8001 • www.samhentir.is
P
R
E
N
T
U
N
.IS
L Í M M I ÐA P R E N T U NUMBÚÐALAUSNIR
UMBÚÐIR & PÖKKUN ERU OKKAR FAG
FERSKFISKKASSAR SEM ERU
100 % ENDURVINNANLEGIR .1
00
%
RECYCLAB
LE
.100% RECYCL
AB
LE
CoolSeal kassinn er umhverfisvænn og því
góður valkostur í stað frauðplastkassa
Gámakassi, vélreistur
með styrkingu í hornum
skýr og góð prentun.
Nýr flugkassi, tvöföld langhlið
sem tryggir meiri styrk og
betri einangrun.