Morgunblaðið - 09.11.2019, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 09.11.2019, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 2019 Útgefandi Árvakur Umsjón Marta María Jónasdóttir Blaðamenn Marta María Jónasdóttir mm@mbl.is, Elínrós Líndal elinros@mbl.is Snæfríður Ingadóttir snaeja@gmail.com Auglýsingar Jón Kristinn Jónssonjonkr@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Forsíðumynd: Unsplash S íðustu ár hefur undirrituð tekið miklum framförum í að pakka létt, lesist ferðast heimsálfa á milli aðeins með handfarangur. Þetta trix hefur sparað ógurlegan tíma og aukið ánægju á ferða- lögum svo um munar sérstaklega ef undirrituð hefur þurft að skipta um flugvél á miðri leið. Það að ferðast með handfarang- urstösku gerir það að verkum að fólk þarf að vera búið að hanna atburða- rás frísins og taka aðeins það allra nauðsynlegasta með sér. Dag einn kom að því að handfarangurstaskan sem var búin að þjóna sín- um harða húsbónda vel og lengi gaf upp öndina og þá þurfti að kaupa nýja. Undirrituð fór því í verslun á höfuðborgarsvæðinu sem sérhæfir sig í sölu á bókum og ritföngum og keypti þar ferðatösku. Þegar undirrituð var að velja „handfarangurstösku“ leitaði hún ráða hjá starfsfólkinu og spurði þau hvort taskan sem mér leist best á væri ekki örugglega handfarang- urstaska og fékk þau svör að þau „héldu“ það. Afskiptasemi undirritaðrar og stjórnsemi fer stundum fyrir brjóstið á fólk- inu í kringum hana og því ákvað hún einu sinni að sleppa tökunum og treysta. Fyrir „handfarangurstöskuna“ reiddi undirrituð fram dágóða upphæð og var nokkuð ánægð með kaupin. Þeg- ar heim var komið gekk ógurlega vel að pakka í töskuna og lífið virtist leika við undirritaða þangað til skellurinn kom. Skellurinn var dálítið óþægilegur því einhvern veginn komst undirrituð með töskuna í gegnum gegnumlýsingartæki Leifsstöðvar án athugasemda. Það var ekki fyrr en sú sem hér skrifar var mætt um borð í flugvélina sem ógæfan dundi yfir. Þar var henni tjáð að taskan færi aldrei inn í farþegarýmið heldur yrði sett í farang- ursgeymslu með hinum ekki-handfarangurs- töskunum. Í geðshræringu kippti sú sem hér skrif- ar tölvunni upp úr tösk- unni en var lítið að spá í öðru eins og snyrtidóti eða hleðslu fyrir símann. Þegar á áfangastað kom rann það upp fyrir undirritaðri að hún kæmi nákvæmlega til dyranna eins og hún væri klædd. Taskan skilað sér nefnilega ekki á áfangastað en í henni voru föt fyrir næstu daga, snyrtidót, krullujárn og allt það helsta sem hefðbundin nútímakona þarf á að halda til að geta dregið andann á áreynslulítinn hátt. Það var hægt að hugga sig við að taskan væri týnd en ekki veskið, sím- inn eða tölvan en þrátt fyrir að kunna nánast öll trix í bókinni til að hugga sig þá runnu niður tvö tár í leigubílnum á hótelið. Undirrituð gerir sér alveg grein fyrir að týnd ferðataska er eins mikið lúxusvandamál og hugsast getur en þegar konum er annt um eigur sínar vandast málið. Og líka þegar þær eru einar úti í hinum stóra heimi og enginn mjúkur faðmur til að halla sér að. Svo litið sé á björtu hliðarnar þá voru verslanir á Ítalíu þetta volga októ- berkvöld opnar til 21.00 og því var hægt að kaupa svitalyktareyði, undirföt, farða og maskara til að geta haldið áfram með lífið í allavega einn dag í viðbót. Taskan skilaði sér rúmum sólarhring síðar en á heimleiðinni týndist hún aftur og komst ekki í hend- ur eiganda fyrr en á þriðja degi. Hvort um óhappatösku sé að ræða eða ekki er ekki hægt að svara hér. Þetta kenndi undirritaðri bara að halda sig við handfarangurinn og voga sér ekki að treysta ókunnugum upp úr þurru. Aldrei að sleppa tökunum og treysta! Marta María Jónasdóttir Ljósmyndir/Unsplash H ver er uppáhaldsbókin þín? „Death by Meeting eftir Patrick Lencioni er í uppáhaldi núna. Titillinn segir sína sögu um upplifun fólks af fundum og tækifærin sem eru til að bæta fundamenninguna á vinnustöðum.“ Hvað gerir þú til að dekra við þig? „Mitt daglega dekur er kaffibolli í rúmið frá eigin- manninum og heit útisturta. Þegar ég þarf virkilega á dekri að halda þá kaupi ég mér heimilisþrif og svo afskorin blóm. Mér finnst dekur snúast um að gefa sér tíma í það sem nærir mann. Upplifanir og samvera með góðu fólki er besta dekrið og það þarf ekki að vera flókið. Göngutúr og sund með manninum mínum eða góðri vinkonu. Ég er með útisturtu sem ég nota daglega allt árið og það er þvílíkt gott fyrir sál og líkama. Heit útisturta og að finna lyktina af góðri sturtusápu t.d. Green Tea frá Elizabeth Arden er bara dásamlegt. Vatn hefur svo heilandi áhrif. Síðasta vetur byrjaði ég með frábæra morg- unrútínu. Hún byrjar á Yoga Nidra-hugleiðslu og svo geng ég tuttugu mínútna rúnt í Elliðaár- dalnum. Eftir að ég kem heim fæ ég mér kaffi latte og morgunmat og skipu- leggi daginn í Bullet- dagbókinni á meðan ég borða. Rútínunni lýkur svo með útisturtu. Þá er ég orð- in full orku og allir dagar sem byrja svona eru frá- bærir.“ Hvert er uppáhalds- tískumerkið þitt? „By Malene Birger.“ Hvaða hönnuð heldur þú upp á? „Ég held upp á Orla Kiely. Mér finnst munstrin hennar dásamleg, hlýleg og „retró“. Við eigum bolla, kökubox, sæng- urver og handklæði frá Orla Kiely. Ég hef þó ekki enn keypt fatnað frá henni.“ Hvað þýðir tíska fyrir þig? „Tíska er tjáning, sköpun, stemning og iðnaður en líka sóun. Ég er með frekar klassískan fatastíl og á fötin mín lengi en hef líka mjög gaman af því að eignast flíkur sem skera sig úr.“ Hver er uppáhaldsliturinn þinn? „Rykbleikur hefur verið í uppá- haldi undanfarin ár. Ég á meðal annars jakka í þeim lit sem verður oftast fyrir valinu þegar ég er að lóðsa á hugmyndafundi með hópum.“ Hvaða óþarfa keyptirðu þér síðast? „Enn eina bókina um mann- auðstengd mál.“ Hver er uppáhaldsíþróttafatnaður- inn þinn? „Golfhanskinn er að verða meira og meira uppáhalds.“ Hvaða hlutur er ómissandi? „Kaffivélin.“ Hver er mest notaða snyrtivaran í snyrtitösk- unni? „Brúnbleikur varalitur frá Mac.“ Hver er uppáhaldsverslunin þín? „Undanfarið ár er ég búin að vera í innkaupapásu að mestu leyti. En það má segja að ég hafi eignast fullt af „nýjum“ fötum þegar ég tæmdi úr fataskápnum kjólasafn- ið sem ég hef vaxið upp úr. Þá losnaði um önnur föt sem voru í skápnum og ég enduruppgötvaði eitt og annað. Ég á enn eftir að finna kjólunum mínum góða eigendur. En undanfarin misseri hefur Companys verið í uppáhaldi, þar er veitt góð þjónusta og ég hef keypt falleg föt frá Malene Birger og buxurnar góðu frá Five Units.“ Hver er uppáhaldsborgin til að versla? „Kaupmannahöfn.“ Áttu þér uppáhaldsflík? „Ég er mikil jakkakona og fell gjarnan fyrir jökkum sem hafa kar- akter. Ég á nokkra frá jakka úr hóg- værari hluta Desigual sem eru í uppáhaldi. En uppáhaldsflíkin mín núna er satínskyrta með blóma- munstri frá By Malene Birger.“ Hver er besti veitingastaðurinn á Íslandi að þínu mati? „Kol hefur lengi verið í uppá- haldi. Maturinn er alltaf góður, þjónustan líka og umhverfið að- laðandi.“ Uppáhaldsmorgunmat- urinn? „Kaffi latte í glasi, mel- ónur og eggjakaka með tómötum, sveppum og osti verður fyrir valinu ef ég er á hóteli eða veitingastað.“ Uppáhaldssmáforrit? „Audible, ég fíla hljóðbækur því þá get ég gert ýmislegt á með- an ég hlusta. Ég hlusta mikið á starfstengdar hljóðbækur. Ég get meira að segja gleymt mér í heimilisstörfunum með áhugaverða bók í eyrunum. Hvað er á óskalistanum? Olívugrænn samfestingur úr Banana Republic, matar- boð með góðum vinum og að við sem stöndum að Birki ráðgjöf fáum mörg tækifæri til að láta gott af okkur leiða.“ „Er með frekar klassískan fatastíl“ Ingibjörg Gísladóttir, ráðgjafi, markþjálfi og fundalóðs hjá Birki ráðgjöf er á því að tíska sé tjáning, sköpun og stemning. En einnig iðnaður og henni fylgi sóun. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Ljósmynd/Nína Björk Hlöðversdóttir Ingibjörg Gísladóttir er fagurkeri fram í fingurgóma og kann að meta fallega tísku og klassískan fatnað. Ingibjörg er hrifin af sam- festingum. Samfestingur frá Banana Republic. Ingibjörg er mikil kaffi- manneskja. Fallegur fatnaður frá By Malene Birger. Death by Meeting: A Leadership Fable. About Solving the Most Painful Problem in Business. Bók eftir Patrick Lencioni. Það er mun auð- veldara að ferðast bara með handfar- angur og minni líkur á að komast í uppnám.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.