Morgunblaðið - 09.11.2019, Qupperneq 6
unnar streyma prúðbúin pör inn í húsið með
trekkt eftirvæntingarbros á andlitinu og út
aftur tuttugu mínútum síðar með hjóna-
bandsvottorð upp á vasann. Þau stilla sér
upp fyrir myndatöku á tröppunum sem
eru eins og klipptar út úr ævintýrinu um
Öskubusku. Þar má sjá hvíta síðkjóla,
púffermar og blúndur, jakkaföt, saría, lit-
skrúðuga afrókufla og listilega vafin höf-
uðföt. Fólk frá öllum heimsins hornum.
Sumir kyssast. Aðrir haldast í hendur.
Það er hlegið og stundum grátið.
Frá sjónarhorni brúðhjónanna er dag-
urinn einstakur. En það sem pörin vita
ekki er að fyrir þeim sem situr á kaffihúsi
hinum megin við götuna, stundum með
smjördeigshorn, er ráðhúsið eins og færi-
band. Hjónabandafæriband. Þau eru eins og
Síríuslengjurnar sem flutu fram hjá eiginmanni
mínum sem sat við færiband í Nóa Siríusi eitt
sumar sem unglingur og raðaði í óðaönn lakkrís
ofan á Eitt sett. Hérna er það hins vegar ein Sí-
ríuslengja á tuttugu mínútna fresti.“
En hádegisverðurinn?
„Besta hádegisverðinn er að finna á Borough
market, sem er stærsti og elsti matarmarkaður
Lundúna. Þangað mæta heildsalar, smásalar og
bændur til að selja afurðir sínar. Einnig er á
markaðnum fjöldi matarbása þar sem kaupa má
tilbúinn mat; strútshamborgara, chorizo-
samlokur, franskar kjötkássur – maður fær allt
þarna. Best er að flakka milli bása og smakka
sem flest. Stemningin er gífurleg, mann-
mergðin rosaleg og maturinn æði.“
Hvar er besta kaffið?
„Kaffi er mér nánast jafnmikilvægt og súr-
efni. Með keðjum eins og Starbucks fékk hið
ástsæla te Bretanna fyrst samkeppni en nú hef-
ur þessi þróun komist á næsta stig og ekki er
hægt að þverfóta fyrir sjálfstæðum „gourmet“-
kaffihúsum sem rista baunirnar sínar sjálf. Í
uppáhaldi er The CoffeeWorks Project í Isl-
ington og Workshop Coffee sem er á leynigöt-
unni St. Christopher’s Place.“
Hver er mesta upplifunin?
„Þegar fólk heimsækir London eyðir það
yfirleitt mestum tíma í Covent Garden, á Ox-
ford Street og Regent Street. En færri vita að
við sunnanverðan árbakka Thames er margra
kílómetra löng göngugata sem nær frá Mil-
lennium Wheel í vestri til Tower Bridge í austri.
Á þessari göngu er m.a. Tate Modern, Borough
Market, jólamarkaður í desember, ráðhús borg-
arinnar og fjöldinn allur af veitingastöðum.“
Sif Sigmarsdóttir varð ástfangin af Lundúnum þegar hún
labbaði inn í TopShop í fyrsta skipti 12 ára gömul. Í dag býr
hún og starfar í Lundúnum sem rithöfundur og pistlahöf-
undur, en bókin Ég er svikari var að koma út á Íslandi.
Marta María | mm@mbl.is
H
ver er allra mesti uppáhalds-
staður þinn í Lundúnum?
„Þetta er dálítið eins og að vera
spurð að því hvert sé uppáhalds-
barnið manns. London er stóra
ástin í lífi mínu (sorrí, eiginmaður).
Ástarævintýri mitt við London hófst þegar ég
var tólf ára og heimsótti borgina í fyrsta sinn
sem túristi með foreldrum mínum og bræðrum.
Pabbi var búinn að plana þvílíka menning-
arreisu – hann ætlaði að leiða okkur gegnum
alla mannkyns- og menningarsöguna á fimm
dögum. Hann hugðist sýna okkur múmíurnar í
Þjóðminjasafninu, alvöru orrustuflugvélar úr
heimsstyrjöldinni síðari í Stríðsminjasafninu og
meistara málaralistarinnar í Tate-listasafninu.
Það var hins vegar ekki á þessum ágætu stöð-
um sem ég varð ástfangin. Fyrstu ástar-
neistarnir kviknuðu í TopShop á Oxford-stræti.
Í einni búð var meira úrval af fötum en í allri
Kringlunni sem var opnuð nokkrum árum fyrr.
Ég hélt að þetta gæti ekki orðið betra. En svo
fórum við á veitingastaðinn Garfunkel’s og feng-
um okkur svínarif í grillsósu. Kjöt þakið sykri!
Hvar hafði þessi fágaði sælkeraréttur verið allt
mitt líf?
Í vaxmyndasafninu fékk ég ljósmynd af mér
með Freddie Mercury. Á Leicester Square
stöðvaði för okkar maður með dredda og jafn-
mörg göt í nefinu og eldhússigti sem hlaut að sjá
inn í dýpstu sálarfylgsni mín því hann neitaði að
hleypa okkur fram hjá sér fyrr en pabbi keypti
handa mér lyklakippu með mynd af átrún-
aðargoðinu mínu, Kurt Cobain. Loks fórum við
á söngleikinn Cats. Þar sem ég sat og horfði á
fullorðið fólk spranga um í kattabúningum tók
ég ákvörðun: Þegar ég yrði stór ætlaði ég að
flytja til London og tjá ást mína á borginni
með söng sem leikari í Cats.
Unnendum söngleikja til heilla
breyttist planið aðeins. Ég fluttist
vissulega til London. Það kom hins
vegar í ljós að þegar ég syng hljóma
ég eins og breimandi köttur, alvöru
köttur, svo skrækur að ef hann væri
lokaður ofan í boxi, vildi meira að
segja Schrödinger kvikindið kirfilega
dautt.
En í staðinn skrifaði ég bók sem er
eins konar ástarbréf til borgarinnar.
Bókin heitir Ég er svikari og er að koma
út á Íslandi nú fyrir jólin.
TopSop og Garfunkel’s eru ekki lengur
uppáhaldsstaðirnir mínir í London. Ef ég ætti
að velja einn stað þá væri það Waterstones-
bókabúðin við Piccadilly Circus. Það er hægt að
eyða heilu dögunum í versluninni sem er á sex
hæðum. Búðin er stærsta bókabúð Evrópu. Í
kjallaranum getur maður fengið sér kaffi og á
efstu hæðinni er kokkteilbar. Bækur, kaffi og
kokkteilar. Þetta er auðvitað himnaríki á jörðu.“
Hvar er besti morgunmaturinn?
„Einn kostur þess að starfa sem leigupenni er
að maður getur sinnt vinnu sinni hvar sem er.
Það er hægt að sitja með fartölvuna uppi í sófa,
inni í eldhúsi, úti í garði, á bókasafninu, jafnvel
uppi í rúmi. Öll veröldin er skrifstofan manns.
Uppáhalds-vinnuafdrepið mitt er lítið kaffihús á
Upper Street þar sem ég bý í Islington. Ég
reyni yfirleitt að mæta snemma svo ég nái uppá-
haldsborðinu mínu við gluggann. Útsýnið úr
sætinu er yfir ráðhús Islington-hverfisins,
byggingu frá þriðja áratug síðustu aldar sem lít-
ur út eins og samstarfsverkefni milli Walt Disn-
ey og Albert Speer.
Stundum kaupi ég mér smjördeigshorn með
möndlum – minn uppáhaldsmorgunmatur – og
stari út um gluggann meðan ég borða það. Það
er þó kannski heldur útsýnið en smjördeigs-
hornið sem laðar mig að staðnum. Alla daga vik-
Borough Market er stærsti og elsti matarmarkaður Lundúna.
I Am Traitor í Waterstones-bókabúðinni við Piccadilly Circus í London.
Varð ástfangin af
Lundúnum í TopShop
Kaffi er Sif næstum jafn-
mikilvægt og súrefni.
Sonur Sifjar er
fastakúnni á
Brasserie Zédel.
6 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 2019