Fréttablaðið - 28.11.2002, Page 1
ÍÞRÓTTIR
Nálgast
markamet
Denis Law
bls. 12
Þverholti 9, 105 Reykjavík — sími 515 7500 Fimmtudagurinn 28. nóvember 2002
Tónlist 18
Leikhús 18
Myndlist 18
Bíó 20
Íþróttir 16
Sjónvarp 22
KVÖLDIÐ Í KVÖLD
FUNDUR Bjarni Snæbjörn Jónsson
veltir því fyrir sér hvort sterkir
stjórnmálaleiðtogar geti gengið af
stjórnmálaflokki dauðum í Hádegis-
háskóla Háskólans í Reykjavík. Fyr-
irlestur Bjarna hefst klukkan 12.
Sterkir stjórn-
málaleiðtogar
TÓNLEIKAR Kvennakór Reykjavíkur
heldur tónleika í Langholtskirkju
klukkan 20. Að þessu sinni syngur
kórinn negrasálma, gospelsöngva
og jólalög. Einsöngvari með kórn-
um er Páll Rósinkrans, Óskar Ein-
arsson leikur á píanó og Ásgeir
Óskarsson á slagverk.
Jólalög og gospel
FUNDUR Samtök iðnaðarins boða til
fréttamannafundar í dag undir
yfirskriftinni „Iðn- og verknám í
fjársvelti“.
Verknám í fjársvelti
SKEMMTUN Arabísk stemning verður
allsráðandi á skemmtun í Deiglunni
á Akureyri. Lesið verður úr Þúsund
og einni nótt, balzamer-tónlist leik-
in, magadans og veitingar.
Arabískt
í Deiglunni
SJÓMAÐUR
Sendur heim
vegna blaða-
greinar
FIMMTUDAGUR
239. tölublað – 2. árgangur
bls. 2
PALESTÍNA
Mistök að
vopnavæðast
bls. 4
REYKJAVÍK Austan og norð-
austanátt 10-15 m/s. síðdegis
á morgun. Rigning með
köflum. Hiti 5 til 10 stig.
VEÐRIÐ Í DAG
VINDUR ÚRKOMA HITI
Ísafjörður 10-15 Rigning 5
Akureyri 8-13 Rigning 5
Egilsstaðir 8-13 Rigning 5
Vestmannaeyjar 13-18 Rigning 7
➜
➜
➜
➜
+
+
+
+
Áður 2.936 kr.
þessa viku 1.495 kr.
Tilboð
NOKKRAR STAÐREYNDIR UM
MEÐALLESTUR FÓLKS Á ALDRINUM 12 TIL 80 ÁRA
Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU ER 69,6% SAMKVÆMT
FJÖLMIÐLAKÖNNUN GALLUP Í OKTÓBER 2002.
Fr
é
tt
a
b
la
ð
ið
M
o
rg
u
n
b
la
ð
ið
Meðallestur 25 til 49
ára samkvæmt
fjölmiðlakönnun
Gallup frá
október 2002
28%
D
V
80.000 eintök
70% fólks les blaðið
Hvaða blöð
lesa 25 til 49
ára íbúar á
höfuðborgar-
svæðinu á
fimmtu-
dögum?
53%
72%
DEILA „Dóttir mín er enn skráð sem
stúlka í þjóðskrá þrátt fyrir að
vera orðin þriggja ára. Það virðist
ekki vera nein leið að koma nafn-
inu hennar í þjóð-
skrá,“ segir Stein-
þór Frank Michel-
sen, bakari á Nes-
kaupstað, sem stað-
ið hefur í stappi við
Hagstofu Íslands í
tvö og hálft ár. Dótt-
ir hans var skírð
árið 2000 en hefur
eigi að síður ekki
fengið nafn sitt skráð í þjóðskrá
Hagstofu Íslands. Steinþór segir
að skýring starfsmanna sé sú að
ekki komist fyrir lengri nöfn en
sem nema 31 tölvubili. Þrátt fyrir
það kveða lög á um að landsmenn
eigi rétt á að fá allt að fimm nöfn
skráð. Dóttirin heitir Sveinbjörg
Dione Steinþórsdóttir en í nafni
hennar eru 32 tölvubil, sem þýðir
að nafnið kemst ekki allt fyrir í
þjóðskránni. Steinþór hefur ekki
viljað ljá máls á því að stytta nafn
stúlkunnar og telur það vera ský-
lausan rétt hennar að hafa allt
nafnið inni.
„Ég hef séð margt skrýtið í bar-
áttu minni, sem staðið hefur í rúm
tvö ár, eða frá því við skírðum
barnið. Þeir hjá þjóðskránni buðu
mér að stúlkan tæki upp ættarnafn
til að dóttirin kæmist fyrir í Þjóð-
skránni, enda er Michelsen styttra
en Steinþórsdóttir. Ég þvertók fyr-
ir það og því heitir dóttir mín ein-
faldlega Stúlka í þjóðskrá og er að
fá sendan póst sem slík,“ segir
Steinþór.
Steinþór segir að ýmislegt
skondið hafi rekið á fjörur hans
síðan hann tók upp baráttu fyrir
því að fá nafn dóttur sinnar skráð
með lögmætum hætti. Hann hafi af
því spurnir að nöfn hafi týnst þar
sem um er að ræða tvö nöfn eða
fleiri og einnig því að nöfnum hafi
verið breytt í meðförum starfs-
manna þjóðskrár. „Ingvarar eru
ýmist með ypsíloni eða ekki án
þess að skýringar finnist á því.
Hvernig nöfn manna eru með-
höndluð virðist ráðast af ákvörðun-
um starfsfólks hverju sinni. Geð-
þóttaákvarðanir ráða því hvaða
nöfn falla út,“ segir hann.
Steinþór er sannfærður um það
eftir rannsóknir sínar og baráttu
að þjóðskráin eins og hún virkar sé
til óþurftar.
„Þjóðskráin er verkfæri sem
við höfum ekkert við að gera leng-
ur. Það vantar greinilega hæfara
og áhugasamara starfsfólk á tölv-
ur heldur en þarna er til staðar.
Núna er þetta aðeins óþarfa kostn-
aður og mér sýnist að stjórnvöld
geti sparað sér verulegar fjárhæð-
ir með því að leggja þjóðskrána
niður,“ segir hann.
rt@frettabladid.is
Bakari berst
við þjóðskrá
Þriggja ára barn á Neskaupstað heitir Stúlka í
þjóðskrá. Nafn hennar kemst ekki fyrir og
Hagstofan vill að barnið taki upp ættarnafn.
Fjármál Raufarhafnar:
Fargi af
okkur létt
FJÁRMÁL „Þetta er mikilvægt fyrir
okkur. Það má segja að þungu fargi
sé af okkur létt,“ sagði Guðný
Hrund Karlsdóttir,
sveitarstjóri á
Raufarhöfn.
Eftirlitsnefnd
um fjármál sveitar-
félaga leggur til við
Lánasjóð íslenskra
sveitarfélaga að
miklum skamm-
tímaskuldum Rauf-
a r h a f n a h r e p p s
verði breytt í lang-
tímaskuldir.
„Það verður fylgst náið með
okkur. En það er ástæða til að
fagna þessari niðurstöðu því mik-
ið er í húfi,“ sagði Guðný Hrund
sveitarstjóri. ■
STJÓRNMÁL Harkaleg átök eru um
uppstillingu á lista í Kraganum,
hinu nýja Suðvesturkjördæmi.
Fyrirsjáanlegt er að Kópavogs-
búinn Helga Guðrún Jónasdóttir,
varaþingmaður og formaður
Landssambands sjálfstæðis-
kvenna, verði ekki á listanum.
Það eru einstök bæjarfélög
sem tilnefna sína frambjóðendur
í sæti á listanum. Innan Kópa-
vogs og Garðabæjar hafa sprottið
átök vegna þeirra frambjóðenda
sem tilnefndir eru. Eins og stað-
an er innan kjörnefndar á ungur
frambjóðandi, Bjarni Benedikts-
son úr Garðabæ, fimmta sæti
listans en þar er gengið fram hjá
Ingibjörgu Halldórsdóttur og
Sturlu Þorsteinssyni, sem bæði
voru sögð eiga tilkall til fimmta
sætisins.
Í Kópavogi urðu þau tíðindi að
Helga Guðrún Jónasdóttir var
ekki tilnefnd til að taka sæti á
listanum en í hennar stað er Jón
Gunnarsson, formaður Sjávar-
nytja, tilnefndur. Þar með er
Helga Guðrún dottin út af borð-
inu sem þingmanns- eða vara-
þingmannsefni. Þetta er sagt
vera runnið undan rifjum Gunn-
ars I. Birgissonar.
Kenningar eru uppi um að Árni
Mathiesen sjávarútvegsráðherra
og Gunnar Birgisson alþingismað-
ur hafi tekið saman höndum í
hræðslubandalagi um að stöðva
framgang Þorgerðar Katrínar
Gunnarsdóttur alþingismanns,
sem þykir vera efni í framtíðar-
leiðtoga en verður í fjórða sæti á
listanum. Helga Guðrún er einn af
ötulustu stuðningsmönnum Þor-
gerðar Katrínar og er sögð gjalda
fyrir það. Óánægja er einnig með-
al kvenna sem telja að rétt hlutfall
eigi að vera á milli karla og kvenna
á listanum.
Helga Guðrún var í sjöunda
sæti listans í Reykjaneskjördæmi í
síðustu kosningum á eftir Árna
Ragnari Árnasyni alþingismanni
sem náði kjöri en listinn vann stór-
sigur og fékk tæp 42 prósent at-
kvæða.
„Ég vil ekkert segja um þessi
mál,“ sagði Helga Guðrún aðspurð
í gærkvöld.
Ætlunin er að ganga frá listan-
um á fundi á laugardag þegar hann
verður kynntur kjördæmisráði. ■
UNNIÐ Í SLIPPNUM
Maðurinn er oft smár við hlið sköpunarverka sinna. Það mátti hafa fyrir satt þegar sást til
logsuðumanns að vinna við skipsskrúfu í slippnum í Reykjavíkurhöfn.
Framboðsmál hjá Sjálfstæðisflokki:
Varaþingmanni
fórnað í Kraganum
NAFNLAUS Í ÞJÓÐSKRÁ
Sveinbjörg Dione Steinþórsdóttir fær ekki
nafnið sitt skráð í þjóðskrá vegna þess að
það er of langt.
M
YN
D
/Ó
LA
FU
R
M
. Ó
LA
FS
SO
N
„Mér sýnist
stjórnvöld
geta sparað
sér verulegar
fjárhæðir með
því að leggja
þjóðskrána
niður.“
GUÐNÝ
HRUND
Ánægð með að
fá skuld breytt.