Fréttablaðið - 28.11.2002, Side 4
4 28. nóvember 2002 FIMMTUDAGUR
INNLENT
ALÞINGI Afkoma ríkissjóðs verður í
járnum á næsta ári ef ekki verður
gripið til sérstakra ráðstafana til
að auka tekjurnar, sagði Ólafur
Örn Haraldsson, formaður fjár-
laganefndar, þegar hann mælti
fyrir meirihlutaáliti fjárlaga-
nefndar við aðra umræðu um fjár-
lagafrumvarpið.
Útgjaldaliðir fjárlagafrum-
varpsins aukast um 4,3 milljarða
við aðra umræðu. Formaður fjár-
laganefndar boðaði að 1,8 millj-
arðar króna myndu bætast við
vegna samkomulags um að bæta
kjör aldraðra. Þessar hækkanir
nema samanlagt 6,1 milljarði
króna. Þegar fjárlagafrumvarpið
var kynnt var lagt upp með að 2,2
milljarða afgangur yrði af reglu-
legum rekstri ríkissjóðs. Ólafur
sagði að eftir ætti að endurskoða
tekjuhliðina og nákvæm af-
komutala því ekki ljós núna.
„Þegar á allt er litið hefur
náðst nokkuð gott jafnvægi í efna-
hagslífinu,“ sagði Ólafur um
viðureignina við verðbólgu og
taldi engan vafa á því að aðhalds-
söm stefna í ríkisfjármálum og
peningamálum hefði leikið mikil-
vægt hlutverk í því. Hann sagði að
áhersla hagstjórnarinnar ætti nú
að vera sú að koma í veg fyrir at-
vinnuleysi fremur en að einblína á
hættuna á verðbólgu. ■
Sex milljarða útgjaldahækkun fjárlaga:
Rekstur ríkissjóðs
í járnum á næsta ári
JERÚSALEM, AP Mahmoud Abbas,
einn helsti aðstoðarmaður Jasser
Arafat, segir að það hafi verið
mistök að hefja vopnaða uppreisn
gegn hernámi Ísraels. Nauðsyn-
legt sé að hætta henni nú þegar.
Mahmoud lét þessi orð falla í
síðasta mánuði á lokuðum fundi í
Fatah, stjórnmálahreyfingu Jass-
er Arafat. Hann vildi ekki tjá sig
um þetta í gær, en margir áhrifa-
menn í Fatah, sem sátu fundinn,
staðfestu að hann hefði lýst efa-
semdum sínum um uppreisnina.
Uppreisnin hófst fyrir rúmlega
tveimur árum eftir að Ariel
Sharon, sem þá var utanríkisráð-
herra í stjórn Ehud Barak, ögraði
Palestínumönnum með því að fara
að moskunni helgu í Jerúsalem
með öryggisvörðum sínum.
Palestínumenn voru þá orðnir
langþreyttir á því hve hægt gekk í
samningaviðræðum auk þess sem
Ísraelar hefðu tekið sífellt meira
landsvæði Palestínumanna til
eigin búsetu.
Abbas sagði að þetta hafi átt að
verða uppreisn almennings gegn
hernáminu. Hún hafi hins vegar
fljótlega snúist upp í vopnuð átök.
„Það sem hefur gerst á þessum
tveimur árum er alger eyðilegg-
ing alls þess sem við höfðum
byggt upp,“ sagði Abbas. „Ástæð-
an fyrir því er að margir leiddu
uppreisnina frá eðlilegum farvegi
og yfir á brautir sem við ráðum
ekkert við, með notkun vopna á
borð við sprengjuvörpur, hand-
sprengjur og byssuskot frá hús-
um og íbúðarsvæðum.“
Hann segir að Palestínumenn
hafi misst af nokkrum tækifærum
til þess að semja um vopnahlé, og
það verði æ erfiðara að gera það.
Með því að aflýsa uppreisninni og
hefja friðarviðræður geti Palest-
ínumenn unnið sér á ný samúð al-
þjóðasamfélagsins.
„Það sem við þurfum að gera
núna er að segja skýrt og ákveðið:
hingað og ekki lengra.“
Hann segist ekki trúa því að
Sharon, forsætisráðherra Ísraels,
sé alvara með því að segjast vilja
semja við Palestínumenn. Hins
vegar myndi ósveigjanleiki hans
fljótt afhjúpast ef samningavið-
ræður byrjuðu fyrir alvöru. ■
Vopn voru mistök
í uppreisninni
Uppreisn Palestínumanna gegn hernámi Ísraels átti ekki að snúast upp
í vopnaða baráttu, segir helsti aðstoðarmaður Jasser Arafat. Nú verði
uppreisninni að linna sem fyrst.
PALESTÍNUMENN SYRGJA
Mahmoud Abbas, sem fyrir skömmu var nefndur líklegur í nýtt embætti forsætisráðherra
hjá Palestínumönnum, segir að Palestínumenn hafi glatað miklu en grætt fátt á vopnaðri
uppreisn gegn hernámi Ísraels undanfarin tvö ár.
AP
/M
YN
D
ALDRAÐIR Jón Kristjánsson,
heilbrigðis- og trygginga-
málaráðherra, hefur
ákveðið að leggja fyrir Al-
þingi frumvarp til laga um
breytingu á lögum um al-
mannatryggingar. Frum-
varpið er lagt fram vegna
aðgerða stjórnvalda um að
bæta aðstæður og lífskjör
aldraðra næstu tvö til þrjú
árin.
Gerði starfshópurinn
tillögur um hækkun á tekjutrygg-
ingu og tekjutryggingarauka frá
Tryggingastofnun ríkisins umfram
árlega hækkun þessara bóta. Jafn-
framt er gerð tillaga um að draga
úr skerðingu tekjutryggingar-
aukans vegna annarra tekna úr
67% í 45%. Ráðherra hefur þegar
gefið út reglugerð þessa efnis.
Ráðherra hefur einnig
ákveðið að leggja fyrir Al-
þingi frumvarp til laga
um breytingu á lögum um
málefni aldraðra. Felur
frumvarpið í sér að gjald í
Framkvæmdasjóð aldr-
aðra hækkar um 614 kr. og
verður það 5440 kr. en var
4826 á ári.
Gert er ráð fyrir að það
aukna fé sem með hækk-
uninni kemur í Fram-
kvæmdasjóð aldraðra renni óskipt
til að byggja upp öldrunarstofnanir
og fari ekki í rekstur þeirra. Gert
er ráð fyrir að hækkunin skili um
120 milljónum króna sem renna til
verkefnisins. ■
Lagafrumvarp um framkvæmdasjóð aldraðra:
Aukið fé í uppbyggingu
öldrunarstofnana
FRAMKVÆMDASJÓÐUR ALDRAÐRA
Hækkar um 614 krónur og verður 5440
krónur á ári.
HALLDÓR ÁSGRÍMSSON
Ekki sömu úrslitakostir og áður. Líkist
meira samningaviðræðum.
Fjárframlög og tollamál
vegna stækkunar ESB:
Erfiðir
samningar
fram undan
STJÓRNMÁL Það stefnir í erfiða og
tímafreka samninga um hvernig
samskipti Íslands og Evrópusam-
bandsins breytast við stækkun
sambandsins til austur. Aðildarríki
ESB hafa veitt framkvæmda-
stjórninni samningsumboð þar sem
farið er fram á stórauknar greiðsl-
ur Íslands í þróunarsjóð sambands-
ins.
Halldór Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra segir umboðið hafa
breyst til betri vegar frá upphaf-
legum hugmyndum framkvæmda-
stjórnarinnar. „Samningamenn eru
ekki jafnbundnir af því að sækja
ítrustu kröfur og áður. Það virðist
vera að okkur hafi að einhverju
leyti tekist að útskýra okkar sér-
stöðu en hvað sem því líður verða
þetta mjög erfiðir samningar og
eiga eftir að taka nokkurn tíma.“
Í umboðinu er gefið svigrúm
fyrir lækkun tolla en það er enn-
þá bundið fjárfestingu útlend-
inga í sjávarútvegi, segir Hall-
dór. Þegar hann hafi haft orð á
því að ekki þyrfti að útiloka fjár-
festingar í sjávarútvegi hafi
hann tengt það hugsanlegri aðild
að ESB. Samið hefði verið um
annað í EES-samningnum og við
hann ætti að standa. ■
ÁFRÝJAR TIL HÆSTARÉTTAR
Sjúkraflutningamaðurinn sem
Héraðsdómur Reykjavíkur
dæmdi í níu mánaða fangelsi í
síðustu viku hefur ákveðið að
áfrýja dómnum til Hæstaréttar
Íslands. Maðurinn, sem var fund-
inn sekur um að hafa sleikt
brjóst og strokið kynfæri konu
sem verið var að flytja á sjúkra-
hús, hefur ávallt neitað sök.
HALLDÓR BJÖRNSSON
ASÍ skoðar hvernig bregðast skuli við
auknu atvinnuleysi.
Aukið atvinnuleysi:
Mikið
áhyggjuefni
ATVINNUMÁL Miðstjórn Alþýðusam-
bands Íslands ræddi aukið at-
vinnuleysi á fundi sínum í gær.
„Þetta er mikið áhyggjuefni,“
segir Halldór Björnsson, varafor-
seti Alþýðusambandsins og for-
maður Starfsgreinasambandsins.
Hann segist vera að kanna hvern-
ig atvinnuleysið hefur þróast. Enn
fremur segist Halldór vera að
kortleggja hvort eitthvað sé hægt
að gera til að bregðast við ef ekki
verði útlit fyrir að dragi úr at-
vinnuleysi.
Hann segir að enn sé ferlið þó
skammt á veg komið og næstu
skref því óákveðin.
KJÖRKASSINN
Farðu inn á frett.is og segðu
þína skoðun
frétt.is
Ætlar þú að kaupa
aðventukrans, búa hann til
eða sleppa slíku skrauti?
Spurning dagsins í dag:
Ætlar þú að baka smákökur fyrir jólin?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
AÐVENTUKRANS
Ríflega helmingur þátttak-
enda í könnuninni ætlar
að fá sér aðventukrans,
hinir ekki.
7,5%
45%
Kaupa
Sleppa honum
Búa til
47,5%