Fréttablaðið - 28.11.2002, Qupperneq 11
11FIMMTUDAGUR 28. nóvember 2002
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
D
EB
1
94
64
11
/2
00
2
NJÓTTU A‹VENTUNNAR...
S M Á R A L I N D
debenhams
Þú færð réttu jólagjafirnar handa öllum í fjölskyldunni í Debenhams.
Allt á einum stað og á verði sem kemur þér í jólaskap.
Dömujólastrengur 790 kr. pk. Dömuinniskór 1.590 kr. Taska 3.290 kr.
Dúkkur frá 990 kr. Herraseðlaveski frá 1.990 kr.
Gjafabréf Baðvörur í kassa frá 990 kr.
Barnainniskór 1.290 kr. Gjafainnpökkun
Jólaskapið
Húfusett 1.290 kr.
Dömusokkar 3 stk. 1.590 kr.
Barsett 8 hlutir í kassa 6.900 kr.
Vínkælir 3.790 kr.
Salt og pipar 2.390 kr. stk.
Jamie Oliver mortel 3.490 kr.
Eldhúsvog 6.500 kr.
...fiA‹ ER AU‹VELT fiEGAR fiÚ FÆR‹ ALLT Á EINUM STA‹.
LÖGREGLUMÁL Eldsvoðar áttu sér
stað í tveimur fjölbýlishúsum í
fyrrinótt. Maður var handtekinn
vegna gruns um að hafa kveikt í
ruslageymslu í fjölbýlishúsi við
Gnoðarvog. Öryggisvörður sá
manninn ganga af vettvangi og
var hann handtekinn. Nokkrum
mínútum áður hafði Slökkviliði
höfuðborgarsvæðisins borist til-
kynning um bruna í sameign fjöl-
býlishúss við Hjaltabakka. Grun-
ur leikur á að um íkveikju hafi
verið að ræða en ekki er vitað
hver var að verki.
Kveikt hafði verið í
lausamunum og borði sem var í
reiðhjólageymslu í Hjaltabakkan-
um. Slökkvibílar frá þremur
stöðvum voru sendir á staðinn
því óttast var um íbúana. Kom í
ljós að eldurinn var minni en talið
var. Mikill reykur var í stiga-
ganginum og var fólk beðið að
setja blaut handklæði við dyrnar
hjá sér til varnar. Stigagangurinn
var reykræstur.
Um það leyti sem slökkvistarfi
var að ljúka í Hjaltabakkanum
barst tilkynning um eld í rusla-
geymslu fjölbýlishúss við Gnoð-
arvog. Tveir bílar fóru strax
þangað og reyndist eldurinn
minniháttar. Öryggisvörður hafði
séð mann ganga af vettvangi
stuttu eftir að eldurinn kom upp
og var sá handtekinn. Að sögn
lögreglu var maðurinn kunnug-
legur. Hann gisti fangageymslur
og var yfirheyrður í gærdag. ■
PENINGAR AÐ KLÁRAST
Skúli Mogensen, forstjóri OZ. Félagið þarf
nauðsynlega á hlutafé, lánsfé eða stórum
samningum að halda til að geta starfað
áfram.
Tekjur OZ hverfandi:
Styttist í að
veltufé klárist
VIÐSKIPTI Tekjur hugbúnaðarfyrir-
tækisins OZ frá júlí til september
voru um tólf milljónir íslenskra
króna. Tap fyrirtækisins á sama
tímabili var rúmar 83 milljónir
króna. Veltufé félagsins er nú um
96 milljónir króna. Skammtíma-
skuldir á móti eru tæpar 50 millj-
ónir. Verði rekstur félagsins svip-
aður næstu mánuði og verið hefur
síðustu mánuði má búast við að
veltufjármunir klárist á næst-
unni.
Með uppgjöri félagsins til
bandaríska verðbréfaeftirlitsins
fylgdi yfirlýsing stjórnenda um
að miðað við núverandi tekju-
streymi sé óvíst hvort fyrirtækið
geti staðið undir sér. Fram kemur
í yfirlýsingu stjórnenda að unnið
sé að fjármögnun með lántöku eða
aukningu hlutafjár.
OZ vinnur að hugbúnaði fyrir
fjarskiptafyrirtæki og erfitt hef-
ur reynst að fá fjármagn inn í þá
grein. Verði ekki verulegar breyt-
ingar á horfum félagsins á næst-
unni klárast þeir fjármunir sem
það hefur úr að spila. ■
BRUNI
Kveikt var í lausamunum og borði sem var í reiðhjólageymslu í Hjaltabakkanum. Slökkvi-
bílar frá þremur stöðvum voru sendir því óttast var um íbúana. Eldurinn reyndist minni en
talið var. Mikill reykur var í stigaganginum og var fólk beðið að setja blaut handklæði við
dyrnar hjá sér til varnar.
Eldur í tveimur fjölbýlishúsum í Reykjavík:
Grunur er um
tvær íkveikjur
Stjórnendur spá í spilin:
Búast við
uppsögnum
EFNAHAGSHORFUR Stjórnendur
áætla að fækka starfsmönnum um
2,1% á þessu ári. Þetta er meðal
þess sem kemur fram í könnun
Gallup meðal stjórnenda 400
veltumestu fyrirtækja landsins.
Stjórnendurnir gera ráð fyrir
veltuaukningu upp á 3,25% á ár-
inu sem þýðir að raunvelta dregst
saman um 1,6%.
Stjórnendur íslenskra fyrir-
tækja búast við að krónan veikist
um 1,5% á næstu tólf mánuðum og
að verðbólga verði 2,6%. Þá búast
þeir við að vextir Seðlabankans
verði 6,8% að ári. ■
Vinstri grænir:
500 milljónir
í sementið
FJÁRLÖG Árni Steinar Jóhannsson
og Jón Bjarnason, þingmenn
Vinstrihreyfingarinnar - græns
framboðs, vilja að ríkissjóður
auki hlutafé sitt í Sementsverk-
smiðjunni á Akranesi um allt að
500 milljónir króna á næsta ári. Í
greinargerð með breytingartil-
lögu þeirra við fjárlagafrumvarp
næsta árs segir að verksmiðjan
hafi átt í verulegum rekstrarerf-
iðleikum undanfarin tvö ár. Því
hafi verið haldið fram að innflytj-
andi hafi beitt undirboðum og tap
verksmiðjunnar í fyrra hafi
numið 228,4 milljónum króna. Þá
sé talið að tap á þessu ári geti orð-
ið annað eins. Með ríflegri huta-
fjáraukningu ríkisins í verksmiðj-
unni vinnist tími til þess að gera
áætlun um framtíðarstöðu verk-
smiðjunnar. ■