Fréttablaðið - 28.11.2002, Side 17
17FIMMTUDAGUR 28. nóvember 2002
ÍÞRÓTTIR Í DAG
16.45 Sjónvarpið
Handboltakvöld
17.50 Sýn
Sportið með Olís
18.20 Sýn
Heimsfótbolti með West Union
19.15 Grafarvogur
Körfubolti karla (Valur-ÍR)
19.15 Ásvellir
Körfubolti karla (Haukar-Tinda-
stóll)
19.35 Sýn
Evrópukeppni félagsliða
(Vitesse - Liverpool)
20.00 Sjónvarpið
Landsmót hestamanna (2:2)
22.40 Sýn
Sportið með Olís
23.10 Sýn
HM 2002 (Japan - Belgía)
JORDAN
Michael Jordan heldur boltanum frá Jamal
Tinsley, leikmanni Pacers. 28 stig frá Jord-
an dugðu Wizards ekki til sigurs í leiknum.
NBA-deildin:
Shaq og
Jordan
töpuðu
KÖRFUBOLTI Shaquille O´Neal og fé-
lagar í Los Angeles Lakers töpuðu
fyrir Miami Heat í NBA-deildinni
í körfubolta í fyrrakvöld, 97:85.
Shaq, sem er nýstiginn upp úr
meiðslum, skoraði aðeins 15 stig í
leiknum. Virkaði hann ryðgaður
og hitti aðeins í 5 af 15 skotum sín-
um utan af velli. Þetta var aðeins
þriðji sigur Heat á tímabilinu.
Michael Jordan skoraði 28 stig
fyrir Washington Wizards í 88:84
tapleik gegn Indiana Pacers. Þetta
var hæsta stigaskor Jordan á
tímabilinu. ■
Áhangandi Stoke:
Dæmdur
í lífstíðar-
bann
FÓTBOLTI Áhangandi Íslendinga-
liðsins Stoke hefur verið dæmdur
í lífstíðarbann á heimavelli liðs-
ins, Britannia-leikvangi, fyrir að
hafa uppi kynþáttahatur á meðan
á leik liðsins stóð í ensku 1. deild-
inni. Þetta er 10. áhangandinn
sem dæmdur er í lífstíðarbann
fyrir athæfið, sem átti sér stað í
leik gegn Wolves sem háður var
nýlega.
Manninum hefur einnig verið
bannað að fara á völlinn, bæði
innan og utan Englands, næstu
þrjú árin. Auk þess var hann
sektaður og þarf að starfa í 100
klukkustundir í þágu samfélags-
ins.
Englendingar gera hvað þeir
geta um þessar mundir til að
stemma stigu við kynþáttahatri á
knattspyrnuvöllum landsins. Var
dómurinn liður í þeirri herferð. ■
GRÍPUR BOLTANN
Todd Pinkston (87), leikmaður Phila-
delphia Eagles í bandarísku NFL-deildinni í
fótbolta, grípur boltann á glæsilegan hátt í
leik gegn San Francisco 49ers sem háður
var á mánudag. Mike Rumph, leikmaður
49ers, kemur engum vörnum við. Eagles
vann leikinn 38:17.
AP
/M
YN
D
Evrópukeppni félagsliða:
Liverpool mætir Vitesse Arnhem
FÓTBOLTI Fjölmargir leikir verða
háðir í 3. umferð Evrópukeppni
félagsliða í kvöld. Átta lið sem
duttu út úr Meistaradeild Evr-
ópu koma nú inn í keppnina.
Á meðal þeirra er enska liðið
Liverpool, sem sækir hollenska
liðið Vitesse Arnhem heim.
Steven Gerrard verður að öllum
líkindum í byrjunarliði Liver-
pool eftir að hafa verið settur út
í kuldann.
Malaga frá Spáni tekur á móti
Leeds, hinu enska liðinu í
keppninni. Þetta er fyrri leikur
liðanna í 3. umferð. Síðari leik-
irnir verða háðir þann 12. des-
ember. ■
OWEN
Michael Owen, framherji Liverpool, hefur skorað reglulega það sem af er tímabilinu og
hyggur sér eflaust gott til glóðarinnar.