Fréttablaðið - 28.11.2002, Qupperneq 20
Leikarinn Russell Crowe hefurverið valinn kaldasti persónuleik-
inn í Hollywood af netsíðunni Film
Threat. Önnur í röðinni varð Winona
Ryder, en fast á hæla henni komu
Cuba Gooding Jr., Robert De Niro og
Woody Allen. Samkvæmt Film
Threat er Crowe villtur og hömlu-
laus og missti af Óskarnum í A
Beautiful Mind af því hann er svo
kjaftfor og óalandi. Aðrir sem hafa
komist efst á þennan lista eru Robin
Williams og Freddie Prinze Jr.
Harry Potter og leyniklefinn ersú kvikmynd sem hraðast hefur
náð 30 milljóna
punda innkomu í
Bretlandi. 11,6
milljónir punda
höluðust inn fyrir
myndina um helg-
ina, en fyrsta
Harry Potter-
myndin var langt
undir þessu eftir
að hafa verið jafn lengi í kvik-
myndahúsum, eða 900.000 pundum
lægri. James Bond-myndin nýjasta
tók inn 9,1 milljón punda fyrstu sýn-
ingarvikuna og fór rakleiðis á topp
tíu lista.
Elijah Wood, sem fer með hlut-verk Fróða í Hringadróttinssögu,
hefur samþykkt að
leika í kvikmynd
sem hljómsveitin
The Flaming Lips
er með í smíðum.
Fjallar hún um
fyrstu jólin sem
haldin eru á reiki-
stjörnunni Mars.
Það er Wayne
Coyne, söngvari Lips, sem stendur
að gerð myndarinnar. Hljómsveitin
hefur verið á tónleikaferðalagi und-
anfarið með tónlistarmanninum
Beck. Stefnir sveitin að því að taka
myndina upp í frístundum sínum.
20 28. nóvember 2002 FIMMTUDAGUR
ONE HOUR PHOTOkl. 5.50, 8 og 10.10ROAD TO PERD... kl. 5, 7.30 og 10
ROAD TO PERD... kl. 5.30, 7 og 10.30
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10
Sýnd kl. 4, 6 8 og 10
kl. 4.50Í SKÓM DREKANS
BLOOD WORK kl. 8
Sýnd kl. 5, 6.30, 8 og 10
THE TUXEDO kl. 6, 8 og 10 VIT474 UNDERCOVER BROTHER kl. 4
VIT
448
LILO OG STITCH/ísl.tal kl. 4 VIT429CHANGING LANES kl. 6, 8 og 10
VIT
479
Sýnd kl. 4 og 8 VIT 469
kl. 5.45, 8 og 10.10HAFIÐ
kl. 5.50 og 10.15DAS EXPERIMEN
KVIKMYNDIR Njósnarinn 007 hefur
bjargað heiminum með reglulegu
millibili og hefur barist við geð-
sjúka ofurglæpamenn á hvíta tjald-
inu í 40 ár. Pierce Brosnan leikur
Bond nú í fjórða skipti og engin
þreytumerki virðast vera á honum.
Kvikmyndagagnrýnandi BBC segir
Die Another Day vera bestu Bond-
mynd Brosnans og að þar fyrir utan
sé þetta hressilegasta Bond-myndin
í 15 ár. Býsna gott þegar tekið er til-
lit til þess að menn héldu því fram
að í
X væri Vin Diesel mættur með
ofurhetju 21. aldarinnar og Bond
gæti pakkað saman. Samkvæmt
BBC á Diesel ekki séns og kemst
ekki með tærnar þar sem Bond er
með hælana.
Bond lendir þó í bölvuðum
hremmingum í upphafi nýju mynd-
arinnar, er pyntaður í Norður-
Kóreu og þegar hann kemst heim
fær hann litlar þakkir frá yfirboð-
urum sínum. Njósnarinn er því úti í
kuldanum en þarf samt að hafa
uppi á geðsjúklingi sem leikur laus-
um hala. Hann nýtur vafasamrar
aðstoðar bandaríska njósnarans
Jinx, sem hin gullfallega Halle
Berry leikur af alkunnum þokka.
Leitin ber Bond frá London til
Havana og áfram alla leið til Ís-
lands. Þar heldur milljarðamæring-
urinn Gustav Graves, Toby Steph-
ens, til í íshöllinni sinni. Sá hefur
auðvitað ekkert nema illt í hyggju
og leikurinn æsist til muna með til-
heyrandi bílahasar og sverða-
glamri.
Þar sem myndin er afmælis-
mynd ákváðu framleiðendurnir að
bjóða hörðum aðdáendum kappans
upp á heilmikla veislu og þannig
bregður flestum þeim tækjum og
tólum, sem Bond hefur notað í
gegnum tíðina, fyrir og Berry skell-
ir sér í bikiní og rís upp úr sjónum
líkt og Ursula Andress forðum í
fyrstu Bond-myndinni fyrir 40
árum. Það mun því væntanlega fara
sæluhrollur um þá sem þekkja af-
rekasögu Bonds út í hörgul og ljúf-
ar minningar munu skjóta upp koll-
inum inn á milli sprenginganna og
djöfulgangsins.
thorarinn@frettabladid.is
FRÉTTIR AF FÓLKI
Hristur en ekki
hrærður
Smárabíó, Laugarásbíó, Regnboginn og Borgarbíó á Akureyri frumsýna á
morgun nýjustu James Bond-myndina, Die Another Day. Þetta er 20. myndin
um njósnarann á 40 árum og því er hvergi til sparað og aðdáendur hans verða
varla fyrir vonbrigðum.
JAMES BOND
Er samkvæmt fæðingarvottorðinu fæddur í Skotlandi árið 1924 og þrátt fyrir að hafa í gegnum árin reykt um 70 tyrkneskar sígarettur
á dag, skellt í sig óteljandi vodkablöndum og sængað hjá fleiri konum en meðalpoppstjarna er kappinn enn í fullu fjöri.
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10 VIT 468
www.gunnimagg . i s
Trúlofunar- og
giftingarhringir
20% afsláttur í takmarkaðan tíma
DÓMAR Í ERLENDUM
MIÐLUM:
Internet Movie Database - 7.3/10
Rottentomatoes.com- 56% = Rotten
Ebert & Roeper - einn þumall upp -
einn niður
Los Angeles Times - 3 stjörnur
Mögnuð augnablik:
Játningar Svarthöfða á toppnum
VÍSINDASKÁLDSKAPUR Hápunktur
Stjörnustríðsmyndarinnar, The
Empire Strikes Back, þegar
erkiskúrkurinn Svarthöfði segir
Loga Geimgengli að hann sé í raun
faðir hans hefur verið valið magnað-
asta augnablikið í vísindaskáldsögu-
mynd. Máttur Svarthöfða er mikill
og hann gerði sér lítið fyrir og ruddi
mögnuðu upphafsatriði 2001: A
Space Odyssey úr efsta sætinu og
gnæfir yfir 99 tilnefndum atriðum
úr kvikmyndum og sjónvarpsþátt-
um.
Skelfileg uppgötvun Charles
Heston þegar hann rekst á leifar
Frelsistyttunnar á Apaplánetunni
hafnaði í þriðja sæti og andlát Dr.
Spocks í Star Trek myndinni The Wr-
ath of Kahn í því fimmta. Hinn miður
geðslegi málsverður sem geimveran
í Alien mætti óboðin í, beint úr mag-
anum á John Hurt, komst ekki lengra
en í sjöunda sætið og geimkrúttið
E.T. hafnaði í níunda sætinu með
krökkunum á BMX hjólunum sem
flugu fram hjá tunglinu og í tíunda
sætinu dvelur vélmennið Roy Batty
úr Blade Runner með hin ódauðlegu
orð sín: „Ég hef séð hluti sem þið
mannfólkið mynduð aldrei trúa.“
SVARTHÖFÐI
Vondur faðir gengst við syni sínum sem
hann hefur vanrækt frá fæðingu. Ógleym-
anlegt atriði sem slær flestu öðru við.
Vandaðar heimilis- & gjafavörur
Kringlan 4-12 • s. 533 1322
Kryddskæri
verð kr. 2.900,-