Fréttablaðið - 28.11.2002, Síða 25
Keypt og selt
Til sölu
Þvottavél. Fagor 1000/600 snún. 3
ára, lítið notuð. 26.000 kr. ef sótt fyrir 1.
des (29.000 kr.) s. 697-5948.
Suzuki Swift ‘92 ek. 100 þ., sk. ‘03,
150 þús., eldhús/borðst.borð + 6 stólar
10 þús., eldhúsborð 3 þús., Ikea sófab.
1 þús., Chicco bílstóll 5 þús. Uppl í s:
552-5255, 692-2825.
Sjónvarp 10 þ. Video myndbandsv. JVC
15 þ. Apple Power PC 10 þ. Uppl. í 847
5545.
Rúm frá Betra Bak til sölu. 80x200
cm. 2 ára, vel með farið. Hækkun á
höfði/fótum/nudd m. fjarstýringu. Mjög
góð tempur dýna. Uppl. 698 4509. Á
sama stað fæst gefins horntölvuborð.
Gluggatjöld. Erum flutt í Síðumúla 15.
Mikið úrval vandaðra gluggatjaldaefna.
Saumastofa á staðnum. Saumalist,
áður Fákafeni. Uppl. í 581 4222.
Í TILEFNI AF 1 ÁRS AFMÆLI PROXY
Smiðjuvegi 6 er 15% afsláttur fram að
1. des. af öllum vörum. Erum með
ódýrar indverskar handunnar trévörur,
grímur og húsgögn. Opið 11-18 laug-
ard. til 17. S: 544 4430.
Óskast keypt
Óska eftir 6-8 hesta húsi í Heimsenda.
Uppl. í síma 694 1967.
Hljóðfæri
Til sölu Hnappa harmonikka með
sænskum gripum, þriggja kóra.
Díatónísk Hnappa harmonikka þriggja
kóra. S: 462 6252 e kl 18.
Tölvur
Notaðar tölvur á frábæru verði. Vor-
um að fá inn tölvur, skjái, prentara, ör-
gjörva og fl. GÓÐ KAUP. Tölvuhúsið,
Lækjargata 34a, Hafnarf. S. 565 0435.
Til bygginga
Vinnuskúrar til leigu og sölu. Einnig
færanlegar girðingar. Hafnarbakki hf.,
www.hafnarbakki.is, Sími 565-2733
Fyrirtæki
Billiardstofa í fullum rekstri með 9
borð ásamt öllum búnaði og húsnæði
411 fm. Öll skipti ath. góð lán. Sigurður,
898 9097.
Heildsala
Undirfatalager til sölu. Mikill afsláttur.
Uppl. í síma 847 3082. E.V. Heildversl-
un.
Framleiðandi á karla- og kvenfatnaði
getur boðið eftirfarandi vörur á mjög
hagstæðu verði: Karlmannaskyrtur,
kvenblússur, jakkar, bolir og poloskyrt-
ur. Við sérhæfum okkur í stórum núm-
erum, allt að 6x. Vörurnar afgreiddar frá
vörulager í Hollandi. Þeir sem hafa
áhuga hafa samband í 0031-
356321761.
Þjónusta
Jólaskemmtanir
JÓLASVEINARNIR fara að koma til byg-
gða, viltu að þeir komi við hjá þér. Uppl.
í S: 694 7474 Jólasveinaþjónusta
Skyrgáms þar sem 20% renna til Hjálp-
arstarfs kirkjunnar
Veisluþjónusta
OSTABÚÐ OG VEISLUÞJÓNUSTA með
frábært úrval af veisluföngum og sér-
vöru. Ostabúðin/Þrír grænir ostar ehf.
S: 5622772
Ostabakkar 3 stærðir, pinnamatur party
samlokur, ostatertur og ostakörfur.
Ostahúsið Strandgata 75Hafnarfirði.
P.s.565 3940Opið til alla daga til 18, 14
á laugard.
Tölvur
KK TÖLVUR. Tölvuviðg. frá 1.950 kr.
Uppfærslur frá 15.900 kr. Notað upp í
nýtt. S. 554 5451. www.kktolvur.is
GAGNABJÖRGUN! Ekki örvænta, það
er hægt að bjarga gögnum í nær öllum
tilvikum. S: 696 3436 www.sim-
net.is/togg
Bókhald
ALHLIÐA bókhalds- og uppgjörsþjón-
usta Traust þjónusta á sanngjörnu
verði. Uppl. í síma 511 2930 og á
www.bokhald.com
Fjármál
Offshore reikningur með korti, allir aðil-
ar samþykktir kíktu á og sæktu um á
vefsíðunni. http://ibc-hol-
land.com/HJGLOBAL
Ráðgjöf
GREIÐSLUERFIÐLEIKAR. Viðskipta-
fræðingur aðstoðar við samninga í
banka, við lögfræðinga, og aðra. Sjáum
um að greiða reikningana, nauðunga-
sölur og gjaldþrot. Færum bókhald.
Fyrirgreiðsla og Ráðgjöf. 13 Ára
reynsla. S: 660 1870, for@for.is,
www.for.is
FJÁRMÁL-LAUSNIR. Ertu í greiðslu-
erfiðleikum? Tökum að okkur að end-
urskipuleggja fjármál einstaklinga og
smærri fyrirtæki, þ.m.t samninga um
vanskil og hagstæðari greiðslubyrði. 3
Skref ehf Lágmúla 9 S: 533-3007
Hreingerningar
Teppahreinsun og almennar hrein-
gerningar. Hreingerningafélagið Hólm-
bræður. S: 555 4596 og 897 0841.
Jólahreingerningar á heimilum og al-
menn þrif, nú er tíminn til að bóka.
Hreint , s. 849 4359.
PJATTRÓFURNAR! Jólahreingerningar á
heimilum, bókið tímanlega, einnig tök-
um við að okkur þrif í heimahúsum,
stigahúsum og flutningsþrif. Áralöng
reynsla. Uppl. í síma 848 8262 og 849
9600.
TEPPAHREINSUN - MOTTUHREINSUN
með djúphreinsunarvél fyrir heimili
stigahús sameigna og fyrirtæki. S:
8960206 SKÚFUR TEPPAHREINSUN
JÓLAHREINGERNINGAR og regluleg
þrif í heimahúsum. Er hússtjórnarskóla-
gengin. Árný 898 9930.
ÚTRÉTT HJÁLPARHÖND EHF !! S: 895
3211 HJÁLPA einstaklingum, húsfélög-
um og fyrirtækjum með viðhald, við-
gerðir sorpgeymsluþrif, sótthreinsun og
alhliða þrif.
ERT ÞÚ AÐ FLYTJA? Og allveg búin á
því?, Láttu hreingerninguna í okkar
hendur. Alhliða ræstiþjónusta fyrir
heimili og vinnustaði. Geri föst verðtil-
boð. Hreingerningaþjónusta Berg-
þóru, S. 699-3301
Hreingerningaþjónusta R. Sigtryggs-
sonar. Teppa- og húsgagnahreinsun,
búferlaþrif. Aldraðir og öryrkjar fá afsl.
Uppl. í 587 1488 eða 697 7702
Málarar
Annast alla almenna málningarvinnu.
Get bætt við verkefnum. Guðmundur
Svavarsson málarameistari, s. 893
0225.
GETUM BÆTT VIÐ OKKUR VERKEFN-
UM í málningar- og viðhaldsvinnu. Van-
ir menn og vönduð vinnubrögð.
Tilb./tímav. S. 896-5758.
Iðnaður
Smiðir geta bætt við sig verkefnum
bæði í uppsláttarvinnu og viðhald,
erum með mót. Uppl. í s. 659 5936.
Múrverk, flísalagnir og viðgerðir. Múr-
arameistarinn. Sími 897 9275.
Viðgerðir
Getum tekið að okkur viðhald og við-
gerðir fyrir jól. Veggfóður og dúkalögn.
Uppl. í s. 552-3605, Hannes.
Pípulagnir. Viðgerðir, breytingar, still-
ing hitakerfa. Löggiltur meistari. S. 894
7299 og 564 1366, Ásgeir.
RAFTÆKNIRINN RÁÐAGÓÐI með al-
menna rafvirkjun, heimilistækjavið-
gerðir, Raflagnateikningar ofl. Davíð
Dungal S: 8964464
Gerum við video og sjónvörp sam-
dægurs. Ábyrgð. Afsl. til elli-/örorkuþ.
Sækjum/sendum. Litsýn, Borgart. 29, s.
552 7095
Húsaviðgerðir
Húsa- og húsgagnasmiður getur bætt
við sig verkefnum. Timavinna eða til-
boð. S. 893-5390.
Lása- og hurðaviðgerðir, glerjun- og
gluggaviðgerðir. Glugga- og hurðaþjón-
ustan, S. 895-5511.
TRÉGAUR EHF. Parket, innréttingar,
gluggar, hurðir, þök, sólpallar og öll al-
menn trésmíði. S: 898 6248. eða tre-
gaur@simnet.is
RAFVIRKJAR! Getum bætt við okkur
verkefnum. Almennar raflagnir, viðhald
eldri lagna, tölvu-, sjónvarps- og síma-
lagnir. S. 6604430
LEKUR ÞAKIÐ? Við kunnum ráð við því!
Þéttingar og húðun með hinum frá-
bæru Pace-þakefnum. Uppl. í S. 699
7280
BLIKKTAK auglýsir. Skipti um þakrenn-
ur, klæði steyptar rennur, legg þök, þak-
kanta, álklæðningar, steniklæðningar
og öll almenn blikksmíði. Uppl. í síma
861-7733
S.G. Goggar. Önnumst allar múrvið-
gerðir. Höfum reynslu í útifloti á svöl-
um, tröppum og bílskúrsþökum.
Gummi 899 8561 Siggi 899 8237
Meindýraeyðing
MEYNDÝRAEYÐING HEIMILANNA, öll
meyndýraeyðing f. heimili, húsfélög.
Skordýragreining, sérfræðiráðgjöf. S:
822 3710.
Búslóðaflutningar
Ert þú að flytja? Búslóðafl., fyrirtækjafl.,
píanófl. o.fl. Extra stór bíll. Flutningaþj.
Mikaels. S. 894 4560
Tek að mér búslóðaflutninga, frábært
verð og frábær þjónusta, aukamaður ef
óskað er. Uppl. í síma 895 6563 og 899
2536. ATH. Lægsta verðið.
Allar stærðir bíla alla daga vikunnar.
Aukamaður ef óskað er. Stór bíll 899
2213 millib. 692 7078.
Dulspeki-heilun
Bollaspákona. Spái í bolla frá 7. des.
og út mánuðinn, verð kr. 2.000, tek
kreditkort, er einnig með til sölu fönd-
ur. Pantið í tíma, er í síma 866-6597, Ás-
dís. ATH! Geymið auglýsinguna.
Snyrting
Neglur, neglur, neglur! Gelneglur m/
French 3400. Akrýlneglur m/French
3200. 6 ára reynsla. Hringdu í 695
7423. Geymið auglýsinguna.
Spádómar
Miðill/huglæknir, fyrirbænir S: 908
5050. Ástin, vinnan, fjármálin,
draumráðn og símaspá. Miðlun. Sí-
mat. alla daga til 24. Laufey
SPÁSÍMINN 908-5666 Stjörnuspá,
tarot, talnaspeki, draumráðningar
(ást og peningar), spámiðlun og and-
leg hjálp. Nafnleynd og alger trúnað-
ur.
Spennandi tími framundan? Spámið-
illinn Yrsa í beinu sambandi 908 6414.
149,90 mín. Hringdu núna! og 908
2288 66,38 mín. milli 10 og 12
ÖRLAGALÍNAN 595 2001 / 908 1800.
Miðlar, spámiðlar, tarotlestur, drauma-
ráðningar. Fáðu svar við spurningu
morgundagsins. Sími 908 1800 eða
595 2001 (Vísa/Euro). Opin frá 18-24
alla daga vikunnar
Önnur þjónusta
EUROBÓN DVERGSHÖFÐA 27 (í gamla
Mözduhúsinu) Þvottur - bón - mössun
- djúphreinsun - blettun og fl. Sækjum
- sendum. S: 866 0784
MÁLNINGAR-
OG VIÐGERÐARÞJÓNUSTA
Fyrir húsfélög - íbúðareigendur.
Málum - smíðum
- breytum - bætum.
Vönduð vinna, vanir menn.
Öll þjónusta á einum stað.
HÚSVÖRÐUR EHF
S: 533 3434 og 824 2500
PÍPULAGNIR
- VIÐGERÐARÞJÓNUSTA
Nýlagnir / breytingar
almennt viðhald.
S. 897 6613
GÍSLI STEINGRÍMSSON
Löggiltur pípulagningameistari
RAFLAGNIR
OG DYRASÍMAR
Raflagnir og dyrasímaþjónusta.
Endurnýjum í eldri húsum.
Töfluskipti.
Tilboð.
LÖGGILTUR RAFVERKTAKI
Sími: 896 6025
VIÐHALDSÞJÓNUSTA
MÁLNINGAR- OG
VIÐHALDSÞJÓNUSTA
Tökum að okkur alla almenna
málningarvinnu, inni sem úti.
Einnig háþrýstiþvott, steypu- og
sprunguviðgerðir, sílanböðun,
sandspörtlun og spörtlun á gifs-
plötum. Gerum verðtilboð að
kostnaðarlausu. Vönduð vinna,
fagmenn
ALLT- VERK EHF.
S. 699 6667 OG 586 1640
JÓLASTEMMING
Alhliða jólasveinaþjónusta.
Sigga Beinteins, Grétar Örvars
og lifandi og hressir jólasveinar,
skemmta við öll tækifæri.
Tökum á móti leikskólum
og skólum í Heiðmörk.
Harmonikkuleikari með.
Frábær jólastemming
Jólasveinn.is
Sími 869 5033 eða 566 7007
ÖMMU ANTIK
Haust tilboð á matar
og kaffistellum.
Hjá ÖMMU ANTIK
Hverfisgötu 37
Sími: 552 0190
Opið 11 - 18
Laugardaga 12 - 16
25FIMMTUDAGUR 28. nóvember 2002
og margfaldaðu ánægjuna!
Njóttu örvandi eiginleika
Allar nánari upplýsingar
um VIGEL™ á www.kyn.is
Jólaostarúllan og hátíðar-
desertinn frá Ostahúsinu
komin í verslanir.
Munið að panta ostakörfurnar
tímanlega fyrir jólin.
Ostahúsið · Strandgata 75 · Hafnarfirði · Sími: 565 3940
Munið veisluþjónustuna · Opið 9.30 til 18.00, Laugard. 9.30 til 14.00
10
ára
EKKI ELDA Í KVÖLD !
Við bjóðum þér fría máltíð.
Þetta er auglýsing á okkar vörum.
Þú nýtur þess að fá góðan mat
og skemmtilega kynningu.
Hringdu og fáðu upplýsingar í síma 555-0350
Geymið auglýsinguna
Þjónusta
Heilsa
VIÐURKENNING Páll Skúlason há-
skólarektor afhenti í gær fjórum
doktorsnemum í lyfjafræði viður-
kenningu úr Verðlaunasjóði Berg-
þóru og Þorsteins Scheving Thor-
steinssonar lyfsala. Ekki hefur
verið veitt áður úr sjóðnum sem
Bent, sonur Þorsteins stofnaði.
Hákon Hrafn Sigurðsson, sem
rannsakar hvernig lyf fer í auga og
dreifist þar, fékk viðurkenningu.
Markmið hans er að þróa nýja
augndropa sem skila lyfinu betur í
augað.
Þá fékk Sesselja Sigurborg
Ómarsdóttir viðurkenningu. Hún
er að einangra og ákvarða bygg-
ingu fjölsykra úr íslenskum fléttu-
tegundum. Þetta er gert til að
kanna áhrif fjölsykranna á ónæm-
iskerfið og finna tengsl milli bygg-
ingar þeirra og verkunar.
Þorsteinn Þorsteinsson rann-
sakar efnasmíði og virkni forlyfja
og mjúklyfja. Fyrrnefndu lyfin er
efni sem breytast í lyf þegar þau
koma í líkamann. Síðarnefndu lyf-
in geta brotnað niður í náttúrunni.
Þórunn Ósk Þorgeirsdóttir
rannsakar fitusýrur og
mónóglyseríð sem sýnt hafa veiru-
bakteríu- og sveppadrepandi eigin-
leika. Markmið hennar er að hanna
stöðugt og virkt lyfjaform til með-
ferðar á húð- og slímhúðarsýking-
um. ■
Verðlaunasjóður Þorsteins Scheving Thorsteinssonar:
Viðurkenning til
lyfjafræðinema
VERÐLAUNAHAFARNIR FJÓRIR
Doktorsnemarnir Hákon Hrafn Sigurðsson, Þorsteinn Þorsteinsson, Sesselja Sigurborg
Ómarsdóttir og Þórunn Ósk Þorgeirsdóttir fengu í gær viðurkenningu fyrir lyfjafræðirann-
sóknir sínar. Hvert þeirra fékk 200.000 krónur.
Bjartur hefur endurútgefiðbókina Söngurinn um sjálfan
mig, í þýðingu Sigurðar A. Magn-
ússonar, eftir
bandaríska skáldið
Walt Whitman.
Þýðingin kom út
árið 1994 og hefur
verið uppseld um
langt skeið. Sig-
urður hefur yfir-
farið þýðinguna í
tilefni af þessari
nýju útgáfu.
Whitman er einn af jöfrum
bandarískra bókmennta. Ljóða-
flokkurinn Söngurinn um sjálfan
mig, sem kom fyrst út árið 1855,
er hans þekktasta verk og geymir
kjarnann úr lífsverki þessa sér-
kennilega og dirfskufulla skálds.
Bókin er 125 blaðsíður.
NÝJAR BÆKUR
■ Keypt og selt ■ Þjónusta ■ Heilsasmáauglýsingar ■ Skólar & námskeið ■ Tómstundir & ferðalög■ Heimilið■ Bílar & farartæki ■ Húsnæði ■ Atvinna ■ Tilkynningarsími 515 7500