Fréttablaðið - 28.11.2002, Síða 28
28 28. nóvember 2002 FIMMTUDAGUR
NÝTT MYNDBAND
Myndbandið Veiðiklær er ætl-að öllum þeim sem hafa
áhuga á að veiða og matreiða
villibráð. Farið er á
veiðar með íslensk-
um veiðimönnum
víðs vegar um landið
og eftirtaldar teg-
undir veiddar: önd,
gæs, rjúpa, hreindýr,
svartfugl, skarfur og
lundi, sem er háfaður. Þeir veiði-
menn sem fram koma á mynd-
bandinu eru Ásgeir Heiðar, Árni
Baldursson, Stefán Geir Stefáns-
son, Hákon Aðalsteinsson, Ívar
Erlendsson, Róbert Schmidt,
Pálmi Gestsson, Sigmar B.
Hauksson og Hafsteinn Guð-
mundsson Flateyjarbóndi, en
hann er sá eini sem mundar háf í
stað byssu í þáttunum. Íslenskir
matreiðslumenn sýna matreiðslu
á bráðinni og koma með hug-
myndir að matreiðslu og fram-
setningu. Í lok spólunnar fylgja
uppskriftir að níu villibráðarrétt-
um ásamt ráðleggingum um val á
vínum með þeim.
LULU HEIÐRUÐ
Skoska söngkonan Lulu brosti blítt eftir
að hafa tekið við heiðursnafnbót háskól-
ans í Glasgow. Lulu er meðal annars
þekkt fyrir að hafa sungið Evróvisjón-lagið
Puppet on a String.
TÓNLIST Poppstjarnan Britney
Spears hefur hætt öllum af-
skiptum af veitingastaðnum
Nyla, sem starfræktur er í New
York.
Rekstur staðarins hefur geng-
ið illa allt frá því hann var stofn-
aður í sumar og hefur Britney í
kjölfarið ákveðið að hætta að
styðja við bakið á honum. Hefur
hún meðal annars hætt við að
halda upp á 21 árs afmælið sitt á
staðnum í næsta mánuði.
Eigendur staðarins segja að
málinu sé hins vegar ekki lokið
og hafa krafist þess að popp-
stjarnan hjálpi sér upp úr sár-
ustu skuldunum. Lögfræðingur
Britney segir að hún hafi aldrei
átt hlut í staðnum og aldrei
grætt peninga á honum og því sé
hún laus allra mála.
Veitingastaðurinn mun að öll-
um líkindum skipta um nafn á
næstunni auk þess sem lappað
verður upp á matseðillinn. ■
Söngkonan Britney Spears:
Hætt afskiptum
af veitingastað
BRITNEY
Britney Spears heimsótti veitingastaðinn
Nyla aðeins þrisvar sinnum á meðan hún
vildi ennþá tengja nafn sitt við staðinn.
Leikstjóri The French
Lieutenants Woman:
Lést í
London
ANDLÁT Tékkneski kvikmyndaleik-
stjórinn Karel Reisz lést í London
síðastliðinn mánudag, 76 ára að
aldri.
Leikstjórinn er frægastur fyrir að
leikstýra kvikmyndinni The
French Lieutenants Woman og
var einn þekktasti leikstjóri „ný-
bylgjunnar“ í Bretlandi.
Rreisz kom 12 ára gamall sem
pólitískur flóttamaður til Eng-
lands og talaði þá ekki orð í ensku.
Foreldrar hans létust í Auscwitch-
fangabúðunum. Eiginkona Reisz,
Betsy Blair, sagði hann hafa verið
fárveikan síðustu sex mánuði. ■
HREPPAFLUTNINGAR Flytja á til bæj-
armörk Reykjavíkur og Kópavogs í
Blesugróf þannig að fimm íbúðar-
hús sem eru í Kópavogi verða í lög-
sögu höfuðborgarinnar. Tilfærslan
er hluti af nýju deiliskipulagi
svæðisins.
Húsin fimm eru í lítilli geil sem
gengur inn í land Reykjavíkur frá
Kópavogi. Húsin þar næst í kring
eru í Reykjavík.
Auður Jóns, sem býr í húsinu
Reynisstað, segist ekkert hafa á
móti því að bæjarmörkin verði
flutt. Í verki hafi íbúarnir að
mörgu leyti hvort eð er tilheyrt
Reykjavík. Dóttir hennar hafi til
dæmis fengið að ganga í Fossvogs-
skóla eins og börnin í húsunum í
kring. Nú búi dóttirin í næsta húsi
og fái einnig að senda sitt barn í
Fossvogsskóla.
Að sögn Auðar fylgdu reyndar
ýmis óþægindi því að vera á mörk-
um tveggja heima. Meðal annars
hafi Reykjavík viljað láta hús
þeirra heita Stjörnugróf 27. Þá hafi
vegurinn að hverfinu Kópavogs-
megin ekki verið malbikaður fyrr
en seint og um síðir.
„Þar til fyrir mánuði vorum við
með sorptunnur frá Reykjavík. Þá
byrjaði Kópavogur að senda tunn-
ur hingað. Nú fáum við bráðum
tunnur frá Reykjavík aftur,“ segir
Auður og brosir við lýsinguna á lífi
á mörkum tveggja sveitarfélaga.
Auður segir sér síst hugnast
nýja deiliskipulagið að byggja eigi
nýjan og mikinn veg með hring-
torgi ofan við hverfið: „Ég skil ekki
alveg þörfina fyrir þetta hringtorg.
Það verður ansi nálægt okkur. En
það hefur verið sagt að reisa eigi
hljóðmön á milli. Þetta verður því
betur lokað af en áður. Vonandi
verður þetta að minnsta kosti til
þess að eitthvað verði gert fyrir
umhverfið hér,“ segir Auður.
gar@frettabladid.is
Hreppaflutningar íbúa í Blesugróf
Fimm hús Kópavogsbúa í Blesugróf verða framvegis í Reykjavík. Auður Jóns, sem býr í húsinu
Reynisstað, segist sátt og vonast eftir úrbótum í nánasta umhverfinu. Auður óttast þó ónæði af
fyrirhuguðu hringtorgi rétt fyrir ofan hverfið.
AÐFLUTT Í REYKJAVÍK ÁN ÞESS AÐ FLYTJA
„Vonandi verður þetta að minnsta kosti til þess að eitthvað verði gert fyrir umhverfið hér,“
segir Auður Jóns um að heimili hennar verður hér eftir í Reykjavík en ekki Kópavogi.
JÓLAFATNAÐUR - JÓLAGJAFIR
á 50-80% lægra verði
Einnig barna- og unglingafatnaður
EVERLAST-gallar
kr 2.990
- með og án hettu allar stærðir -
blátt - grátt - svart - rautt
Opið
mán - fös 11-18
laugard. 11-16
OUTLET 10
+ + + m e r k i f y r i r m i n n a + + +
FAXAFENI 10 – SÍMI 533 1710
Ge
rðu
góð
ka
up
Everlast dúnúlpur 4.990
Mao barnajakkaföt 5.990
Parrot barnabuxur 2.590
Fila barnaúlpur 2.990
Herrar
Bene jakkaföt 12.500
4 you skyrtur 1.990
Marco bindi 1.990
Herraskór 3.990
4 you gallabuxur 2.990
Dömur
Nicegirl bolir 1.990
Tark buxur 2.990
Morgan jakkar 8.500
Laura Aim skyrtur 1.990
Levi’s gallabuxur 2.990
Diesel gallabuxur 3.990
Póstsendum