Fréttablaðið - 28.11.2002, Síða 29
FIMMTUDAGUR 28. nóvember 2002
TÓNLIST Popparinn Elton John ætl-
ar að halda aðra bílskúrssölu á
eigum sínum, en sú síðasta halaði
inn um 58 milljónir króna. Þá seldi
hann meðal annars fjölmörg gler-
augu úr stóru safni sínu. Allur
ágóði mun renna til alnæmissam-
taka sem Elton hefur stofnað.
Meðal varningsins sem verður
til sölu verða rándýr föt frá hönn-
uðum á borð við Versace, Prada
og Gucci. Einnig verður þar að
finna jólaskreytingar, bindi og
kerti úr safni söngvarans. ■
Elton John:
Önnur
bílsskúrssala
að hefjast
ELTON JOHN
Elton John er að losa sig við ýmsa hluti sem hann hefur ekki lengur þörf fyrir.
HEIMSMET Daniel Baraniuk setti
nýtt heimsmet í staurasetu í
gær, en þá hafði hann setið á
staurnum í samfleytt 196 daga.
Baraniuk er 27 ára gamall at-
vinnulaus Pólverji frá Gdansk,
en hann hlaut að launum 22.800
evrur og nafnið sitt í heimsmeta-
bók Guinness.
Tíu manns tóku þátt í kepppn-
inni, sem hófst í Heidepark í
bænum Soltau í Þýskalandi 15.
maí síðastliðinn.
Staurarnir eru 2,5 metrar á
hæð, með sæti á toppnum, en
keppendur máttu yfirgefa staur-
inn í tíu mínútur á tveggja tíma
fresti. Sá sem næstur komst
Baraniuk féll af sínum staur í
október síðastliðnum. Hann
gafst upp af hreinum leiðindum,
ekki síst vegna þess að gestum í
garðinn hafði fækkað verulega
vegna vetrarkulda. ■
Pólverji setur met í staurasetu:
Hélt út í sex og hálfan mánuð
FRÁ HEIDEPARK
Keppendur gáfust upp hver á
fætur öðrum, en Baraniuk sat
sem fastast í 196 daga.