Fréttablaðið - 03.12.2002, Qupperneq 2
2 3. desember 2002 ÞRIÐJUDAGUR
LÖGREGLUFRÉTTIR
Sigurður Kári Kristjánsson er annar tveggja lög-
manna af Lex lögmannsstofu sem skipa vænleg
sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins fyrir kom-
andi þingkosningar. Á stofunni starfa 16 lögmenn
og því væntanlega einhverjir enn á lausu fyrir þá
sem eru að raða á lista.
Ég veit ekki hver það verður. Þetta sýnir
bara hversu stofan er góð og hvað það er
gott fólk hér. Þetta sýnir líka hversu gott
uppeldi maður hefur fengið hjá þessum
lögmönnum sem hér eru, sínum mentorum.
SPURNING DAGSINS
Hver kemur næstur?
Hafnarfjörður:
Niðurskurð-
ur í leikskóla-
málum
BÆJARMÁL Leikskólanefnd Hafnar-
fjarðar lýsir yfir áhyggjum vegna
mikils sparnaðar á sviði nám-
skeiða starfsmanna leikskólanna í
tengslum við fjárhagsáætlun
næsta árs.
Fulltrúi starfsfólks leikskóla
Hafnarfjarðar telur sparnaðinn
vera aðför að því faglega starfi
sem unnið er í leikskólanum. Þá
mótmælti hann því að starfsmenn
leikskólanna skuli ekki lengur fá
niðurgreidd leikskólagjöld fyrir
börn sín. ■
FÁTÆKT Um 45.000 Íslendingar telja
sig ekki eiga fyrir jólahaldi í ár, eða
15% þjóðarinnar. Þetta kemur
fram í þjóðarpúlsi Gallups. Fleiri
karlar en konur
telja sig ekki eiga
fyrir jólahaldinu og
fleiri í aldurshópn-
um 18 til 24 ára og
35 til 40 ára eða um
18-19%. Þær upp-
lýsingar fengust hjá
Hjálparstarfi kirkj-
unnar og Mæðra-
styrksnefnd Reykjavíkur að
stöðugt bætist í hóp þeirra sem
þurfi aðstoð. Vilborg Oddsdóttir,
félagsráðgjafi hjá Hjálparstarfi
kirkjunnar, segir fjórðungi fleiri
hafa sótt um aðstoð í október á
þessu ári miðað við sama mánuð í
fyrra en þá hafi orðið mikil aukn-
ing. Hún segir 12-13% umsókna í
hverjum mánuði koma frá fólki
sem sé að sækja um í fyrsta sinn.
Ásgerður Jóna Flosadóttir, formað-
ur Mæðrastyrksnefndar Reykja-
víkur, tekur undir að stöðugt komi
inn nýir einstaklingar. Hún segir
160 fjölskyldur hafa sótt um aðstoð
síðastliðinn miðvikudag. Átta
hundruð fjölskyldur séu á skrá hjá
félaginu. Sumir komi sjaldan, sem
sýni að fólk leitar ekki aðstoðar
nema í brýnustu neyð.
Fréttablaðinu hafa borist upp-
hringingar þar sem fólk kvartar
yfir því að Mæðrastyrksnefnd
Reykjavíkur sinni eingöngu Reyk-
víkingum. Neyðin sé ekki síðri á
höfuðborgarsvæðinu og úti á lands-
byggðinni. Ásgerður segir Mæðra-
styrksnefnd því miður ekki geta
annað öllu Stór-Reykjavíkursvæð-
inu. Helstu ástæðuna segir hún fáa
starfsmenn. Bæði flokkun mat-
væla og fatnaðar ásamt því að út-
vega framlög sé gífurleg vinna
sem starfsmenn eigi í fullu fangi
með. Hún tók fram að matarmiða
um sem Bónus gaf fyrir skömmu
hefði verið dreift til Öryrkjabanda-
lagsins og Hjálparstarfs kirkjunn-
ar.
Vilborg segir Hjálparstarfið
þjóna öllu landinu og skipti engu
hvar fólk búi. Til að fá aðstoð þurfi
fólk að fylla út umsókn.
kolbrun@frettabladid.is
40.000 Íslendingar
eiga ekki fyrir jólum
Hjálparstarf kirkjunnar segir fjórðungsaukningu milli ára hjá þeim sem
þurfi aðstoð. Hjá Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur eru átta hundruð
fjölskyldur á skrá.
FRÁ HJÁLPARSTARFI KIRKJUNNAR
Matarúthlutanir fara fram í Reykjavík á fimmtudögum og föstudögum frá klukkan 10 til 12
og 13 til 16. Vilborg Oddsdóttir segir matvælum komið til fólks úti á landi og reynt sé að
finna bestu leiðirnar hverju sinni.
12-13% um-
sókna í hverj-
um mánuði
koma frá fólki
sem er að
sækja um í
fyrsta sinn.
www.icelandair.is
NBA-veisla! - Sjáðu Michael Jordan
Verð aðeins
48.810 kr.*
Síðustu söludagar.
Tryggðu þér sæti!
WashingtonWizards
og New York Knicks
5. - 8. desember
Pantaðu í síma
50 50 700
eða á söluskrifstofu
okkar í Kringlunni
á mann í tvíbýli
* Innifalið: Flug, flugvallarskattar, þjónustugjöld, gisting í
3 nætur á Holiday Inn Downtown og miði á leikinn.
Ekki missa af þessu einstaka tækifæri.
Síðasta leiktímabil þessa mikla snillings.
RÉÐUST Á STÚLKU Tveir hettu-
klæddir menn réðust með hnífi á
stúlku í austurborg Reykjavíkur
um helgina. Annar sló hana í
kviðinn meðan hinn tók upp hníf
og strauk honum við kinn hennar.
Þá hótuðu þeir henni og kærasta
hennar lífláti. Við svo búið hlupu
þeir í burtu.
HNÍFUR TEKINN Lögreglumenn
sem eftirlit hafa með myndavél-
um í miðborg Reykjavíkur veittu
fjórum mönnum athygli en einn
þeirra sást með stóran hníf sem
stóð undan peysunni. Fylgdu þeir
mönnunum eftir í myndavélunum
þar til lögreglan kom að þeim þar
sem þeir voru að fara inn á veit-
ingastað. Lagði lögreglan hald á
hnífinn.
FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ
Gert er ráð fyrir 17 milljarða afgangi á
rekstri ríkissjóðs í ár en 11,5 milljarða af-
gangi á næsta ári.
Endurskoðuð þjóðhagsspá:
Spáir 3% hag-
vexti 2004
ÞJÓÐARHAGUR Endurskoðuð þjóð-
hagsspá fjármálaráðuneytisins er
að mestu leyti samhljóða haustspá
ráðuneytisins. Gert er frá fyrir að
hagvöxtur verði 0,25% í ár og
1,75% á næsta ári. Fjármálaráðu-
neytið spáir nú í fyrsta skipti fyr-
ir um þjóðarhag árið 2004 og ger-
ir ráð fyrir þriggja prósenta hag-
vexti.
Í spá ráðuneytisins er gert ráð
fyrir að atvinnuleysi aukist lítil-
lega milli ára, verði 2,5% í ár en
2,75% á næsta ári. Verðbólga
dregst hins vegar hratt saman, er
áætluð 4,75% í ár, 2,25% á næsta
ári og tvö prósent þegar komið er
fram á árið 2004. Halli verður á
viðskiptum við útlönd, um 0,25% í
ár en hálft prósent næstu tvö ár. ■
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI
FÍKNIEFNI Fíkniefnadeild lögregl-
unnar í Reykjavík handtók fyrir
viku þrítugan Íslending í tengsl-
um við innflutning á fíkniefnum.
Sama dag og hann var handtekinn
var hann úrskurðaður í gæslu-
varðhald til 17. desember. Maður-
inn tengist máli Þjóðverja á sex-
tugsaldri og Íslendings um þrí-
tugs sem báðir hafa setið í gæslu-
varðhaldi síðan 8. nóvember
vegna innflutnings á 900 grömm-
um af amfetamíni og einu og
hálfu kílói af hassi. Á föstudag
samþykkti Héraðsdómur Reykja-
víkur að framlengja varðhaldinu
yfir mönnunum til 20. desember
næstkomandi.
Þjóðverjinn var handtekinn á
Keflavíkurflugvelli eftir að hafa
flogið hingað frá Frankfurt 7.
nóvember síðastliðinn. Þóttist
hann vera blaðamaður og gaf sig
á tal við tollverði meðan hann
beið eftir farangri sínum. Við
tollaeftirlit fannst síðan fyrr-
greint fíkniefni á manninum sem
hann hafði falið á sér innanklæða
við beltistað. ■
LEIFSSTÖÐ
Þjóðverjinn sem var handtekinn þar 7. nóvember er enn í gæsluvarðhaldi.
Þjóðverji og Íslendingur áfram í gæsluvarðhaldi:
Þriðji maðurinn handtekinn
BÆJARMÁL Ákveðið hefur verið að
hækka útsvarsprósentu Mosfells-
bæjar úr 12,65% í 12,94% á næsta
ári. Tekjur bæjarsjóðs aukast um
27 milljónir króna fyrir vikið.
Meirihluti sjálfstæðismanna í
bæjarstjórn telur að framlegð
bæjarsjóðs hafi verið ófullnægj-
andi undanfarin ár. Til þess að
standa undir þeim fjárfestingum
sem Mosfellsbær hefur þurft að
ráðast í hafi lántökur aukist veru-
lega. Nauðsynlegt sé að snúa þess-
ari þróun við með auknu aðhaldi í
rekstri og með því að auka tekjur
bæjarsjóðs.
Í útreikningum kemur fram að
12,65% útsvar myndi skila bæjar-
sjóði 1.304 milljónum króna á
næsta ári, en 12,94% útsvar 1.331
milljónum.
Minnihluti B- og G-lista
lagðist gegn hækkuninni og telur
hana verða þunga byrði fyrir
bæjarbúa og ekki síst fyrir
barnafjölskyldur. ■
BÆJARSKRIFSTOFUR
MOSFELLSBÆJAR
Í útreikningum kemur fram að 12,65% út-
svar myndi skila bæjarsjóði 1.304 milljón-
um króna á næsta ári, en 12,94% útsvar
1.331 milljónum.
Útsvarið hækkað í 12,94%
Skattar hækka
í Mosfellsbæ
Mosfellsbær:
Þróunarsjóð-
ur lagður af
BÆJARMÁL Meirihluti Sjálfstæðis-
manna í bæjarstjórn Mosfellsbæjar
hefur samþykkt að leggja niður At-
vinnuþróunarsjóð bæjarins og sam-
eina eignir hans og skuldir bæjar-
sjóði.
Fulltrúar B- og G-lista greiddu
atkvæði gegn tillögunni. Benti
minnihlutinn á að mörg frum-
kvöðlafyrirtæki hefðu notið stuðn-
ings sjóðsins þau ár sem hann hefði
starfað. Finnst þeim meirihlutinn
sýna atvinnumálum bæjarins lítinn
skilning nú tímum aukins atvinnu-
leysis. Fyrir skömmu ákvað meiri-
hlutinn að leggja starf atvinnu- og
ferðamálafulltrúa bæjarins niður. ■
NÝR VEGUR INN Í MOSFELLSBÆ
Baugshlíðin, sem tengir Vestur-
landsveginn við Hlíða-, Tanga- og
Höfðahverfið, var formlega opnuð
í gær. Opnun vegarins er mikil
vegasamgöngubót fyrir Mosfell-
inga og þá sem Mosfellsbæ sækja
heim.
GJAFMILDIR BRÆÐUR Fjórir
bræður, Leifur Jónsson og Jón,
Ríkharður og Ólafur Magnússyn-
ir, hafa gefið eina milljón og tvö
hundruð og fimmtán þúsund
krónur í söfnun Landhelgisgæsl-
unnar fyrir nætursjónaukum.
Gjöf þeirra bræðra er til minn-
ingar um móður þeirra Kristínu
Finnbogadóttur og látna bræður
þeirra, þá Finnboga og Pálma
Magnússyni. Bræðurnir eiga það
allir sameiginlegt að hafa ein-
hvern tímann verið skipstjórar.
ÓNOTAÐUR BÁTUR SELDUR Þor-
björn Fiskanes hf. hefur undirrit-
að sölusamning á m/b Ólafi GK
33 til Grænlands. Báturinn, sem
var smíðaður í Kína fyrir félagið,
hefur ekki verið í notkun frá því
að hann kom nýr til landsins um
mitt ár 2001. Sala þessi mun ekki
hafa áhrif á afkomu félagsins.
INNLENT