Fréttablaðið - 03.12.2002, Side 18
FUNDIR
08.00 Jafnréttisráð heldur morgunverð-
arfund í Dal á Grand Hótel
Reykjavík. Þorgerður Einarsdótt-
ir lektor kynnir meginniðurstöður
ESB-verkefnisins Towards a Clos-
ing of the Gender Pay Gap (Lok-
um launagjánni). Að loknum fyrir-
lestri gefst færi á fyrirspurnum en
fundi verður slitið kl.10. Morgun-
verðarhlaðborð er á 990 kr.
08.00 Morgunverðarfundur verður í
Sunnusal á Radisson SAS hótel
Sögu. Fjallað verður um nýja til-
lögu framkvæmdastjórnar Evrópu-
sambandsins um yfirtökutilboð
og væntanlega þróun. Dr. Jan
Schans Christensen flytur erindi
á ensku sem ber heitið „The New
Proposed Takeover Directive and
its way forward“ og að því loknu
gefst kostur á fyrirspurnum.
12.00 Dick Ringler, prófessor í enskum
miðaldabókmenntum og norræn-
um fræðum, heldur fyrirlestur í til-
efni af útkomu bókar sinnar um
ævi og störf Jónasar Hallgríms-
sonar. Fyrirlesturinn er í boði Há-
skóla Íslands og verður haldinn í
hátíðasal Háskólans í aðalbygg-
ingu. Allir eru velkomnir.
TÓNLEIKAR
20.00 Hljómsveitirnar Jörð bifast og
Call him Mr. Kid halda tónleika í
Iðnó. Jörð bifast er skipuð Agli Jó-
hannssyni gítarleikara og Sigurði
Hrelli hljóðsmið auk Steve
Hubback sem leikur á slag-
verksskúlptúr. Call him Mr. Kid er
hugarfóstur gítarleikarans Kristins
H. Árnasonar og hann mun flytja
lög af nýútkomnum geisladiski.
20.00 Blásarakvintett Reykjavíkur leik-
ur kvöldlokkur eftir Haydn og
Mozart auk tilbrigða við menúett
úr óperu Mozarts „Don Giovanni“
eftir óbóleikarann Joseph Trieben-
see. Tónleikarnir fara fram í
Landakotskirkju.
SÝNINGAR
Sýningin Heimkoman eða: heimurinn
samkvæmt ART stendur yfir í Listasafni
Reykjavíkur - Kjarvalsstöðum. Sýningin
samanstendur af málverkum og ljós-
myndum danska myndlistarmannsins
Martins Bigum frá árunum 1997-2002.
Aðalheiður S. Eysteinsdóttir sýnir smá-
myndir og skúlptúra sem unnin eru í
anda jólanna í Kompunni, Kaupvangs-
stræti 23, Listagili. Sýningin stendur til
23. desember og er opin alla daga frá
klukkan 14 til 18.
Í Hafnarborg stendur yfir sýningin
“Sambönd Íslands“, alþjóðleg sýning
með þátttöku erlendra listamanna sem
hafa heimsótt Ísland og íslenskra lista-
manna búsettra erlendis.
Sýning á jólamyndum teiknarans Brians
Pilkingtons stendur yfir í Kaffistofu
Hafnarborgar. Sýningin er opin alla
daga og lýkur 22. desember.
Samsýning Bryndísar Jónsdóttur, Ásu
Ólafsdóttur, Kristínar Geirsdóttur,
Magdalenu Margrétar Kjartansdóttur
og Þorgerðar Sigurðardóttur, Samspil,
stendur yfir í Hafnarborg. Sýningin er
opin alla daga nema þriðjudaga frá kl.
11 til 17 og henni lýkur 22. desember.
Sigrún Einarsdóttir og Sören Larsen í
Gleri í Bergvík sýna nýjar glæsilegar
gerðir af glösum af ýmsu tagi í Galleríi
Fold. Glösin nefnast ARTIKA og eru af
níu mismunandi gerðum. Gallerí Fold er
opið daglega frá 10 til 18, laugardaga frá
10 til 17 og sunnudaga frá 14 til 17.
Sýningunni lýkur 6. desember.
Skúlptúrsýning nemenda Fjölbrauta-
skólans í Breiðholti stendur yfir í
Gerðubergi dagana 28. nóvember til 8.
desember. Opið virka daga frá kl. 11 til
19 og um helgar frá kl. 13 til 17.
Lína Rut Wilberg sýnir olíumálverk á
Café Presto, Hlíðarsmára 15, Kópavogi.
Opið 10-23 virka daga og 12-18 um
helgar.
Frænkurnar Margrét Elíasdóttir og
Björg Fríður Elíasdóttir hafa opnað
myndlistarsýninguna Berskjöldun - ást-
arjátning til náttúrunnar í Ráðhúsi
Reykjavíkur. Margrét sýnir olíumálverk
og Björg Fríður sýnir þurrpastelmyndir
en verkin endurspegla á mjög ólíkan
hátt hvað heimatilbúið hugtak þeirra
„berskjöldun“ inniheldur. Sýningunni
lýkur 2. desember.
Hildur Margrétardóttir myndlistarkona
sýnir nokkur óhlutbundin málverk á
Mokka-kaffi. Sýningin stendur til 15.
janúar.
Sýning á nokkrum verkum Guðmundar
Hannessonar, ljósmyndara, stendur
yfir í Gallerí Fold. Sýningin nefnist
Reykjavíkurminningar en myndirnar
tók Guðmundur um miðja síðustu öld í
Reykjavík.
Inga Svala Þórsdóttir sýnir Borg í
Listasafni Reykjavíkur. Inga Svala fjall-
ar um og endurvekur draumsýnina um
hið fullkomna samfélag. Hún leggur
fram hugmynd að milljón manna borg-
arskipulagi í Borgarfirði og á norðan-
verðu Snæfellsnesi.
18 3. desember 2002 ÞRIÐJUDAGUR
ÞRIÐJUDAGUR
3. DESEMBER
hvað?
hvar?
hvenær?
Persónulegt og framandi
TÓNLIST Hljómsveitin Jörð bifast
heldur tónleika í Iðnó í kvöld
ásamt Call him Mr. Kid. Jörð
bifast er skipuð gítarleikaran-
um Agli Jóhannssyni og
hljóðsmiðnum Sigurði Hrelli
auk slagverksleikarans Steve
Hubback sem leikur á slag-
verksskúlptúr. Sveitin hefur
verið starfrækt í 2 ár en kemur
sjaldan saman þar sem meðlim-
irnir eru búsettir hver í sínu
landinu. „Við höfum gefið út
einn disk enn efnið sem við
flytjum á þessum tónleikum er
að mestu nýtt“ segir Sigurður
Hrellir. Tónlist sveitarinnar er
samsett úr umhverfishljóðum,
gítarleik og leik Steve
Hubbacks á slagverksskúlptúr
sem hann sjálfur smíðaði „Það
er erfitt að skilgreina tónlistina
en við skulum bara segja að hún
sé persónuleg og óhefðbundin,“
segir Sigurður. Jörð bifast kom
fram í sjónvarpsþættinum
Mósaík síðastliðið vor og hluti
af því efni sem á boðstólnum
verður í kvöld var fluttur þar.
Call him Mr. Kid er aftur á
móti hugarfóstur Kristins H.
Árnasonar og er hann að gefa út
diskinn „Bizarre Sofa People“
nú fyrir jólin undir þessu lista-
mannsnafni. Á tónleikunum í
kvöld mun Kristinn flytja lög af
diskinum með aðstoð valin-
kunnra tónlistamanna. Þar á
meðal eru þeir Jón Skuggi, Sig-
urður Hrellur og söngkonan
Jarþrúður Karlsdóttir. „Tónlist
Call him mr.Kid er eins konar
elektrónísk popptónlist með
framandlegum keim en engu að
síður mjög aðgengileg,“ segir
Sigurður Hrellir. Kristinn flutti
þessa tónlist á Airwaves-tónlist-
arhátíðinni í október síðastliðn-
um, og naut þá einnig fulltingis
ýmissa kunnra hljóðfæraleik-
ara. ■
JÖRÐ BIFAST
Leikur persónulega og óhefðbundna tón-
list þar sem fyrir koma ýmis umhverfis-
hljóð auk gítarleiks og slagverks
MYNDLIST Nemendur á 3. ári á
listasviði Fjölbrautaskólans í
Breiðholti opnuðu nú fyrir helgi
sýningu á skúlptúrverkum í
Gerðubergi. Verkin eru hluti af
lokaverkefni í skúlptúráfanga á
haustönn og vaknaði hugmyndin
að sýningunni á meðan á gerð
þeirra stóð. „Við vildum að fleiri
gætu fengið að njóta verkanna,“
segir Ólöf Rúnarsdóttir sem er
einn nemendanna. „Aðsóknin hef-
ur verið mjög góð og það er búið
að selja 2-3 verk. Skólinn keypti
eitt verk og svo var eitt keypt til
að hafa í sumarbústað. Það var
unnið úr efni tengdu íslensku
sauðkindinni, bæði líkamshlutum
og úrgangi.“ Verkin eru annars
flest gifsskúlptúrar því nemendur
fá gifsið án endurgjalds í skólan-
um. Annað efni þurfa þeir yfirleitt
að greiða úr eigin vasa. Þó eru
verkin af ýmsum stærðum og
gerðum og verk Ólafar sjálfrar er
til dæmis úr gúmmíi. Yfir 40 nem-
endur eiga verk á sýningunni en
að sögn Ólafar er rýmið helst til
lítið fyrir þennan mikla fjölda
skúlptúra. ■
SKÚLPTÚRAR
Nemendur í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti sýna þrívíð myndverk af ýmsu tagi í
Gerðubergi.
&+!&,#$
-!&#%
!"#
$!%&!&
'()#"*&
&'
$!
!"
?00
12
@ A
B
C
2>
A
A
0 B
12
2A
07
>
A
A
2A
@ 0D
E
C
+&
*&
<
;
F&
Nemendaverk sýnd
almenningi
Blóm og
gjafavara
aðventukransar
og skreytingar.
Öðruvísi blómabúð
Dalvegi 32, s. 564 2480, www.birkihlid.is
Vandaðar heimilis- & gjafavörur
Kringlan 4-12 • s. 533 1322
Froðuþeytari
fyrir cappuccino
verð kr. 1.990,-