Fréttablaðið - 03.12.2002, Page 19
ÞRIÐJUDAGUR 3. desember 2002 19
Sýningin Milli goðsagnar og veruleika
er í Listasafni Reykjavíkur. Sýningin
kemur frá Ríkislistasafni Jórdaníu í
Amman og er ætlað að varpa ljósi á
heim araba.
Hrafnhildur Arnardóttir sýnir „Shrine
of my Vanity“ sem útleggst á íslensku
„Helgidómur hégóma míns“ í Gallerí
Hlemmi. Leiðarstef sýningarinnar er hið
svokallaða IVD (intensive vanity dis-
order) eða hégómaröskun en það heil-
kenni verður æ algengara meðal þeirra
sem temja sér lífsstíl Vesturlandabúa.
Myndlistamaðurinn Hildur Ásgeirs-
dóttir Jónsson sýnir í Galleríi Sævars
Karls.
Kyrr birta - heilög birta er heitið á sýn-
ingu sem stendur yfir í Listasafni Kópa-
vogs. Sýningarstjóri er Guðbergur
Bergsson.
Stærsta sýning á íslenskri samtíma-
list stendur yfir í Listasafni Íslands.
Sýnd eru verk eftir um 50 listamenn
sem fæddir eru eftir 1950 og spannar
sýningin árin 1980-2000.
Sýningin Hraun - ís - skógur er í Lista-
safni Akureyrar. Sýningin er opin alla
daga milli 12 og 17. Henni lýkur 15.
desember.
Veiðimenn í útnorðri er yfirskrift á sýn-
ingu sem Edward Fuglö heldur í Nor-
ræna húsinu.
Jóhanna Ólafsdóttir og Spiros
Misokilis sýna ljósmyndir sínar á Kaffi
Mokka. Sýningin heitir „Orbital Reflect-
ions“. Allir eru velkomnir.
Flökt - Ambulatory - Wandelgang er
samsýning Magnúsar Pálssonar, Erics
Andersens og Wolfgangs Müllers í
Nýlistasafninu.
Sýningin Þetta vilja börnin sjá er hald-
in í Menningarmiðstöðinni Gerðu-
bergi. Sýndar verða myndskreytingar úr
nýútkomnum barnabókum. Sýningunni
lýkur 6. janúar 2003.
Ágústa Oddsdóttir sýnir í gluggum
Vatnsstígs 10.
Sýningin Handritin stendur yfir í Þjóð-
menningarhúsinu. Sýningin er á veg-
um Stofnunar Árna Magnússonar. Opið
er frá klukkan 11 til 17.
TÓNLIST Kvöldlokkur nefnast tón-
leikar sem Blásarakvintett
Reykjavíkur heldur í Landakots-
kirkju klukkan 20 í kvöld.
„Þetta er Blásarakvintettinn og
félagar eins og við köllum okkur.
Við erum alltaf fleiri en fimm á
þessum tónleikum og við erum
níu núna. Þetta er léttklassísk og
mjög aðgengileg tónlist sem við
spilum eftir Mozart, Haydn og
Triebensee, sem var samtíma-
maður Mozarts,“ segir Hafsteinn
Guðmundsson, fagottleikari og
meðlimur í Blásarakvintettinum.
Aðspurður um nafnið Kvöld-
lokkur segir Hafsteinn að það sé
stytting á orðinu Serinada sem
þýðir kvöldsöngur. „Þetta orð kom
í tónlistarorðabók eftir Hallgrím
Helgason fyrir mörgum árum og
við tókum þetta upp þegar við fór-
um að halda þessa tónleika. Þetta
hefur semsagt ekkert með hár að
gera, heldur er þetta eitthvað til
að lokka fólk að kvöldi til.“
Þetta er í 22. sinn sem Blásara-
kvintettinn heldur Kvöldlokks-
tónleika. Hafa þeir verið haldnir í
ýmsum kirkjum, oftast í Landa-
koti.
Hafsteinn segir að tónleikarn-
ir séu ávallt mjög vel sóttir.
„Þetta eru okkar best sóttu tón-
leikar. Fjöldi fólk er farinn að
kannast við tónleikana og tengir
þá jólunum þó að tónlistin sé ekki
beint jólaleg. Þetta er bara mjög
hátíðleg, falleg og þægileg tón-
list.“ ■
Kvöldlokkur Blásarakvintetts Reykjavíkur
í Landakotskirkju:
Hátíðleg og
falleg tónlist
LANDAKOT
Tónleikarnir í kvöld standa yfir í um það
bil klukkustund án hlés.