Fréttablaðið - 03.12.2002, Blaðsíða 24
3. desember 2002 ÞRIÐJUDAGUR
BÆKUR „Þetta er búið að vera sjö
ára verkefni,“ segir Halldóra um
nýútkomna bók sína, Leiðin að
bættu lífi. „Ég veiktist af vefja-
gigt þegar ég var þrítug og byrj-
aði fljótlega að punkta hjá mér
ýmislegt varðandi það hvernig
ég gæti hjálpað mér sjálf. Ég
ætlaði aldrei að nota þessa
punkta nema fyrir mig, en þegar
heilsan kom aftur varð ég svo
glöð og þakklát lífinu að ég
ákvað að mér bæri að borga til
baka og hjálpa öðrum. Það voru
líka hæg heimatökin hjá mér þar
sem ég rek upplýsingatæknifyr-
irtæki og er vön útgáfustarf-
semi. Ég ákvað því að gefa þetta
út og leitaði aldrei til eins né
neins með útgáfuna.“
Halldóra hefur sjálf reynt
þær aðferðir sem hún greinir
frá í bókinni, allt nema hómópa-
tíuna. „Það er að segja, ég hef
ekki farið í eiginlega meðferð
hjá hómópata, en hef á stundum
tekið inn hómópatalyf. Ég vil
samt taka skýrt fram að bókin
er aðeins hugsuð sem hjálpleg
leið að betra lífi fyrir alla, hvort
sem þeir eru heilbrigðir eða
veikir. En það þýðir ekki að fólk
eigi ekki að leita lækna. Það
geri ég alltaf sjálf ef eitthvað
bjátar á.“
Þegar Halldóra var greind
með vefjagigt fékk hún lyf sem
hentuðu henni engan veginn. „Ég
fékk alls konar aukaverkanir og
stóð frammi fyrir því að annað
hvort yrði ég að hjálpa mér sjálf
eða gefast upp.“
Hún segir vefjagigtina lýsa
sér þannig að fólk sé alsett
verkjum í vöðvum og liðum. „Ég
var mjög slæm og í mínu tilfelli
gerðist það líka að ég missti
talið, eða hæfileikann til að halda
uppi samræðum. Það blokkerast
stöðvar í heilanum og ég segi
orðin vitlaust eða orðin koma
einfaldlega ekki. Ég segi kannski
rauður þegar ég ætla að segja
gulur,“ segir Halldóra.
Hún fær enn köst og segir
fyrstu einkennin að talið hverfi.
„En þá veit ég líka að ég þarf að
gíra mig niður. Bókin er hugsuð
þannig að ef fólk er til dæmis
þreytt og svefnlaust getur það
flett upp í bókinni og fengið skyn-
samleg og heilbrigð ráð. Það geta
allir verið sammála um að hollt sé
að staldra við af og til og huga að
því hvað hægt sé að gera til að
bæta eigin heilsu og líðan.“ ■
Rauður í staðinn
fyrir gulur
Út er komin bókin Leiðin að bættu lífi eftir Halldóru Sigurdórsdótt-
ur blaðamann. Bókin er ætluð öllum þeim sem vilja staldra við og
huga að eigin heilsu og líðan.
HALLDÓRA SIGURDÓRSDÓTTIR
Var að gefa út bók um sem hjálpar þeim sem vilja vinna markvisst og meðvitað að bættri líðan.
Tilboðsverð
án vsk. 2992.-
m.vsk. 3.725.-
Sölumenn okkar eru við símann frá kl. 8:00 – 17:00.
Hringdu í síma 520 6666 eða líttu á úrvalið í stórverslun
okkar að Réttarhálsi 2. Opið mán. – fös. 8:00 – 18:00.
• Þvottavatn í einu hólfi
• Skolvatnið i öðru hólfi
• Fótstigin rúllupressa
Tvær í einni
Tveggja hólfa Rocket-ræstifatan (15 l)
hefur fótstigna rúllupressu sem kemur
í veg fyrir hokur við þrifin. Einföld og
þægileg lausn fyrir heimilið og minni
svæði hjá stofnunum og fyrirtækjum.
Hreinna gólf og beinna bak
RÆSTIFATA
TÓNLIST Krakkasveitin Kiðlingarnir
hefur ekki setið auðum höndum.
Síðastliðið vor fór sveitin til Skand-
inavíu í tónleikaferð og var ævin-
týrið fest á filmu. Þessi ferðasaga
ásamt öllum myndböndum sveitar-
innar kom út í dag á myndbandi og
ber heitið „Kiðlingarnir í víking“.
Ómar Óskarsson, lagahöfundur og
gítarleikari Kiðlinganna, hafði yfir-
umsjón með gerð myndarinnar.
„Þetta var átta daga ferð um
Norðurlöndin og komu krakkarnir
meðal annars fram í TV2 í Dan-
mörku og norska ríkissjónvarp-
inu,“ segir Ómar. Myndbandið
geymir öll myndbönd sem Kiðling-
arnir hafa gert, útkomin og óút-
komin, og inniheldur heilar tvær
klukkustundir af efni um krakka
fyrir krakka. Kiðlingarnir vinna nú
að gerð DVD-disks sem kemur út
snemma á næsta ári. Kiðlingarnir
segjast ekki háðir neinum jóla-
markaði.
Kiðlingarnir eru Ómar Örn
Ómarsson, Óskar Steinn Ómarsson,
Þóranna Þórarinsdóttir og Hrefna
Þórarinsdóttir. ■
Kiðlingarnir gefa
út nýtt myndband:
Krakkar
í víking
KIÐLINGARNIR
Hér sjást bræðurnir Ómar Örn og Óskar Steinn ásamt Wyatt Erp sem þeir hittu
í sumarleyfi sínu í Bandaríkjunum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI
Sigurstjarnan, Bláu húsin Fákafeni, s. 588-4545
Einnig opið um helgar. Verið velkomin.
100% mesta
vöruúrval á
fermetra, allt frá
magadans-
búningum
til ekta pelsa.
Hátíðarföt,
perlutoppar,
og brjóstahöld,
perlujakkar
stuttir og síðir.
Jólagjöfin í ár.
Heitasta búðin í bænum