Fréttablaðið - 03.12.2002, Blaðsíða 29
ÞRIÐJUDAGUR 3. desember 2002
flugfelag.is
Tryggðu þér sæti - bókaðu strax á
VOPNAFJARÐAR
4.500kr.
Flug, aðra leiðina.
Bara á www.flugfelag.is
Takmarkað sætaframboð!
Milli Akureyrar og
EGILSSTAÐA
4.900kr.
Flug, aðra leiðina.
Bara á www.flugfelag.is
Takmarkað sætaframboð!
Milli Reykjavíkur og
ÍSAFJARÐAR
4.700kr.
Flug, aðra leiðina.
Bara á www.flugfelag.is
Takmarkað sætaframboð!
Milli Reykjavíkur og
6.900kr.
Flug, aðra leiðina.
Bara á www.flugfelag.is
Takmarkað sætaframboð!
Vopnafjarðar
Milli Reykjavíkur og
AKUREYRAR
4.700kr.
Flug, aðra leiðina.
Bara á www.flugfelag.is
Takmarkað sætaframboð!
Milli Reykjavíkur og
flugfelag.is
4. - 10. des 2002
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
E
H
F.
/S
IA
.I
S
-
FL
U
1
94
13
11
/2
00
2
JÓL „Það sem er mér efst í minni
eru skíði sem ég fékk í jólagjöf
frá mömmu og pabba þegar ég
var líklega 12 ára“ segir Þórey
Edda Elísdóttir athafnakona. „Þau
voru glæný og rosaflott og ég fór
auðvitað beint upp á hól í garðin-
um og renndi mér þar öll jólin.
Annars man ég mest eftir jólun-
um fyrir þremur árum því þau
voru haldin í pappakössum. Við
höfðum flutt inn í nýtt húsnæði á
Þorláksmessu og vorum því varla
byrjuð að koma okkur fyrir.“ ■
ÞÓREY EDDA ELÍSDÓTTIR
Jólin fyrir þremur árum voru haldin í pappa-
kössum og eru eftirminnileg fyrir vikið.
Eftirminnilegasta jólagjöfin:
Skíði frá pabba og mömmu
JÓLAMARKAÐUR Í STRASBOURG
Þessi 432 ára gamli markaður er mjög vinsæll. Hann stendur yfir í fjórar vikur fyrir jól og er margs konar jólaglys
og góðgæti á boðstólum.
M
YN
D
/AP
Bandarísk áhrif ríkj-
andi í skreytingum
Landsmenn keppast nú við að hengja upp jólaskraut. Verslunarmenn
segja Íslendinga íhaldssama þegar að jólunum kemur. Bandarískra
áhrifa gætir í æ ríkari mæli hér á landi.
JÓL Nú er aðventan gengin í garð og
landsmenn því margir farnir að
prýða híbýli sín með jólaskrauti.
Ljósaskreytingar sjást nú þegar í
görðum og gluggum og einnig virð-
ist sem almenningur sé byrjaður af
krafti að huga að skreytingum inn-
anhúss. Óhætt er að segja að aldrei
hafi úrvalið verið meira í verslun-
um landsins af alls kyns jólaskrauti
og ættu því allir að geta fundið eitt-
hvað við sitt hæfi. Á höfuðborgar-
svæðinu eru þó nokkrar verslanir
sem sérhæfa sig í jólavörum og aðr-
ar verslanir taka inn jólavörur sér-
staklega á þessum árstíma.
Þó að verslunarmenn viðurkenni
að Íslendingar séu helst til
íhaldssamir þegar kemur að jólun-
um eru engu að síður tískusveiflur í
jólaskreytingum sem öðru. Á síð-
ustu árum hefur þróunin orðið sú að
stór hluti þess jólaskrauts sem selt
er hér á landi kemur frá Bandaríkj-
unum og bera munirnir þess greini-
leg merki. Gerviblóm og greni virð-
ast til dæmis vera að sækja í sig
veðrið. „Jólastjörnur úr plasti og
silki eru orðnar mjög vinsælar, sér-
staklega hjá fyrirtækjum. Margir
eru með ofnæmi fyrir lifandi jóla-
stjörnum og þessar eru nánast al-
veg eins og ekta blóm,“ segir Sóley
Jóhannsdóttir hjá versluninni Sold-
is. „Einnig er mikið um að fólk kjósi
heldur aðventukransa og kransa á
útihurðir úr gervigreni og taui því
þá má nota ár eftir ár. Við útbúum
okkar eigin kransa en í ár eru
bandarískir kransar skreyttir með
rauðum berjum afar vinsælir.“ Að
sögn Sóleyjar er íburðarmikið
skraut mjög vinsælt en þó er meira
um að yngra fólk velji einfaldara og
látlausara skraut. „Unga fólkið vill
gjarnan jólaskraut sem börnin hafa
gaman af en margar konur hrífast
meira af glysmeira skrauti.“ Þó
karlmenn virðist taka lítinn þátt í
því að velja jólaskraut eru þeir oft
dregnir með í verslanir. „Við erum
með stóran leðursófa sem mennirn-
ir geta setið í og virt fyrir sér þenn-
an heillandi heim. Þeir verða oft
mjög hrifnir og hafa síst minni
áhuga en konurnar,“ segir Sóley.
Til marks um amerísk áhrif má
einnig benda á að hreindýra og
englaskraut er orðið mjög vinsælt.
Á mörgum heimilum hafa slíkir
munir tekið við af hefðbundnum
glerkúlum sem skraut á jólatré. Í
Jólavöruversluninni Hlíðarsmára
má fá jólatréstoppa með heilögum
Nikulási. Í stað gamla jólalöbersins
eru komnar „skrautlengjur“ með
plastgreinum og silkiblómum til að
lífga upp á jólaborðið. Þessar grein-
ar má setja víða og ættu þær að fara
vel á íslenskum heimilum þar sem
þær eru í hinum dæmigerðu ís-
lenski jólalitum, grænu, rauðu og
gylltu. ■
ÁHRIF FRÁ AMERÍKU
Bandarískra áhrifa er farið að gæta hér á
landi á jólum. Þessi karl heitir Sankti
Nikulás og er ekki íslenskur.
ENGLAR Á AÐVENTUNNI
Gullnir englar njóta æ meiri vinsælda
fyrir jól.