Fréttablaðið - 03.12.2002, Qupperneq 30
30 3. desember 2002 ÞRIÐJUDAGUR
HRÓSIÐ
... fær Jón Baldvin Hannibalsson
fyrir skelegga endurkomu í ís-
lenska stjórnmálaumræðu. Fersk
sýn á stjórnmálin, sögu og sam-
tíma fylgir alltaf Jóni Baldvini
þegar hann tekur sig til.
FORMAÐUR Það sem ber hæst í
mínu lífi fyrir utan vinnuna eru
barnabörnin,“ segir Arnór Péturs-
son, formaður Sjálfsbjargar. „Ég á
fjögur barnabörn á aldrinum 8-17
ára. Það er mikill auður og ekkert
sem jafnast á við það.“ Arnór seg-
ist helst vilja vera samvistum við
þau allar helgar. „Þá hjálpa ég
þeim að læra og við spjöllum um
heima og geima.“
Hann segir mikinn mun á því
hvernig hann umgengst barna-
börnin sín eða dóttur sína meðan
hún var barn. „Ég er að vinna upp
það sem ég tapaði. Ég á þessa einu
dóttur, en þegar hún var lítil var ég
alltaf á kafi í vinnu og félagsmál-
um.“
Aðaláhugamál Arnórs eru
íþróttir en hann var liðtækur í
boltanum áður en hann lenti í bíl-
slysi 24 ára gamall og lamaðist
fyrir neðan mitti. „Ég er auðvitað
Skagamaður og stend með mínum
mönnum í blíðu og stríðu. Annars
er ég alæta á íþróttir og það er til
dæmis það eina sem fangar mig í
sjónvarpi.“
Arnór segir það lyginni líkast
hvernig honum tókst að takast á
við afleiðingar slyssins og þakkar
það fyrst og fremst foreldrum sín-
um. „Það er bakgrunnurinn sem
skiptir máli, ég var alinn upp við
lestur góðra bóka og fékk ómæld-
an stuðning frá mínu fólki.“ Hann
segist vissulega hafa farið í gegn-
um tímabil sjálfsvorkunnar, en
alla tíð haft mikið að gera. „Ég var
í góðri vinnu, var að stofna heimili
og á fullu að byggja upp íþrótta-
starf fatlaðra. Ég vann með geysi-
lega skemmtilegu og duglegu fólki
og þetta skiptir allt máli. Á sama
tíma byrjaði ég í Kiwanishreyfing-
unni og var alls staðar tekið á jafn-
réttisgrundvelli.“
Arnór var sjálfur undir stýri
þegar slysið varð. „Vinur minn var
með mér í bílnum, en hann slapp
með skrámur. En ég hef lært að
lifa með minni fötlun, ég geri svo
sem allt sem mig langar til nema
auðvitað að standa upp úr stólnum.
Ef mér hefði hins vegar verið sagt
þremur dögum fyrir slysið að
þetta ætti eftir að verða mitt hlut-
skipti hefði ég trúlega skotið mig í
hausinn,“ segir Arnór hlæjandi að
lokum. ■
FÓLK Í FRÉTTUM
PERSÓNAN
54 ÁRA „Þessi dagur verður eins og
allir aðrir dagar. Ég held ekki upp
á afmælið á neinn máta nema að
borða góðan mat með fjölskyld-
unni,“ segir Ari Trausti Guð-
mundsson jarðeðlisfræðingur, sem
á afmæli í dag. „Ég er ekki stór-
veislumaður á afmælum og hef
aldrei verið. En ég hef mikið að
gera í augnablikinu, er til dæmis
núna staddur á Leirubakka í Land-
sveit þar sem verið er að setja upp
Heklumiðstöð og Heklusafn.“
Ari Trausti er líka nýkominn
austan af landi þar sem hann var
að lesa upp úr verðlaunabók sinni,
smásagnasafninu Vegalínum. „Við
vorum á Héraði, Eskifirði og Seyð-
isfirði og fengum býsna góða mæt-
ingu þótt það sé auðvitað örlítið
misjafnt eftir byggðarlögum. Það
þarf náttúrulega að vera fjöl-
breytni í þessu. Núna vorum við
með tónlist því Einar Kára og KK
voru með okkur.
Ari Trausti segir ekkert eitt af-
mæli minnisstæðara en önnur.
„Auðvitað fannst manni afmæli
miklu merkilegri og skemmtilegri
þegar maður var barn, svo fölnar
þetta þegar maður eldist. Að vísu
var það þannig heima að jólastúss-
ið byrjaði alltaf með afmælinu
mínu.“ Hann heldur þó ekki í þann
sið sjálfur. „Ég er frekar á móti því
að byrja þetta allt of snemma, ég
er einn af þessum íhaldssömu, vil
að hátíðin sé mikil og skemmtileg
en standi ekki of lengi.“
Aðspurður hvort vænta megi
goss í Kötlu kveður hann afdrátt-
arlaust já við því. „Það treystir sér
náttúrlega enginn til að setja tíma-
miða á þetta, en innan skamms
þýðir fyrir mér nokkrar vikur,
mánuðir eða fáein ár.“ Hann viður-
kennir að jarðeðlisfræðingar séu
afar spenntir við tilhugsunina um
svona gos og svo mikið er víst að ef
Katla færi að gjósa yrði það Ara
Trausta kærkomin afmælisgjöf. ■
Ari Trausti Guðmundsson, jarðeðlis-
fræðingur og rithöfundur er 54 ára í dag.
Afmæli
Jólastússið hófst á afmælisdaginn
TÍMAMÓT
ARNÓR PÉTURSSON
Er í fullu starfi hjá Tryggingastofnun, for-
maður Sjálfbjargar, íþróttafrík og afi fjög-
urra barna.
MEÐ SÚRMJÓLKINNI
Að gefnu tilefni skal tekið fram að Davíð
Oddsson þiggur ekki húsaleigustyrk þótt
hann bjóði sig fram í Norðurkjördæmi en
búi í Suðurkjördæmi.
Leiðrétting
Gunna: „Ég skil ekki að alltsem ég segi honum Gumma
mínum fer inn um annað eyrað
og svo rakleiðis út um hitt.“
Vinkona hennar Gunnu: „Mér
finnst það ekkert skrýtið. Á
hverju ætti það að stoppa?“
ARI TRAUSTI GUÐMUNDSSON
Hefur í nógu að snúast og gerir lítið úr af-
mælisdeginum. Ætlar samt að borða góð-
an mat með fjölskyldunni.
Stórútsala
Fatamarkaður
Barnaföt - dömuföt - herraföt
Skeifunni 8
Vinstri grænir fengu væna of-anígjöf frá Halldóri Björns-
syni, varaforseta ASÍ, fyrir að
greiða leið áfengis- og tóbaks-
hækkunar stjórn-
valda í gegnum
þingsal. Halldór
sagði í fjölmiðl-
um fyrir helgi að
hann hefði haldið
að vinstri grænir
hefðu sitthvað
betra við tíma
sinn að gera en að taka þátt í
samþykkt gjaldahækkana sem
hækka skuldir landsmanna um
tvo milljarða króna. Um helgina
var svo birtur listi Samfylkingar-
innar í Suðvesturkjördæmi.
Væntanlega hefur ýmsum vinstri
grænum þótt við hæfi að sjá nafn
Halldórs þar í 19. sæti og setja
væntanlega einhver samasem-
merki milli þess og skammanna í
þeirra garð.
Gerir allt nema standa
upp úr stólnum
Alþjóðadagur fatlaðra er í dag. Arnór Pétursson, formaður
Sjálfsbjargar, lamaðist fyrir neðan mitti í bílslysi árið 1974.
JARÐARFARIR
13.30 Helga Þórarinsdóttir, Hringbraut
69, Hafnarfirði, verður jarðsungin
frá Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði.
13.30 Jóhanna Erasmusdóttir frá Háu-
Kotey í Meðallandi verður jarð-
sungin frá Fossvogskirkju.
13.30 Sigríður Erla Sigurbjörnsdóttir
verður jarðsungin frá Hallgríms-
kirkju.
15.00 Kári Þórður Kárason, múrari,
verður jarðsunginn frá Garða-
kirkju, Garðaholti.
AFMÆLI
Ari Trausti Guðmundsson, jarðeðlis-
fræðingur og rithöfundur, er 54 ára.
Reykjavík suður.
Kristján Pálsson
Nafnlausir vegir.
1.
2.
3.
Veistu svarið?
Svör við spurningum á bls. 6
Heimsendingar og sótt!
A f g r e i ð s l u t í m i : 1 1 - 0 1 v i r k a d a g a o g 1 1 - 0 6 u m h e l g a r
Grensásvegur 12
533 2200
SPRENGITILBOÐ!
12“ pizza
m/3 áleggstegundum
690 kr.
16“ pizza
m/3 áleggstegundum
990 kr.
18“ pizza
m/3 áleggstegundum
1.190 kr.
EF SÓTT
EF SÓTT
EF SÓTT
KROSSGÁTA
LÓÐRÉTT: 1 hróp, 2 hreyfing, 3 nýt, 4 planta, 5 smáfiskur, 6 mundar, 7 mýkist,
8 líflát, 11 hólmann, 14 lengdarmál, 16 ferðina, 18 heimskingi, 20 málhelti, 21
glaðast, 23 bakkanum, 26 grunaði, 28 bjálfa, 30 svalgurinn, 31 þurftu, 33 ágæt.
LÁRÉTT:
1 gerningar,
4 ref,
9 framkomu,
10 vegur,
12 nýlega,
13 endar,
15 skora,
17 gubbar,
19 sekt,
20 svalli,
22 hindra,
24 rösk,
25 athugasemd,
27 kjána,
29 bókinni,
32 gat,
34 flöktir,
35 ferilinn,
36 málaði,
37 störfuðu.
Lausn á síðustu krossgátu: Lárétt: 1 fikt, 4 kökkur, 9 víðerni, 10 stök, 12 skák,
13 síðast, 15 anda, 17 leik, 19 auð, 20 stóls, 22 varni, 24 eir, 25 slig, 27 kröm,
29 ákafur, 32 geig, 34 næri, 35 urðaður, 36 aumkar, 37 miða. Lóðrétt: 1 fuss,
2 kvöð, 3 tíkall, 4 kesti, 5 örk, 6 knáa, 7 kiknar, 8 ritaði, 11 tístir, 14 sess, 16
dunkur, 18 kvik, 20 sekkja, 21 órögum, 23 aganum, 26 lágar, 28 merk, 30 færi,
31 rifa, 33 iða.