Fréttablaðið - 02.03.2020, Síða 11

Fréttablaðið - 02.03.2020, Síða 11
Guðmundur Steingrímsson Í DAG LG DAGAR SíÐumúla 2-4 | 520 7900 | rafland.is BETRA BORGAR SIG Opið virka daga 10 – 18 | Laugardaga 11 – 16 TVÖFALDIR KÆLISKÁPAR · KÆLISKÁPAR · KÆLISKÁPAR MEÐ FRYSTI · ÞVOTTAVÉLAR OLED SJÓNVÖRP · NANOCELL SJÓNVÖRP · LED SJÓNVÖRP · BLU-RAY SPILARAR · HEIMABÍÓ ALLAR LG VÖRUR Á 20-40% AFSLÆTTI GILDIR 29. FEBRÚAR - 14. MARS LG Á HEIMA Í RAFLANDI Fyrst vil ég segja þetta: Nú hef ég verið dyggur áhorf-andi bandarísku sjón-varpsþáttaraðarinnar The Walking Dead um tíu ára skeið. Sú þáttaröð snýst um það að dularfull veira skýtur upp kollinum og breiðist út á meðal fólks á leiftur- hraða. Veiran virkar þannig að nokkrum dögum eftir að fólk gefur upp öndina, af alls konar tilfallandi ástæðum, vaknar það aftur sem uppvakningar. Uppvakningarnir ganga síðan um stirðbusalegir, tómir til augnanna, en einarðir í hjörðum með urrandi soghljóðum og reyna að éta þá sem eftir lifa. Við það að breytast í uppvakninga rotnar húð fólks, hár losnar, það grennist mjög og verður almennt mjög skeytingarlaust um hreinlæti. Eina leið þeirra sem eftir lifa til að losna úr klóm tryllts og dýrslegs uppvaknings, sem gæti þess vegna verið aldraður afi manns, er að stinga hann fumlaust með snöggri hreyfingu í hausinn með hníf eða öðru oddhvössu vopni, eða skjóta í höfuðið. Aðfararnir geta orðið æði blóðugar. Svona lagað getur vitaskuld haft veruleg áhrif á daglegt líf. Efna- hagslíf og siðmenning getur beðið hnekki, eins og raunin verður jú í þáttunum. Ekkert bóluefni er til. Handþvottur hefur enga þýðingu. Siðmenning hrynur á heimsvísu. Mannkyn fer aftur á hirðingjatíma- bilið og eftirlifendur laumast um í mishættulegum ribbaldaflokkum. Á þessari stundu finnst mér mikilvægt að vera smá þakklátur fyrir það að Covid-19 veiran er ekki svona veira. Hún er, í eðli sínu, inflúensuveira. Það er mikilvægt að minna sig á það, að enn hafa ekki verið gerðar neinar spennandi eða mjög hrollvekjandi sjónvarps- þáttaraðir um þær. Að glíma við böl Ég segi eins og kynnarnir í Söngva- keppninni. Auðvitað má ekki gera grín að þessu. Þetta er alvarlegt mál. En svo gerðu þeir auðvitað grín að þessu. Við þá þversagnar- kenndu, en skiljanlegu, nálgun kviknuðu vissar hugleiðingar í mínu viðkvæma sálartetri. Í skugga veirunnar og í því yfirþyrmandi böli miðju sem í því felst að endur- hlaða fréttasíður í sífellu til að skoða nýjustu tölur um sýkingar og dauðsföll, þá finn ég mjög sterkt að vissar sammannlegar aðferðir til þess að glíma við böl eru um þessar mundir að koma mjög sterkar inn, blessunarlega. Því ber að fagna. Hér hef ég tæpt á tveimur: 1) Að hugga sig við það að málin gætu verið verri. Þetta er sem sagt ekki upp- vakningahryllingur. 2) Að reyna að hlæja að þessu. Mér finnst ég hins vegar skynja í óvissuástandinu sem þessi óværa hefur skapað, að það virðist ríkja óvissa um það hvernig viðeigandi er að fjalla um þessa vá. Jú, mikil- vægt er að fólk haldi ró sinni. Mikil- vægt að fara að öllum tilmælum. Fylgjast vel með. Þvo sér um hendurnar. Ég held að mjög margir séu með þetta nokkurn veginn á hreinu. Líklega er þetta gúgglaðasta veira mannkynssögunnar. Leit er að þeirri manneskju sem ekki er sérfræðingur í pestum um þessar mundir. Almennar dánartölur árstíðarbundinnar flensu á heims- vísu eru skyndilega á allra vitorði og þær bornar saman við dánar- hlutfall hinnar nýju pestar. En Varðandi Covid svo vakna spurningarnar, og þessi finnst mér einna áhugaverðust: Má gera grín? Áhyggjur af áhyggjuleysi Þegar slokknar á framheila manns í svefndoðanum fara áhyggjurnar á stjá. Um miðja síðustu viku lá ég andvaka — smá slappur út af venju- legri og ómerkilegri kvefdruslu — og var pottþétt kominn með kórónaveiruna. Þegar framheilinn vaknaði aftur í dögun varð skyn- semin ruglinu yfirsterkari og ég gat ályktað, vansvefta en með fyrsta kaffibollann í hönd, að heimur væri ekki endilega á heljarþröm og að sjálfur væri ég bara með hefð- bundið nefrennsli. Punkturinn er þessi: Ég held að það þurfi ekki að hafa áhyggjur af því að fólk hafi ekki nægilega miklar áhyggjur. Ég held að í áhyggjuástandi sé einmitt mikilvægt að vera þakk- látur fyrir það hvað manneskjan sem hugsandi vitsmunavera á sér margar aðferðir til að þrauka böl. Ein slík er húmor. Þessi þjóð er hreint prýðileg í svörtum húmor. Nú þegar kóróna- veiran er komin til landsins finnst mér engin ástæða til annars en að styðjast við þann hæfileika til þess að auka fólki almennt nauðsynlegt æðruleysi og minnka panik, sem er forgangsmál eins og staðan er. Mér fannst þess vegna allt í lagi að finnast það smá fyndið hvað blaðamannafundurinn um það að einstaklingur hefði greinst með veiruna var skammt frá því að þróast í hinn sívinsæla skemmti- leik „Hver er maðurinn?“. Er maðurinn Reykvíkingur? Já. Er hann á vinnumarkaði? Já. Ég sé fyrir mér skaupið. Þetta finnst mér líka smá fyndið: Ég held að mjög margir séu að spá í það hvað fólk í sóttkví er að horfa á. Allir eru alltaf að leita sér að nýjum þáttum. Ég mæli með The Walking Dead. S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 9M Á N U D A G U R 2 . M A R S 2 0 2 0

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.