Fréttablaðið


Fréttablaðið - 02.03.2020, Qupperneq 12

Fréttablaðið - 02.03.2020, Qupperneq 12
匀欀漀爀爀椀 攀栀昀 ∠ 䈀氀搀猀栀昀椀 ㄀㈀ ∠ ㄀㄀  刀瘀欀 ∠ 㔀㜀㜀ⴀ㄀㔀㄀㔀 ∠ 眀眀眀⸀猀欀漀爀爀椀⸀椀猀 2 . M A R S 2 0 2 0 M Á N U D A G U R10 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SPORT HETJA HELGARINNAR Ismaïla Sarr Sóknartengiliðurinn kemur frá Saint Louis í Senegal og er einn fimm systkina. Hann á ekki langt að sækja knattspyrnuhæfi- leikana þar sem faðir hans lék á sínum tíma með landsliði Senegal áður en hann gerðist bóndi. Þrátt fyrir ungan aldur er Sarr, sem varð 22 ára á dögunum, búinn að leika 26 leiki fyrir landslið Senegal. Senegalinn er dýrasti leikmaðurinn í sögu Watford en hann kostaði félagið þrjátíu milljónir punda síðasta sumar. Sadio er í reglu- legum sam- skiptum við mig. Hann gefur mér góð ráð og er mér sem bróðir. Ismaïla Sarr um samband sitt og Sadio Mane fyrr í vetur Ég sagði við Andy Robertson að Watford væri að fá virkilega góðan leikmann. Ég þyrfti að hjálpa honum því annars myndi Ismaili ganga frá honum með hraða sínum og tækni. Sadio Mane í samtali við The Athle- tic eftir að Sarr samdi við Watford FÓTBOLTI Það áttu fæstir von á því að Ismaïla Sarr og félagar næðu að stríða hinu ógnarsterka liði Liver- pool en Liverpool var yfirspilað á allan máta í verðskulduðum sigri Watford um helgina. Senegalinn reyndist meistaraefnunum í Liver- pool erfiður og skoraði tvö mörk ásamt því að leggja upp þriðja mark Watford skömmu fyrir leikslok í 3-0 sigri heimamanna. Fram að því hafði Watford tapað fimm leikjum í röð í ensku úrvalsdeildinni en með sigrinum nær liðið að skjótast upp úr fallsæti í bili. Á sama tíma reyndi Liverpool að ná 37. sigrinum í síð- ustu 38 leikjum. Sarr braut ísinn eftir gott fast leikatriði í upphafi seinni hálfleiks og var vakandi fyrir mistökum hjá varnarlínu Liverpool stuttu síðar þegar hann kom Watford 2-0 yfir. Sarr átti svo stóran þátt í þriðja marki Watford þegar hann komst inn í sendingu Trent Alexander- Arnold og fann Troy Deeney sem skoraði úr góðu færi. Tíu mínútum síðar var Sarr enn kominn aftur fyrir varnarlínu Liverpool í gott færi en skot hans fór hárfínt fram hjá markinu Líkt og Sadio Mané komst Sarr ungur inn í Generation Foot aka- demíuna í Dakar í Senegal. Hann sýndi námi lítinn áhuga sem ungur drengur og stefndi á að verða knatt- spyrnumaður í fremstu röð. Sarr fór sömu leið frá Dakar og Mané þegar Sarr samdi við franska félagið Metz átján ára gamall og var fljótur að slá í gegn með liði Metz. Ári síðar, eftir 33 leiki í treyju Metz, var Sarr keyptur til Rennes fyrir fimmtán milljónir punda. Frammistaða Sarr með Metz vakti athygli stærri liða og fékk hann að eigin sögn tilboð frá spænska stór- veldinu Barcelona en kaus að halda áfram í Frakklandi. Hann sagði skrefið til Barcelona of stórt á þeim tíma og kaus því að fylla í skarð Ousmane Dembele hjá Rennes þess í stað. Tveimur árum síðar vann Wat- ford kapphlaupið um Sarr síðasta sumar. Sarr hafði heillað gegn Arse- nal í Evrópudeildinni og lenti í öðru sæti í kosningunni um efnilegasta leikmann Frakklands sem leiddi til þess að Watford pungaði út 30 millj- ónum punda fyrir sóknarmanninn. Þegar búið var að ganga frá kaup- unum var Sadio Mane spurður út í vistaskipti Sarr í deildina hjá The Athletic þar sem hann sagðist spenntur að fá vin sinn í deildina en vonsvikinn yfir að það væri ekki til Liverpool. Þá lofaði hann að varn- armenn deildarinnar ættu eftir að eiga erfitt með að ráða við Sarr eins og vörn Liverpool fékk að kynnast um helgina. kristinnpall@frettabladid.is Viðvörun frá Mané komst ekki til skila Senegalinn Ismaïla Sarr var í aðalhlutverki þegar Watford tókst að vinna Liverpool og stöðva 44 leikja hrinu Bítlaborgarmanna án ósigurs. Sarr kemur úr sömu akedemíu og Sadio Mané í Senegal og hefur Sarr líkt landa sínum við eldri bróður.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.