Fréttablaðið - 14.04.2020, Blaðsíða 15

Fréttablaðið - 14.04.2020, Blaðsíða 15
FASTEIGNIR. FRETTABLADID.IS Fasteignablaðið 1 5 . T B L . Þ R I ÐJ U DAG U R 1 4 . A P R Í L 2 0 2 0 Trausti fasteignasala kynnir glæsilegt og virðulegt 321,3 fm einbýlishús á tveimur hæðum með fjórum inngöngum ásamt frístandandi bílskúr á ein- staklega góðum og eftirsóttum stað við Laugardalinn í Reykjavík. Aukaíbúð var útbúin á neðri hæð hússins með sérinngangi. Efri hæð: Gengið er inn í rúm- góða forstofu en inn af því er lítið gestasalerni með glugga. Bjart og rúmgott hol með fallegum stiga og góðum glugga. Eldhúsið er rúm- gott. Hægt er að setja upp salerni inn af eldhúsinu en gert er ráð fyrir því á teikningu. Sérinngangur er á bakhlið hússins sem liggur út í garð. Tvær bjartar samliggjandi stofur þar sem gengið er út á stórar suður- svalir. Skrifstofuherbergi er inn af stofunni með rennihurð. Á neðri hæð er gott alrými. Fjögur rúmgóð svefnherbergi, eld- hús og tvö baðherbergi. Á hæðinni er aukaíbúð með sérinngangi. Bílskúrinn er frístandandi og í kringum húsið er skjólsæll og vel hirtur garður. Stutt er í vinsælasta útivistarsvæði Reykvíkinga, Laugardalinn. Leik- og grunnskóli eru í göngu- færi og Menntaskólinn við Sund í næsta nágrenni. Húsið var teiknað af Herði Bjarnasyni, fyrrverandi húsameistara ríkisins og einum fremsta arkitekt Íslendinga. Það var byggt árið 1956. Hér er einstakt tækifæri til að eignast hús á besta stað í Reykjavík. Allar nánari upplýsingar hjá Krist- jáni Baldurssyni, hdl. og löggiltum fasteignasala, í síma 867-3040 eða á netfanginu kristjan@trausti.is, eða hjá Guðbjörgu G. Sveinbjörns- dóttur, löggiltum fasteignasala, í síma 899-5949 eða á netfanginu gudbjorg@trausti.is Virðulegt einbýli í Laugardalnum Húsið er á góðum stað í nágrenni við Laugardalsgarðinn. Grensásvegur 3 • 2 hæð • 108 Reykjavík • Sími 530 6500 • heimili@heimili.is • heimili.is Bogi Molby Pétursson löggiltur fasteignasali. • Finnbogi Hilmarsson löggiltur fasteignasali. Við finnum rétta starfsmanninn fyrir þig Sérfræðingar í ráðningum lind@fastradningar.is mjoll@fastradningar.is FAST Ráðningar www.fastradningar.is www.manalind.is Lágmúla 6 sími 511 1020 Breiðakur 4 Garðabæ Mjög góð 126 fm. 3ja herb. íbúð í nýju lyftuhúsi. Verð 64.9 millj. Stæði í bílakjallara fylgir. Sýnum samdægurs Bókið skoðun í síma 860 4700 eða 899 5533 Tilbúin til afhendingar Fallegt hús sem byggt var árið 1956 er nú til sölu í Laugarásnum.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.