Feykir - 19.07.2017, Qupperneq 4
Eldur í Húnaþingi
Stútfull dagskrá af
spennandi viðburðum
Eldur í Húnaþingi, bæjarhátíð
Húnaþings vestra, verður
haldin dagana 26.-30 júli nk.
Hátíðin var fyrst haldin árið
2003 og hefur veið árlegur
viðburður síðan en það er
stjórn Menningarfélags
Húnaþings vestra sem sér um
framkvæmdina ásamt hópi
sjálfboðalliða. Þá hafa nokkur
fyrirtæki og stofnanir gert það
kleift að hægt hefur verið að
ráða verkefnastjóra við
hátíðina undanfarin ár.
Það er óhætt að segja að dag-
skráin sé stútfull af spennandi
viðburðum af margvíslegu tagi
svo auðvelt er fyrir hvern sem
er að finna eitthvað við sitt
hæfi. Hér gefst ekki færi á að
nefna nema brot af því sem í
boði er en dagskrána má nálg-
ast á slóðinni eldurihun.is.
Opnunarhátíð hefst kl. 19
miðvikudaginn 26. júlí með
skrúðgöngu frá Félagsheimil-
inu á Hvammstanga að hafnar-
svæðinu hjá Sjávarborg. Eld-
fuglar og fleiri skemmtilegar
verur verða þar í fararbroddi en
áhugasamir geta skellt sér á
námskeið í brúðugerð hjá
Handbendi Brúðuleikhúsi dag-
ana 19. og 22. júlí og tekið þátt í
skrúðgöngunni með fígúrurn-
ar sínar. Á leiðarenda verður
hægt að gera sér ýmislegt til
gamans. Kl. 23:30 um kvöldið
verður svo hljómsveitin Fókus
með tónleika á Sjávarborg en
hana skipa nokkrir þátttak-
endur úr Voice, þar á meðal
Hrafnhildur Valgarðsdóttir.
Á fimmtudag verður m.a.
hægt að skreppa á kajak, fara á
leiklistarnámskeið, í jafnvægis-
listasmiðju og í húllasmiðju og
sjá sýningu um tröll í brúðu-
leikhúsi. Það verða borðtennis-
mót og skotboltamót og hverfa-
mót í brunaslöngubolta á
Mjólkurstöðvartúninu. Kl. 21
um kvöldið verður svo Melló
Músíka þar sem tónlistarfólk úr
héraði stígur á stokk.
Á föstudag verður meðal
annars hægt að fara á námskeið
í tölvuleikjagerð, í Jiu-Jitsu,
förðun og fara í bjór-jóga ásamt
því að keppa á heimsmeist-
aramóti í Kleppara. Um kvöldið
kl. 21 verða svo tónleikar með
Eyþóri Inga í Borgarvirki og kl.
23:30 verða AmabAdamA í
félagsheimilinu.
Laugardagurinn er svo fjöl-
skyldudagur með fjölskyldu-
dagskrá, fjölskyldudansleik og
fleiru. Um kvöldið spilar
hljómsveitin Buff í félagsheim-
ilinu.
Á sunnudag sýnir leikhóp-
urinn Lotta Ljóta andarungann
við félagsheimilið.
UMFJÖLLUN
Fríða Eyjólfsdóttir
„Vorum dálítið gráðug fyrst“
Rögnvaldur S. Valbergsson,
organisti í Sauðárkrókskirkju,
tónlistarkennari o.fl. og
Hrönn Gunnarsdóttir
kjötiðnaðarmaður, eru ein af
þeim fjölmörgu áhugasömu
bátaeigendum sem búa á
Króknum. Bátinn eignuðust
þau í júlí 2014 og ber hann
nafnið Vinur. „Við vorum að
skoða báta til sölu en þá
sagði Tinna Björk, eitt af
barnabörnum okkar, að hún
vissi um bát til sölu hér á
Króknum. Svo við fórum að
skoða og skelltum okkur bara
á hann,“ segir Rögnvaldur
sem svarar spurningum um
bátinn sinn fyrir Feyki.
Vinur er plastbátur, um 5,80 m
á lengd, með 70 hestafla utan-
borðsmótor, svo hann kemst
alveg sæmilega áfram. „Hann
er flatbotna sem þýðir að hann
er ágætlega stöðugur og sérlega
góður t.d. í skotveiði, er ekkert
að velta mikið en á móti kemur
að maður siglir ekki mjög hratt
ef það er einhver alda. Þá
heggur hann heldur mikið.
Mér var sagt að þessir bátar
væru byggðir fyrir Grænlands-
markað, þeir sigla þeim að
ísrönd og renna þeim upp á
ísinn þar sem því verður við
komið.“
Hefur nafnið á bátnum ein-
hverja sérstaka skírskotun?
-Nei, nei. Þetta fylgdi bara
með, hef svolítið pælt að skipta
um nafn, held að sé annar
bátur hér á Króknum með
sama nafn, þyrfti þá að hugsa
eitthvert verulega töff nafn.“
Hefur sjómennskan fylgt þér
lengi?-Nei, nei. Það var lengi
bátur í sveitinni sem foreldrar
mínir áttu og það var róið frá
Haganesvík. Þetta var bara lítil
trilla en það var nóg til að
kveikja áhuga á að fiska. Ég
kunni t.d ekki að flaka en
Hrönn konan mín kenndi mér
þetta, byrjaði bara rólega. Hún
flakaði fjóra meðan ég flakaði
einn en svo kom þetta og ég er
búinn að ná fínum hraða í dag
og nýtnin orðin betri.
Hvenær er best að veiða? -Við
höfum nú ekki langa reynslu í
þessu en best tekur fiskurinn
þegar fellur að, allavega betur
heldur en á fjöru. En varðandi
árstíma, við höfum veitt t.d.
ágætlega í apríl og svo frameftir
öllu sumri og fram á haust.
Reyndar veiddi ég ekki neitt í
Skipstjórinn stendur stoltur við borðstokkinn.
MYND: ÚR EINKASAFNI
( ÞARNA SIGLIR EINHVER INN ) palli@feykir.is
Rögnvaldur S. Valbergsson / organisti og tónlistarkennari á Sauðárkróki
janúar og febrúar en svo lagast
þetta þegar líður að vori
Hvað verður um aflann? -Við
flökum þetta og pökkum,
fjölskyldan, börn og barnabörn
njóta góðs af, svo búum við til
harðfisk, keyptum okkur lítinn
þurrkofn, þetta tekur svona tvo
til þrjá daga að verða tilbúið í
harðfisk
Vorum reyndar oft dálítið
gráðug fyrst ef vel veiddist en
erum farin að passa okkur því
það tekur sinn tíma að gera að
þessu öllu ef maður veiðir
mikið sem er nú reyndar ekki
alltaf.
Er fjölskyldan með þér í út-
gerðinni? -Aðallega erum við
hjónin í þessu, en Rakel, dóttir
okkar, kemur stundum með og
einnig Indriði tengdasonur
okkar en það er meira í svart-
fugl. Svo höfum við farið með
barnabörnin til að veiða og þá
er mikið fjör. Fór t.d. um pásk-
ana með þau og Sara Rut, sú
elsta, gerði skemmtilegt mynd-
band um þetta og setti á You
Tube, heitir Vinadagur á sjó.
Áttu einhverja skemmtilega
sögu tengda bátnum eða sjó-
sókn? -Ja, við fórum í svart-
fugl fyrir svona tveimur árum,
við Indriði Ragnar, tengda-
sonur minn, og tveir aðrir, og
vorum góðan tíma en svo
byrjaði að hvessa að sunnan
svo við héldum heim á leið.
Þónokkur læti fyrir svona
smábát en er við ætluðum að
leggja að og ég fór að bakka
fengum við kaðal-inn framan
af bátnum í skrúfuna svo ég
lyfti mótornum og beygði mig
yfir til að losa kaðalinn. Fer þá
ekki síminn upp úr brjóstvas-
anum og ég horfi á eftir honum
í höfnina – reyndar ekki nýjasta
gerð svo þetta var kannski ekki
mikið tjón – en við styttum í
kaðl-inum eftir þetta svo svona
hendi ekki aftur.
Hefur komið babb í bátinn?
-Meinarðu eitthvert bilerí? Það
brann yfir spennustýring svo
hann hlóð ekki inn á rafgeymi.
Annars hefur þetta gengið
ágætlega að mestu.
Hrönn er mikil veiðikló og handfljót í flökuninni.
MYND: ÚR EINKASAFNI
Hljómsveitin Fókus.
MYND AF FACEBOOK-SÍÐU FÓKUS
4 28/2017