Feykir - 19.07.2017, Síða 8
Nú er FYRSTA ársverkefni
Sjálfsbjargar lsh. í fullum
gangi, en það ber heitið
„Sundlaugar okkar allra“
Sjálfsbjargarfé-
lagar um allt land
eru í óðaönn að
taka út sundlaugar
í sínu nærum-
hverfi. Verkefninu
ber að vekja
athygli lands-
manna og þeirra
sem með
almennings-
mannvirki hafa að
gera, á aðgengi.
Aðgengi að sundlaugum er
víða ábótavant, bæði er það svo
að aðgengi frá bílaplani og að
anddyri þarf að vera upphitað,
hellulagt og kantsteinalaust en
er það sjaldnast og svo þarf
hreyfihamlað fólk þ.m.t. fólk í
hjólastólum að geta komist frá
anddyri og út í sundlaug og
jafnvel ofan í hana. Hér í Skaga-
firði ákváðu Sjálfsbjargarfé-
lagar að taka út tvær sundlaugar
sem eru ætlaðar öllum en
komust að því að hvorug þeirra
þjónar öllum. Hvorki í sund-
lauginni í Varmahlíð né sund-
lauginni á Hofsósi er gert ráð
fyrir að manneskja í hjólastól
mæti ein síns liðs í sund, og þó
hún mætti með aðstoðarmann-
eskju sér til aðstoðar
þá er ekki gert ráð
fyrir að hún komist
ofan í sundlaugina
þar sem engar lyftur
eru til staðar. Það er
sorgleg staðreynd
að hvorug laugin
skuli hafa verið
hönnuð og útbúin
þannig að hún
þjónaði öllum.
Þessar sundlaugar
eru nýlegar og er t.d. sundlaugin
á Hofsósi aðeins sjö ára gömul
og þrátt fyrir að til séu ýtarlegar
reglur um hvernig aðgengi
skuli háttað í opinberum bygg-
ingum sem ætlaðar eru öllum
þá ákváðu arkitektar sundlaug-
arinnar algjörlega að horfa
framhjá því. Sömu sögu er að
segja um sundlaugina í Varma-
hlíð, ekki tókst að gera hana
aðgengilega öllum, þó hún ætti
að þjóna t.d. hreyfihömluðum
nemendum skólans.
Ég veit ekki hvað það er í
þjóðarsálinni sem gerir það að
verkum að arkitektar og þeir
AÐSENT : Þuríður Harpa Sigurðardóttir
Mismunun á sér mörg andlit –
að fara í sund er bara fyrir suma
sem koma að svona byggingum,
já og allskonar öðrum bygging-
um, virðast loka augunum og
fáta út í myrkrið, þar sem ætlast
er til að sé algild hönnun, að-
gengileg og fyrir alla. A.m.k.
virðast þeir sem hengja upp
spegla inni á salernum fyrir
fatlaða oftar en ekki skrúfa þá
upp með lokuð augun því
sjaldnast eru þeir í hæð fyrir
sitjandi manneskju svo dæmi
sé tekið.
Verið er að endurhanna og
endurbyggja sundlaugina á
Sauðárkróki. Við Sjálfbjargar-
félagar væntum þess að þar
sinni arkitektar og þeir sem að
byggingunni koma, vinnu sinni
með opin augun. Að þar verði
fagleg vinnubrögð viðhöfð og
náið samráð við það fagfólk
sem þekkir og veit hvað algild
hönnun þýðir, það væri nefni-
lega ekki bara dapurlegt heldur
einnig mjög kostnaðarsamt ef
kæmi í ljós að sundlaugin væri
ekki aðgengileg öllum, eftir
andlitslyftingu.
Ég hvet forráðamenn þess-
ara bygginga í Skagafirði til að
setja aðgengi í sundlaugum
helstu þéttbýliskjarna fjarðar-
ins á oddinn. Sveitarfélaginu
væri sómi að því að geta kynnt
sundlaugarnar sem sundlaugar
fyrir alla
Þuríður Harpa Sigurðardóttir
varaformaður Sjálfsbjargar lsh
Rúnar Kristjánsson frá Skagaströnd
Til Florence
Eldri systir Florence Nightingale var skírð Frances
Parthenope (en seinna nafnið er gríska nafnið á Napolí
eða hluta þeirrar borgar). Frances Parthenope giftist
Harry Verney baróni og þau bjuggu lengi við góðan orðstír
í glæsihúsinu Claydon House í Buckinghamskíri.
Frances Parthenope Nightingale Verney dó 1890 71 árs
gömul. Hún var merk kona eins og hin miklu frægari systir
hennar. Kannski hefði hún einhvern tíma á lífsleiðinni
getað ort til systur sinnar eitthvað á þessa leið:
Til Florence
Ég hugsa um það stundum að maðurinn minn
var með það í huga að verða þinn
í gegnum svo kærleiksrík kynni.
Þú brást þó með neitun við bónorði hans
og beindir ei hugsun til samfylgdar manns
því annað var efst þér í sinni!
Ég skil ekki hvernig þú hafnað gast honum
því hann gat í sannleika valið úr konum,
við neitun þá samt hann sig sætti.
Ég veit að hann elskar þig – systir mín sæl,
en samt varð ég glöð er hann snerist á hæl
og bað mín með hrífandi hætti!
Það tengdi hann líka í lífinu þér
en ljúfur hann alla tíð reynst hefur mér
og hugað að hamingju minni.
Og milli okkar þriggja með þroska og dáð,
með þakklæti gagnkvæmu sig hafa tjáð
í gegnum allt – kærleiksrík kynni!
ooooOoooo
Þormóður Skorri Steingríms-
son býr í Reykjavík ásamt
sambýliskonu og tveimur
sonum, 8 og 12 ára.
Fjölskyldan er nokkuð iðin
við hestamennskuna þó fjöldi
gæðinganna sé á reiki en Skorri
segir þá vera á milli 10 og 20.
Hann svarar hér spurningum
sem hestamaður Feykis
þessa vikuna.
Hverra manna ert þú? -Ég er
sonur Steingríms Þormóðssonar
lögmanns og Guðbjargar Egils-
dóttur hjúkrunarfræðings.
Hver er fyrsta minningin tengd
hestum? -Reiðnámskeið um 10
ára aldurinn hjá Fáki í Víðidal,
tekinn strætó eða gengið úr
Seljahverfinu þar sem við vorum
búsett þá.
Hver er uppáhaldshesturinn
þinn og af hverju? -Uppáhalds-
hrossin eru þau sem allir fjöl-
skyldumeðlimir hafa gaman af á
hverjum tíma.
Hvað var það skemmtilegasta
sem þú gerðir í sumar, tengt
hestum? -Fjögurra daga hestaferð
um Landsveit og Rangárvallasýslu
á úrvalsreiðleiðum og að sjálf-
sögðu í úrvalsveðri.
Áttu einhverja sögu tengda
hesti sem fallinn er frá? -Bragur
frá Röðli var góður hestur sem mér
var gefinn af afa mínum heitnum
þegar ég var 14 ára. Tamdi hann
sjálfur og hafði af honum mikla
skemmtun. Ég skipti svo við
móður mína á honum og allháum
Visa reikningi eftir útskriftaferð úr
menntaskóla og var hann í eigu
móður minnar lengst af. En ég
Þormóður Skorri
Nýbúinn
að elda
hrossalund
( HESTAMAÐURINN ) palli@nyprent.is
Skorri ásamt betri helmingnum, Þuríði Lindu Auðunsdóttur.
MYND AF FACEBOOKSÍÐU
fékk hann svo lánaðan aftur þegar
ég þurfti að fara að ala mína drengi
upp við útreiðar. Hann var felldur fyrir
fáum árum, þá á 28. vetri við góða
heilsu.
Hvað ertu að gera þessa dagana,
eða á næstunni, tengt hestum? -Er
að undirbúa ferð um Borgarfjörðinn
með ferðahóp skipuðum úrvalsfólki.
Er einnig nýbúinn að elda hrossa-
lund ef það telst hestatengt.
8 28/2017